Vísir - 02.08.1962, Page 5
Fimmtudagur 2. ágúst 1962.
V'SIR
Á austursvæðinu
og veiða ágætlega
Ágæt sildveiði var s.l. sólara-
hring, og enn er gott útlit fyrir
áfranihaldandi sildveiði. Flest skip-
anna eru nú á austursvæðinu og
mest veiðist út af Skrúð. Er því
straumurinn til Seyðisfjarðar að
miklu leyti, og má búast við
áframhaidi á því, sérstaklega þeg-
ar Seyðisfjarðarverksmiðjan tekur
að starfa af fullum krafti.
I gær tilkynntu 58 skip um afla
samtais 41090 mál og tunnur. 10
skip tilkynntu komu sína til Siglu-
fjarðar með 6530 mál og tunnur.
Höfðu þau veitt NNA af Grímsey,
og voru fleiri skip að fá veiði þar.
Hæstur var Haraldur AK með 1400
mál.
Til Raufarhafnar höfðu 14 skip
tilkynnt um afla, flest þeirra veitt
út af Hraunhafnartöngum. Sam-
tals um 7360 mál og tunnur.
34 skip höfðu tilkynnt afla sinn
til Seyðisfjarðar samtals 27.200
mál og tunnur. Mest af þessu
veiddist út af Skrúð. Er þar enn
þá ágætt veður, en á vestursvæð-
inu var þokusúld og kaldi.
Eftirtalin skip hafa tilkynnt afla
sinn:
Siglufjörður: Haraldur AK 1400,
Guðbjartur Kristján ÍS 800, Hring-
ver VE 500, Víðir II GK 500, Gný-
| fari SH 180, Sæfari BA 1000, Hrafn
Sveinbjarnar GK 600, Árni Þor-
kelsson KE 250, Leó VE 200, Snæ-
fell EA 1100.
Raufarhöfn: Ársæll Sig. II GK
200, Hafbjörg GK 500, Sigurvon
600, Jón á Stapa SH 700, Mummi
GK 660, Júlíus Björnsson EA 400,
Sigurfari GK 1200, Auðunn GK 600
Grundfirðingur II SH 500, Súlan
EA 1100, Stefán Þór ÞH 300,
Baldv. Þorvalds. EA 200, Bjarmi
EA 200.
Seyðisfjörður: Gunnólfur ÓF 450,
Helga RE 1500, Hoffeli SU 650,
Helga Björg RE 350, Sigurfari BA
200, Sigurður AK 1000, Bergvík
KE 900, Pétur Sigurðsson RE 1000,
Hólmanes SU 1500, Fiskaskagi AK
900, Birkir SU 500, Stefán Árnason
SU 500, Snæfugl SU 500, Héðinn
ÞH 950, Ásgeir Torfason GK 450,
Gjafar VE 1000, Garðar EA 600,
Sigurfari SF 650, Höfrungur AK
800, Vinur ÍS 900, Sæljón RE 200,
Rifsnes RE 1000, Jón Garðar GK
1200, Erlingur IV VE 600, Pálína
GK 1150, Freyja GK 700, Helgi
Flóventsson ÞH 1600, Tjaldur SH
600, Guðbjörg GK 500, Dóra GK
1000, Guðm. Þórðarson RE 1.300,
Fagrikiettur GK 800, Huginn VE
700, Ásgeir RE 500.
Nkrumoh forseto Ghona
sýnt hnnntilræði
Fréttir frá Chana í morgun herma,
að Nkrumah forseta hafi verið sýnt
banatilræði, en sloppið heill á húfi,
og þykir furðulegt, þvi að margir í
fyigdarliði hans meiddust, sumir
lífshættulega, en nærstaddur skóla-
drengur beið bana.
Þetta gerðist, er sprengju var
varpað að bifreið forsetans, er
hann var að stíga út úr henni f
þorpi álægt noðurlandamærunum
við Efri Volta. Hefur forsetinn ver-
ið á ferðalagi þar um slóðir að
undanfömu.
í tilkynningunni segir, að læknis
skoðun á Nkrumah, sem átti sér
stað í sjúkrahúsi þorpsins, hafi
leitt í ljós, að hann hafi sloppið
óskaddaður með öllu, en margir
Sóffkveikjan -
Framh. af bls, 1.
MATVÆLUNUM
KASTAÐ.
Meðgöngutími veikinnar er 18
klukkustundir. Þegar fólk leitar
læknis að þeim tíma liðnum er
venjulega búið að henda matvæl-
unum, enda hefur ekki tekizt að
rækta sýkilinn í leifum, sem fyrr
segir.
