Vísir - 13.08.1962, Síða 8

Vísir - 13.08.1962, Síða 8
8 VISIR 'Mánudagur 13. ágúst 1962. Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjórar; Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjðrnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði. 1 lausasölu 3 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vfsis. — Edda h.f. DRUKKNI AMERÍKANINN Áherzla lögð á austurviðskiptin Hér var í blaðinu á laugardaginn vikið nokkuð að staðreyndum um viðskipti okkar íslendinga við Aust- ur Evrópuríkin. Þar kom fram að við íslendingar göngum lengra á þeirri braut að viðhalda þeim við- skiptum en nokkur önnur þjóð í Vestur-Evrópu. Um 25% af innfluttningi okkar er enn bundinn höftum þpirra vegna, þ.e.a.s. aðeins má flytja vörurnar inn frá Austur-Evrópu. Engin önnur Vestur-Evrópuþjóð hefir enn slík innflutningshöft, nema Finnar á bílum og olíu, enda búa þeir í skugga stórveldisins í austri. Þessi staðreynd sýnir hvílíkar firrur það eru, sem Þjóðviljinn hefir haldið fram að undanförnu að ríkis- stjórnin vinni markvisst að því að eyðileggja austur- viðskiptin. Sannleikurinn er sá að hún gengur allra ríkisstjórna lengst í hinum frjálsa hluta álfunnar í því að skipta við A-Evrópu. Þó er það svo að viðskiptin við þjóðirnar austan járntjalds eru yfirleitt óhagstæðari íslenzkum neyt- endum en ef vörurnar ^væru keyptar frá öðrum lönd- um. Er það alkunna að vörugæðin eru ekki eins mikil, verðið er oft hærra og afgreiðslufrestur furðu langur. Frægt er dæmið um kaupmennina, sem pöntuðu skó- hlífar að hausti en fengu þær ekki frá Tékkóslóvakíu fyrr en um vorið! En slík bágborin þjónusta er ekki eini ásteitingarsteinninn. Verðið á mörgum vörum að austan er allt að 40% hærra en á sambærilegum vörum í Vestur Evrópu og Bandaríkjunum. Orsökin til þess að ríkisstjórnin heldur þessum viðskiptum þó áfram, þrátt fyrir óhagstæð kjör, er einfaldlega sú að í járntjaldslöndunum finnast mark- aðir fyrir íslenzkar sjávarafurðir, sem ekki er að finna annars staðar — enn sem komið er. Okkur er nauðugur einn kostur að halda þessum viðskiptum áfram, jafn- vel þótt við höfum á núverandi samningstímabili átt inni tugmilljóna upphæðir hjá sumum austantjalds löndunum, sökum þess að þau hafa ekki þær vörur « skiptum sem okkur vanhagar um. Enn eitt dæmi um það, að ekki stendur á okkur íslendingum í austurviðskiptununi er við- skiptareikningur okkar og Rússa. Um áramótin höfð* um við keypt af þeim vörur, sem námu að upphæð um 200 millj. króna umfram það sem þeir höfðu bí keypt af okkur. Og nú skuldum við þeim um 85 mi«!i. af sömu orsökum. Sýnir þetta að fremur stendur upp á Rússa að kaupa af okkur, en hið r»agnstæða. 1 kvikmyndinni „79 af stöö- inni“, léku þrír Ameríkumenn, allir af Keflavíkurflugvelli. Einn þeirra er starfandi á sjónvarps- stöðinni og kannast margir við hann, því að hann les oft fréttir í sjónvarpinu á kvöldin. Hann var fenginn til að leika drukkna Ameríkumanninn á veitingahús- inu í fyrstu senu kvikmyndar- innar. Hann nefnist John Tacy og er i flotanum. Hann vakti at- hygli okkar þegar verið var að kvikmynda senuna í Nætur- klúbbnum fyrir nokkru, þvi að hann sýndi öll merki þess að vera reyndur Ieikari. Við tók- um hann tali. — Hefur þú verið leikari áður? — Ég hef fengist allmikið við það. Ég hef þó gætt þess vel )að