Vísir - 02.08.1962, Qupperneq 2
2
VlSIR
Fimmtudagur 2. ágúst 1962.
v///s/mvy/,
B-landsleikur við
Færeyjar á morgun
Hinn mngnnði Torstein
Mognúsen í liði Færeyjn
1 kvöld koma með „Dronning
Alexandrine“ til Reykjavíkur
19 færeyskir knattspyrnumenn
og 2 fararstjórar þeirra, en ann-
að kvöld fer fram leikur B-liðs
fslands og A-liðs Færeyja á
Laugardagsvellinum.
Leikmenn þeir er hér uin
ræðir eru allir frá 1. deildar-
liðunum fjórum f Færeyjum,
B-36 frá Þórshöfn, sem er nú
Færeyjameistari, KI frá Klakks-
víg, frægri síðan f Iækna-
„stríðinu“ fyrir nokkrum árum
og mikia athygli vakti en
Klakksvíkingar sigruðu í 1.
deild í fyrrasumar, HB frá
Þórshöfn, sem varð meistan
1960 og TB frá Þvereyri, sem
á tvo varamannanna í leiknum
á morgun.
Leikmennirnir sem koma nú
eru annars fæstir í sinni fyrstu
heimsókn hér, því allir leik-
menn HB og B-36 hafa leikið
hér áður og einn sérlega minn-
isstæður mönnum, og er það
Torstein Magnusen hægri út-
herji í Iiði þeirra, um árabil
einn bezti Ieikmaður Færeyja.
fsland hefur einu sinni áður
leikið B-landsIeik við Færeyjar
og var það á Ólafsvökunni
1959. ísland vann 5:2, en Fær-
eyingar unnu aftur á móti hug
og hjörtu allra fslendinganna
með innilegum og góðum mót-
tökum og fullyrða menn að
aldrei fyrr eða sfðar, hafi ís-
lenzkt landslið hlotið slíkar
höfðingjamóttökur sem þá. Er
vonandi að okkar menn geti nú
endurgoldið f sömu mynt.
Færeyingar munu aðeins
leika einn leik f Reykjavík, en
fara sfðan út á land og keppa á
4 stöðum úti á landsbyggðinni.
Eru þeir leikir sem hér segir:
Á ísafirði sunnudaginn 5.
ágúst.
Á Akureyri miðvikudaginn
8. ágúst.
Á Akranesi sunnudaginn 12.
ágúst.
Þýzkur dómari dæmir
leik FH og Esslingen
Sfðasti leikur Esslingen verð-
ur í kvöld á Melavellinum í
Reykjavík og hefst klukkan
8.30 e. h. Andstæðingar þeirra
verða gestgjafarnir FH.
Það sem ætti að vekja athygli
á þessum leik er, að dómarinn
verður þýzkur. Þjóðverjarnir
hafa kvartað mjög undan dóm-
um þeim og reglum sem við-
hafðar cru hér. Hafa þeir látið
óánægju sína óspart í ljós
enda hafa leikir þeirra verið
meiri og minni slagsmál. Dóm-
arinn heitir Manfred Kienle og
er nú að sjá, hvaða árangri
Þjóðverjarnir ná við þessar að-
stæður.
f Keflavík miðvikudaginn 15.
ágúst.
Verða færeysku landsliðs-
mennimir hér því rúman hálf-
an mánuð á ýmsum stöðum á
landinu, en utan halda þeir 17.
ágúst með „Drottningunni“.
Færeysk knattspyrna er
ekki á háu stigi cins og flestir
vita, en það er íslenzk knatt-
spyrna raunar ekki heldur,
þrátt fyrir að við ráðum yfir
góðum grasvöllum, sem Fær-
eyingar hafa ekki. Samt má
búast við skemmtilegum leik á
morgun. Það sem Færeyinga
kann á að skorta í knattmeð-
ferð geta þeir bætt upp með
hinum geysimikla hraða og
hörku, sem þeir eru sagðir hafa
yfir að ráða. Leikurinn er ekki
unninn fyrir fram og ekki gott
að segja nema hörð barátta
verði á Laugardalsvelli á
morgun.
Gunnar Gren
„II Preffore", öðru nafni Gunnar
Gren, sem eitt sinn var í sænska
landsliðinu og átti stærstan þátt-
inn i að Svíar unnu ólympískt
gull í London 1948 og varð síðar
einn bezti atvinnumaður Ítalíu,
hefur nú aftur tekið fram knatt-
spyrnuskóna, en hann er fyrir
löngu kominn aftur heim til Sví-
þjóðar.
