Tölvumál - 01.02.1991, Page 15
Febrúar 1 991
Norrænt samstarf um tölvunotkun í
skólum
Hildigunnur Halldórsdóttir, sérfræðingur við Reiknistofnun Háskólans
Seint á árinu 1984 setti Norræna
ráðherranefndin á stofn vinnuhóp
sem hlaut nafnið "Vinnuhópur
um samvinnu á sviði tölvuforrita
til notkunar í skólakerfmu". í
þessum vinnuhópi var einn fulltrúi
frá hverju landi. Ritari hópsins
var ráðinnUlfVasström. ífebrúar
1986 skipti vinnuhópurinn um
nafn og heitir nú "Tölvuhópur
Norrænu ráðherranefndarinnar".
Á sama fundi var ákveðið að
setja á stolin skrifstofu með föstum
starfsmanni. Var Ulf Vasström
ráðinn til starfsins.
Fyrstu árin var ákvörðun um
áframhald starfseminnar tekin
árlega en 1988 var Tölvuhópnum
veitt þriggja ára starfsleyfi sem
rann út í lok ársins 1990. Þá
skyldi lagt mat á starf það sem
Tölvuhópurinn hafði unnið og
taka síðan ákvörðun um
framhaldið ágrundvelli matsins.
Er skemmst frá því að segja að
niðurstaðaPeters Bollerslev sem
fenginn var til að meta starfið
var mjög jákvæð. Hann lýkur
skýrslu sinni á þessum orðum:
"Starfsemi Tölvuhópsins hefur
fram að þessu gefið frábæran
árangur. Starfseminni ber að
halda áfram f auknum mæli þannig
að hægt sé að skipuleggja hana
lengra fram í tímann en tíðkast
hefur."
Á grundvelli skýrslunnar fékk
Tölvuhópurinn þriggja ára
starfsleyfi, þ.e. til loka ársins
1993. PeterBollerslevhafðilagt
til að starfsleyfið yrði veitt til sex
ára.
Starfsemi
Tölvuhópsins
Þó hópurinn hafi upphaflega verið
settur á stofn sem vinnuhópur
um tölvuforrit fyrir skólakerfið
var verksviðið fljótlega vfkkað
út. Árið 1987 gerði Ráðherra-
nefndin eftirfarandi skrá yfír
höfuðverksvið hópsins:
1. Upplýsingaöflun og útgáfu-
starfsemi
2. Stöðlun
3. Rannsókna-og þróunarstarf
4. Verkþekking og forritaþróun
5. Samningar
6. Framhaldsmenntun
kennara
7. Alþjóðleg tengsl
Ég mun nú í stuttu máli gera
grein fyrir þeirri vinnu sem unnin
hefur verið á hverju þessara sviða.
Upplýsingaöflun og
útgáfustarfsemi
Undir þennan lið fellur söfnun
upplýsinga um tölvumál í skólum
á Norðurlöndum. Segjamáaðá
skrifstofu Tölvuhópsins í Kaup-
mannahöfn sé hægt að fá
upplýsingar um allt sem varðar
tölvumál í skólakerfum á Norður-
löndunum.
Einnig gefur Tölvuhópurinn út
tímarit "Nytt om data i skolan".
Tímaritið kemur út tvisvar á ári
í um 200.000 eintökum. Pví er
m.a. dreift í alla grunn- og
framhaldsskóla á íslandi.
Á vegum Tölvuhópsins koma út
ýmsar skýrslur m.a. um öll
námskeið sem haldin eru á hans
vegum.
Stöðlun
Tölvuhópurinn hafði frá upphafi
gert sér vonir um að geta unnið
að norrænum staðli fyrir skóla-
kerfíð á sviði vélbúnaðar og
hugbúnaðar. Mjög fljótlega var
horfið ífá því að reyna að tilgreina
staðlaívélbúnaði. ÞegarTölvu-
hópurinn var stofnaður voru í
notkun í skólum á Norður-
löndunum mjög margar mis-
munandi tölvutegundir. Þróunin
hefur hins vegar orðið sú að í
skólum landanna eru nú notaðar
MS-DOS vélar. Þvf má segja að
MS-DOS sé óopinber staðall í
þessu norræna samstarfi.
Unnið hefur verið að ýmsum
stöðlunarmálum sem varða hug-
búnað. Má þar nefna stöðlun á
lýsingum á kennsluforritum og
stöðlunáteiknum (ikons). Þegar
eru í gangi umræður um stöðlun
verkfærisforrita. Einkum er þessa
stundina fjallað um hvernig best
sé að gera forritin úr garði þannig
að auðvelt sé að þýða þau yfir á
tungumál hvers lands um sig.
1 5 - Tölvumál