Tölvumál - 01.02.1991, Qupperneq 9
Febrúar 1 991
Því miður höfum við ekki getað
sent fulltrúa til þessara sam-
ráðsfimda en væntanlega munum
við sækja næsta fund svo og
bjóða til fundar hér í Reykjavík.
Ég tel mikilvægt að við höldum
sambandi á upplýsingatæknisviði
við grannþjóðir okkar og njótum
góðs af þeirra starfsemi alveg
eins og við miðlum þeim af okkar.
NDU er ágætur vettvangur til
þess.
Norddata
í júní síðastliðnum var Norddata
ráðstefnan haldin í Gautaborg.
Aðeins formaður sótti aðalfund
NDU ítengslumvið ráðstefnuna
en 5 íslendingar tóku þátt í ráð-
stefnunni.
Aðsókn að Norddata var nú minni
en í Kaupmannahöfn og er ljóst
að ekki hefiir tekist að snúa þessari
óheillaþróun við. Miklar um-
ræður urðu um þetta atriði á
aðalfundi NDU og er ætlunin að
breyta verulega til á NordData
'91 í Oslo.
Norddata 91 verður að þessu
sinni haldin í Oslo dagana 16,-
19. júnf í sumar.
Reynt verður að draga úr
sölufyrirlestrum eftir mætti með
því að leita til ákveðinna fyrirles-
ara og greiða þeim fyrir svo og
verður nú sérstök fyrirlestraröð
á ensku. Með þessu er reynt að
höfða til stærri hóps, jafnvel
utan Norðurlandanna.
Er vonandi að þetta skili meiri
þátttöku en hingað til.
IFIP
Anna Kristjánsdóttir er fulltrúi
okkar gagnvart International Fed-
eration for Information Process-
ing, en SÍ er aukaaðili að
samtökunum. Anna situr í
menntamálanefnd IFIP en hún er
einnig í dagskrárnefnd World
Conference on Computers in Edu-
cation. Sú ráðstefna var haldin í
Sidney í haust og sótti Anna
hana á eigin vegum.
Ákvörðun umfrekari þátttöku SÍ
í IFIP bíður vorsins svo og
hugsanleg aðild að öðrum
samtökum af svipuðum toga.
Horft fram á við
Á síðustu tveimur árum hefur
verið unnið ötullega að því að
styrkja ráðstefnu- og fundahald
félagsins svo og Tölvumál. Hefúr
góður árangur náðst þar.
Rödd SÍ þarf hins vegar að heyrast
meira út á við og auka þarf
umræðu um tölvumál í fjölmiðlum
og meðal almennings.
Þorri landsmanna á mikið undir
tölvutækninni svo og er tölvueign
útbreidd. Lög og reglur um tölvu-
glæpi, höfúndarrétt að hugbúnaði
og margt fleira sem lýtur að
tölvum og tölvunotkun er hins
vegar vanþróað.
Mikilvægt er að félagið beiti sér
meira á þessum vettvangi með
því að skapa umræðu og hafa
áhrif á stjórnvöld.
Fyrsta skrefið hefur nú verið
stigið með því að félagið gengst
fyrir útgáfu fræðslubæklinganna
sem áður eru nefndir svo og er
fyrirhuguð námstefna f tengslum
við það.
Vonandi eru þetta bara fyrstu
skrefin í þessari viðleitni.
Aukin samvinna við sambærileg
félög hér á landi sem erlendis er
af hinu góða og verður áfram
unnið á þeim vettvangi Á liðnu
ári hefúr félögum fjölgað, rekstur-
inn skilað hagnaði og hver atburð-
urinn á fætur öðrum verið betur
sóttur.
Lokaorð
Ég vil þakka stjórnarmönnum og
félagsmönnum öllum mjög
ánægjulegt samstarf á liðnu
starfsári og ég hlakka til sam-
starfsins á nýju ári.
Lifið heil!
Gert í Hafnarfirði,
31.janúar, 1991
9 - Tölvumál