Gren hefur nú ákveðið að feta í
fótspor vinar síns, Alberts Guð-
mundssonar, og hefja 3. deildar lið
upp. Liðið sem hann ætlar að leika
fyrir heitir Vastra Frölunda og
mun Gren leika innherja og þjálfa
liðið að nokkru leyti. Gren er nú
42ja ára gamall og vonar félag
þetta að Gunnar muni lyfta fé-
laginu upp í 2. deild.
Færeyskir knattspymumenn
gerast nú tíðir gestir okkar Is-
lendinga. Á sama tíma og fær-
eyska landsliðið er hér í heim-
sókn, sækja Víking heim III. fl.
Hafnarboltafélagsins í Thors-
havn. Er það knattspyrnudeild
Víkings sem sér um móttök-
urnar.
Em Víkingar þarna að end-
urgjalda himsókn þá, scm
þriðji flokkur þeirra fór f til
Færeyja í sumar.
Fyrsti leikur Færeyinganna
verður á Víkingsvellinum í Bú-
staðahveifi gegn gestgjöfunum,
í kvöld klukkan 8.30 e. h.
Flokkurinn mun ferðast
nokkuð um, og væntanlega
fara til ísafjarðar og Vest-
mannaeyja. í förinni eru 16
leikmenn og einn fararstjóri,
Johannes Alvhiggy.
OL-meistarinn Cassius Clay
hefur nú gerzt atvinnumaður í
hnefaleikum og vann s.l. laugar-
dag I Los Angeles argentínska
hnefaleikarann Lavorante með
knock-out f 5. lotu. Hefur Clay
unnið alla bardaga sína, 15 að tölu,
síðan hann gerðist atvinnumaður
og færðist hann óðfluga nær tak-
marki sínu, sem er að fá rétt til
að skora á heimsmeistarann í
þungavigt, Floyd Patterson. Patter-
son kom svipaða leið og Clay, þ. e.
hann varð OL-meistari f millivigt
í Helsinki 1952. Á þeim leikum
var Ingemar Johannsson dæmdur
úr leik í úrslitabardaganum við
Bandaríkjamanninn Sanders.
HOLBÆK-liðin leika í
Keflavík f kvöld (Njarðvíkur-
völlur).
Guðmundurog
Horður a
Sundsamband íslands ákvað á
fundi sínum í fyrrakvöld að tveir
íslendingar taki þátt í Evrópu-
meistaramótinu í Leipzig sem fram
fer 18.—25. ágúst n. k.
Guðmundur Gíslason, IR, keppir
í 400 metra fjórsundi, og Hörður
B. Finnsson keppir í 200 metra
bringusundi.
Fararstjóri verður þjálfari sund-
manna, jónas Halldórsson og verð-
■ ur hann jafnframt fulltrúi SSl á
þingi alþjóða sundsambandsins,
I sem fram fer á sama tíma.
SSÍ setti á sínum tíma ákveðin
lágmörk, sem miða skyldi við, þeg-
^ ar endanleg þátttaka af hálfu Is-
lands verði ákveðin. Var jafnframt
^ tilkynnt að ná þyrfti lágmörkun-
i um 2—3 sinnum.
Þessi skilyrði hafa Guðmundur
og Hörður uppfyllt. Hrafnhildur
| Guðmundsdóttir náði lágmarkstfma
í 100 metra skriðsundi snemma í
sumar, en hefur ekki náð jafngóð-
um árangri, er á leið sumarið. Að
fengnum þeim upplýsingum ásamt
yfirliti um fjárhagshlið væntanlegr
ar Leipzigferðar vat ofangreind á-
kvörðun tekin.
(Frá Sundsambandi Islands).
^ Austur-þýzk ungmenni eru með
al þcirra, sem þegar hafa haldið
hcim af Alþjóða-æskulýðsmótinu i
Helsinki. Uppþot hafa verið þar á
hverju kvöldi frá þvf mótið hófst
og lögreglan orðið að taka hundruð
manna, einkum finnska unglinga,
úr umferð. I gær hótaði hún að
beita hörðu, ef ekki yrði lát á ó-
spektum.
• A. m. k. 13 júgóslavneskir
námamenn biðu bana af völdum
sprengingar í kolanámu í Zagorje
í Slóvakíu í gær.
Ærlendar
fw'éttir
► Welshmaðurinn John Charles
hefur verið seldur frá ítalska fé-
laginu Juventus til enska félags-
ins Leeds United, sem hann Iék
fyrir, áður en hann var seldur til
Italíu fyrir 5 árum. Hann var
seldur Juventus fyrir 600.000 pund
og á Italfu skapaði hann sér sess
sem einn bezti framherji í heim-
inum. Nú kaupir Leeds hann aftur
fyrir 53.000 pund.