Vísir - 21.06.1962, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 21. júní 1962.
VISIR
7
: ■■■■■áá
'..■Á ,'
■. > '■■■
mm
■
;■ V <• ,'■■
■
. '' »* + .
M**"1*1......VT .
Ví'VjiiSÍ|É
V: :•'•••• : V'::
'-> -
■jVíeð síðustu ferð Gullfoss
■^’-*- kom sérstætt farartæki til
til landsins. Þetta er Morris
Dormobile Caravan, yfirbyggð-
ur og innréttaður af Martin
Walter, Ltd., í Folkestone.
Bíllinn fór gegnum tollinn,
síðan var honum ekið gegnum
Iitlu stórborgina að tryggingar-
stofnun og þar tryggður vand-
lega.
Við fylgdum bilnum, náðum
í ljósmyndara, urðum að
grennslast um, hvers konar
furðuverk væri þar á ferð.
Bíllinn áði við hús í Austur-
bænum og honum lagt.
Eigandinn var gripinn glóð-
volgur á staðnum og byrjað að
skjóta á hann og bílinn án um-
svifa. í ljós kom, að eigandinn
er Mr. Richard Anthony Tunn-
ard, lögfræðingur frá Boston í
Loncolnshire; hafði hann dval-
izt hér á stríðsárunum sem Iiðs-
foringi í brezlfa hemum og
kvænzt íslenzkri konu, Þórunni
Sigurðardóttur Guðmundsson-
ar heitins skólameistara á Ak-
ureyri. Er hún með honum í
þessari ferð hans hingað, sem
m. a. er farin til þess að stunda
iaxveiðar norður í Laxá í Þing-
eyjarsýslu og víðar, ef til fell-
ur. Frú Þórunn er líka hingað
komin til að taka þátt í 25 ára
stúdentsafmæli sínu, sem hald-
ið verður fyrir norðan af bekkj-
arsystkinum hennar.
Höfðu þau hjónin keypt þenn
an Dorniobile Caravan með það
fyrir augum, að matbúa í hon-
um, borða í honum og sofa í
honum á sumarferðalögum og
veiðitúrum, sem sagt bíllinn er
hús á fjórum hjólurn, ekki kálf-
ur (eða trailer), sem bundinn
er aftan í bíla og flestir kann-
ast við, heldur alhliða íveru-
vagn.
A/'ið fengum talsverða vitn-
’ eskju um bílinn.
DORMOBILE — rótin í orð-
inu er dregin af latnesku sögn-
inni dormio, sem merkir að
sofa, og bile er stytting úr
automobile, sama sem sjálf-
hreyfandi eða nánar tiltekið
bíll, svo að Dormobile merkir
svefnbíll. Hann er áferðarsnotur
og sýnist traustur og allur vand
aður. Bíllinn rúmar 7 farþega
á ferð, og fjórir geta auðveld-
lega sofið í honum. Með einu
handtaki ér hægt að lyfta þak-
inu — þá lítur bíllinn út eins
og hús — og útbúa svefnrými
beggja vegna, tvö hengirúm,
sem eru ca. 1V2 meter frá gólfi,
og þar að auki eru tvö önnur
svefnstæði, sem gerð eru úr aft-
ursætunum og framsætunum.
Efnið í þakinu er það, sem Eng-
lendingar kalla candy-striped,
þ. e. i eins og röndóttur brjóst-
sykur, og er vatnsþétt, vindþétt
og fúnar ekki.
Þakið er úr óeldfimu efni, og
á þvi er loftræsting og tvö-
faldur ljósaútbúnaður. Gólfið í
vagninum er klætt sterkum
dúk. öll sæti og bekkir eru
fóðruð með svampgúmmíi og
klædd nælonleðri og glugga-
tjöldin í vagninum eru auð-
hreyfanleg eins og f nýtízkuleg-
ustu íbúðum. EJdunartækin eru
— fyrir fólk/ sem nýfur uð ferðust
kosangas, tvær plötur með sér-
stökum öryggisútbúnaði, þá er
vaskur með frárennsli, ísskáp-
ur, að auki er í bílnum tæki til
að reykja lax á stundinni. Þá
eru og skápar og skúffur undir
eldhúsáhöld, matborð, sæti fyr-
ir húsmóðurina við eldamennsk
una, sem breyta má f 'tröppu
til að stíga upp í hengirúmin,
einnig er í vagninum klæða-
skápur með spegli að innan-
verðu, tveir gríðarmiklir geym-
ar undir vatn eða annan vökva.
Gárungi, sem bar að, þegar ver-
ið var að mynda tankana, sagði:
„Annar fyrir viskí og hinn fyr-
ir gin“. Þá hló Bretinn og sagði:
„Why not?“
Vélin f bílnum er fjögra cyl-
indra Morris J —4 með 1489
„cubic capacity“. Hann er
fjögra gíra áfram og gefinn fyr-
ir 65 mílna hámarkshraða á
klukkustund, en venjulegur
hraði á þjóðvegum 45 — 50 míl-
ur á klukkustund. Bremsuút-
búnaður er af fullkomnustu
Framh. á 10. síðu.
»
i