Tölvumál - 01.02.1991, Blaðsíða 29
Febrúar 1991
Þetta er þó ekki eina vandamálið.
Jafnvel þó einkaleyfakerfið
virkaði eins og menn ætluðust
til, væri það stórt og grimmt Ijón
Hugbúnaðargerð er í
grundvallaratriðum
frábrugðin öðrum
greinum sem einka-
leyfakerfið hefur
hingað til verndað
á vegi þessarar iðngreinar, sem
því er ætlað að vernda. Hug-
búnaðargerð er í grundvallar-
atriðum frábrugðin öðrum
greinum sem einkaleyfakerfið
hefur hingað til verndað.
Ekki virðist nema ein lausn á
þessum vanda vera möguleg; það
að einkaleyfi í hugbúnaði verði
algerlega lögð af. Hins vegar er
lítið sem við íslendingar getum
gert til að stuðla að því. í Banda-
ríkjunum hvetur LPF menn til að
senda fé til styrktar samtökunum,
skrifa þingmanni sínum, standa
mótmælastöðuro.fl. Viðgætum
að vísu sent peninga til styrktar
LPF, eða gerst félagar, en annað
getum við vart gert (- eða hvað?).
Áhrif á íslendinga
Með því að undirstöðuatvinnu-
vegimir hafa á undanfömum árum
sýnst æ verr búnir til þess að
auka hagvöxt, hefur Alþingis-
mönnumogöðrum aðilumorðið
tíðrætt um að flytja út meint
íslenskt hugvit. (Raunar hafa
aðgerðir sömu aðila til styrktar
þeim útflutningi verið með þeim
hætti, að maður hlýtur að efast
um að margumrætt hugvit geti
verið til í landinu. Það er önnur
og sorgleg saga.) Það hefiir reynst
erfitt, og f hugbúnaðargerð a.m.k.
gæti það orðið hættuspil. Ekki
er nóg með að þessi einkaleyfaógn
sé komin upp í Bandaríkjunum,
heldur munu stór fyrirtæki þrýsta
fast á Evrópubandalagið að taka
upp svipað fyrirkomulag innan
bandalagsríkjanna. (Innan sviga:
Þau merku samtök eru sennilega
nýbúin að samþykkja reglur um
höfundarétt, til samræmis við
Bandarfskar venjur, þannig að
hann nær nú yfir notendaskil.
Þannig verða málshöfðanir í anda
"Look-and-Feel" mögulegar f
Evrópu. Svei því gengi.)
Kannski við hefðum öll átt að
nema lögfræði.
Um efnisval Tölvumála
Frá ritstjóra
Á síðasta ári ákvað ritstjórn
Tölvumála að gera tilraun með
það að velja fyrirfram tiltekna
málaflokka sem aðalefni hvers
einstaks tölublaðs. Þessi tilhög-
un var fyrst kynnt lesendum
Tölvumála í desemberheftinu með
orðsendingu frá ritnefnd.
Skemmst er frá því að segja að
tilraunin virðist hafa heppnast
og skilað góðum árangri. Yfír-
bragð síðustu tölublaða er mun
heilsteyptara en fyrr og hafa
nokkrir lesendur vitnað um að
blaðið hafi tekið framförum.
Enginn hefur kvartað!
Ritnefndin á hægara með að
skipuleggja störf sín og gera þau
markvissari. Lesendur fá betra
tækifæri en fyrr til að miðla
upplýsingum um hugðarefni sín
og skiptast á skoðunum. Þeir
sem vilja senda inn efni fá með
þessu móti tímanlega hvatningu
og góðan fyrirvara til að un-
dirbúa og semja greinar sínar.
Loks fá þeir sem vilja auglýsa
tiltekna vöru eða þjónustu ákve-
ðið forskot eða umgjörð um
auglýsinguna ef hún fellur vel að
því efni sem fjallað er um í
tölublaðinu.
Því mun ritstjóm Tölvumála halda
þessu skipulagi áfram, í það
minnsta íyrst um sinn.
Ýmsar hugmyndir hafa komið
fram um aðalefni tölublaðanna
næsta haust. Þar má nefna efni
svo sem tölvur í kennslustarfi,
myndrænan hugbúnað, einka-
leyfamál og höfundarrétt og
sitthvað fleira. Lesendum sem
hafa góðar ábendingar um aðal-
efni Tölvumála er að sjálfsögðu
velkomið að senda inn uppá-
stungur sínar til ritstjórnar.
A.U.S.
Málaflokkar sem hafa verið valdir til þessa eru:
Desember 1990: Tölvu (víð) net
Janúar 1991: Einmenningstölvur
Febrúar 1991: Hugbúnaðargerð
Mars 1991: Tölvumál opinberra stofnana
Apríl 1991: Staðlar
Maí 1991: Gagnabrunnar
29 - Tölvumál