Borgarlæknir gat þess að eftir
fiskifræðingaveizluna frægu hefði
rannsókn málsins komizt á nýtt
stig. Sannað hefði þótt að eina
matartegundin, sem allir fiskifræð-
ingarnir höfðu neytt var majonn-
aise og því hefði verið svo rök-
studdur grunur um smit í þvf að
sala þess hefði verið bönnuð.
Egg, sem éru aðalefnið í maj-
onnaise, mætti þó hiklaust borða
ef vel væru soðin, og kökur með
eggjum ef vel væru bakaðar. Væri
sízt ástæða til þess að draga úr
eggjakaupum fyrir aimenning, þótt
svoná væri.
Þess má að lokum geta að far-
aldurs þessa hefir auk þess orðið
vart í Kópavogi, Keflavík og Akur-
eyri. Hefir mátt rekja uppsprettu
hans til vissra matarverzlana í
Reykjavík, en þær verzlanir eru í
hópi þeirra, sem borgarlæknir
hefir haft undir smásjá, án þess
að sóttkveikjan hafi fundizt.
séu mjög illa meiddir, og hefur
verið sent þangað lið lækna og
hjúkrunarfólks til þess að sinna
þeim, sem særðust og sjá um flutn-
ing á þeim í sjúkrahús.
Öll umferð í þorpinu og þar í
grennd var stöðvuð og fjölda marg
ir teknir til yfirheyrslu. Um 20
var ekki sleppt að yfirheyrslum
loknum.
Nkrumah hefur nokkrum sinn-
um áður verið sýnt banatilræði og
að minnsta kosti einu sinni sloppið
naumlega, eins og nú.
jómenn með 84
|»ús. króna mánað-
ar'aun mótmæftu
í gær birti Vísir harðorð mót-
mæli frá áhöfnum 12 síldveiðiskipa
vegna gerðardómsins tii lausnar
síldveiðideilunni.
í .
Nú hefur Landsamband íslenzkra
útgerðarmanna sent tilkynningu
sem svar við þessum mótmæium.
Er þar skýrt frá því, hver háseta
hluturinn á síidveiðum var í rétt
rúman mánuð á þeim skipum, sem
sendu mótmælin. Kemur í ljós af
þeirri skýrslu, að tekjur sjómanna,
sem mótmæltu eru gífurlega mikl-
ar þennan rúma mánuð.
Barn féll tvær mannhæðir
en slasaðist lítið
Hæstur er hásetahluturinn á Víði
II eða um 84 þús. kr. Næstur kem-
ur Gjafar frá Vestmannaeyjum
með 68 þús. kr. hásetahlut, á Leifi
Eiríkssyni er 61 þús. kr. háseta-
hiutur.
Síðan koma margir bátanna með
Það verður til talsverðrajj
' bóta í umferðinni, að nú er ver •
>ið að rífa þetta hús við Hverf •'
^isgötu, sem hefur þrengt
iþessa miklu umferðaræð. Er -
j síðan ætlunin að breikka göt- <
iuna og gera bílstæ ' á hluta .
r af lóðinni. Enn er þó eftir að \
igera sömu aðgerðir á tveim-1
fur stöðum til viðbótar viðj
iHverfisgötuna og er kominn1
Jtími til að fjarlægja þessii
I hús, sem hindra svo mjög'
! umferðina.
þetta 30 til 50 þús. króna háseta-
hiut en lægstan hásetahlut þeirra
báta sem mótmæltu hefur Hávarð-
ur frá ísafirði, enda var afii hans á
þessum tíma aðeins 1600 mál í
bræðslu og um 300 tunnur af salt-
síld.
Hópferð til Færeyja
17.—21. ágúst
I gær datt bam á öðru ári út um
glugga á 2. hæð hússins að Hverf-
isgötu 74. Þetta var drengur, sem
heitir Einar Agnarsson og er fallið
hátt, þvi að á neðstu hæð hússins
eru verzlanir þar sem hærra er
undir Ioft en i venjulegum ibúðum.
Var faliið úr glugganum niður á
gangstéttina meira en tvær mann-
hæðir.
Einar litli hafði að því ejr blað-
ið fregnaði verið að koma inn í
íbúðina en þá klifrazt upp í opinn
glugga og fallið niður. Það má
ímynda sér, að móðir hans varð
óttalslegin og var barnið flutt til
rannsóknar á slysavarðstofuna.
Þar kom það þó í ljós, a, Einar
litli hafði sloppið einkennilega vel
eftir hið háa fail. Var hann ekki
brotinn. Það sem hefur bjargað
honum var að í gangstéttinni þarna
er mjúk möl eða sandur, ekki búið
að leggja gangstéttina með stein-
hellum.
Santkomulag um EBE-aðild
Breta sfrandar á Frökkum
Á0reiningur innan EBE-ríkjanna
torveldar samkomulag um skil-
yrðin fyrir aðild Bretlands, að
sögn fréítamanna í Briissel, fram-
ar öðru.
Það var fullyrt í gær, að til
snarpra orðahnippinga hefði komið
milli utanríkisráðherra Frakklands
og Belgíu á einkafundi I gær,
kvartaði Spaak utanríkisráðherra
yfir neikvæðri afstöðu Frakk-
lands. I
Að minnsta kosti -Holland og
Luxembourg fylgja Belgíu hér al-
gerlega að málum, og sennilega
myndi ekki miklum erfiðleikum að
ná samkomulagi, ef Frakkar vildu
slaka eitthvað til, en um það allt
óbreytt er gíðast fréttist.
Heath, brezki ráðherrann, aðal-
samningsmaður Breta, fékk í dag '
Sandys ráðherra sér til aðstoðar, \
við samkomulagsumleitanirnar, en j
í dag mun aftur farið að ræða um
útflutning landbúnaðarafurða frá
Kanada, Ástralfu og Nýja Sjá-
lands, en í gær var rætt nokkuð
um útflutning frá samveldislönd-
um Breta i Asíu, þ. e. Pakistan,
Indlandi og Ceylon og talið að ekki
muni torveldt að ná, samkomulagi
um hann.
Flugfélag íslands h.f. efnir tii
hópferðar til Færeyja 17.—20. ág.,
ef næg þátttaka fæst.
Farið verður frá Reykjavík föstu
daginn 17. ágúst kl. 10.00 og lent
á Sörvágsflugvelli um kl. 14.30.
Farþegum er séð fyrir bátsferð til
Tórshavn samdægurs og gistingu
á góðu hóteli í Tórshavn. Þar geta
menn dvalizt eða farið í ýmsar
ferðir eftir vild qm eyjamar, þar
til kl. 12.00 á hádegi á þriðjudag,
21. ágúst, en þá fer áætlunarbát-
urinn „Vesturleið" frá Tórshavn
til Miðvágs og þaðan er stutt ferð
með áætlunarbifreið til Sörvágs.
Síðan verður flogið frá Sörvágs-
flugveili þriðjudaginn 21. ágúst kl.
16.00 og lent í Reykjavík um kl.
19.20.
Þetta verður þriðja flugferðin
til Færeyja á þessu sumri, enda
hafa hinar fyrri tekizt með af-
brigðum vel.
Það var hinn 6. júlí s.l., að Flug-
Krabbaoiein -
Frumh. af bls. 16.
Uppgötvunin virðist einnig geta
haft aðra þýðingu og það er að
eftir að búið er að vinna út efni
krabbameinsins verði hægt að frarn
kvæma miklu auðveldar krabba-
meinsleit og að hægt verði með
blóðprufum að komast að raun
um, hvort krabbamein stafar af
vírusum eða öðrum orsökum.
félag íslands gekkst fyrir fyrstu
flugferðinni frá Islandi til Fbereyja
með ferðamenn og varð hún til
þess að glæða mjög vonir Færey-
inga um að reglubundnar flug-
ferðir komist nú Ioks á milli Fær-
eyja og umheimsins.
Stóloiót»
Framh. af bls. 16.
að miklum mun‘, sagði Thor.
„Við þetta ætti ekki að þurfa að
pússa húsið, mesta lagi að gera
einhverja smá lagfæringu. Turn-
inn verður nokkurs lconar bygg-
ingarkrani, sem iyftir upp þar
I til gerðum steyputunnum, sem
síðan er sturtað úr í mótin. Við
vonumst til að geia steypt upp
þriðjung hverrár hæðar á einum
degi, að væntanlega tekst okkur
i að steypa upp húsið á einni
viku!“ »
Þessi byggingaraðferð mun vera
mikið notuð á Norðurlöndum, sér-
staklega i Danmörku.
íslenzkir aðalverktakar gera nú
tilraun með þessa aðferð á Kapla-
skjólsveginum og hyggjast reisa
þar tvö fjögurra hæða sambýlis-
hús. 1 hvoru húsi munu vera 3
stigagangar, samtals 24 íbúðir f
hvoru húsi. íbúðirnar eru 2 og 3
herbergja.
Ef vel tekzt munu ísl. aðalverk-
takar að sjálfsögðu halda áfram á
sömu braut.