vera aðeins amatör, en ekki atvinnumaður, þar sem ég er í hernum og má ekki stunda neina atvinnu með því. Ég hef oft Ieikið í Front Street Theatre í Memphis, Tennessee, sem not- ar jöfnum höndum atvinnumenn og amatöra. Það er talið vera eitt bezta leikhús sinnar tegund- ar í Bandaríkjunum. Ég hef auk þess fengist við önnur svið leikhússlífsins, svo sem að mála tjöld og sauma ; þúftipg^, „Bg hef hina mestu unijn, i gí , þe?s,u öllu. Leikari á eftirlaunum. — Hefurðu I hyggju að ger- ast atvinnumaður? — Eftir fá ár hætti ég í flotanum og fer á eftirlaun. Ég verð þá 38 ára, sem er mjög heppilegur aldur til að leika karakter hlutverk. Ég get ekki leikið elskhuga. Til þess þarf stóran brjóstkassa og mjótt mitti og mín líkamsbygging er alveg gagnstæð því. — Hvers kyns hlutverkum hefur þú mest gaman af? — Alls kyns gamanhlutverk- um, öðrum en rjómatertu- komedíu (slapstick). Ég hef til dæmis leikið f A Visit to a Small Planet eftir Gore Vidal. Ég lék þar hershöfðingjann, sem er mjög merkilegur með sig og afar hátíðlegur og veit ekkert um hernað. I Jane, eftir Somerset Maugham, lék ég enskan lávarð, uppblásinn og heimskan. Þessi hlutverk þóttu mér bæði mjög skemmtileg. — Hefurðu leikið í nokkrum söngleik? — Ég hef leikið í Brigadoon, eftir Lerner og Loewe. höfunda My Fair Lady. Þar lék ég föð- urinn, sem verður að bera lát- inn son sinn þvert yfir sviðið. Nú vildi svo til að sonurinr var risastór náungi, mikl" stærri og þyngri en ég, end? sögðu allir: „Þú ert svo drama tískur á svipinn að það er engu líkara en þú þjáist raunveru- lega.“ ___ Hvernig kanntu við að fara úr flotabúningnum í flug- hersbúning til að leika? y. — Þetta er ekki annað en X sviðsbúningur fyrir mér núna. Það breytir engu fyrir mig hver hann er. Einu sinni eða oft. — Hefur þú leikið í kvik- myndum fyrr?. __ Ég hef leikið í nokkrum þjálfunar- og. kennslukvikmynd um fyrir flotann. Það er mjög ólíkt að leika í kvikmyndum og að leika á sviði eða í sjónvarpi. í leikhúsi eða sjónvarpi er hlut- urinn gerður einu sinni og þá verður það ekki aftur tekið. I kvikmyndum, aftur á móti, verður oft að leika sömu sen- una hvað eftir annað og reyna að gera hann eins í hvert skipti. — Við getum tekið sem dæmi senuna sem var tekin í Glaum- um kvöldið Það tók all John Tacy, sem lék drukkna Ameríkumanninn. í um sex tima að gera hana, en hún verður jafnvel ekki nema þrjár mínútur á tjaldinu. — Er erfitt að leika fulla menn? — Það er mjög erfitt. Til- hneigingin er mjög sterk til að yfirleika. Sennilega er það með því vandasamasta sem maður leikur. — Gæti ekki verið heppilegt að vera raunverulega drukk- mn? — Ég held að það væri alveg útilokað. Slikt krefst slíkrar einbeitni og athygli að ekkert má missa sig af hæfileikanum til að einbeita sér. Þá er einpig það að athuga að maður sem raunverulega er drukkinn á sviði, virðist vera að yfirleika. Aðferðin sem venjulega er not- uð, er að ímynda sér að maður jvi i/j V sé fullur og að stramma sig sfð- an af eftir getu. Annars er það mjög sjaldgæft að sjá fulla menn leika vel, jafnvel af fær- ustu leikurum. Skemmtileg tilbreyting. — Hefurðu haft gaman af að leika í þessari mynd? — Þetta hefur verið mjög skemmtileg - tilbreyting frá venjulegu vinnunni. Að vísu hefur safnast fyrir vinna sem ég verð að Ijúka á eftir. Ég tel þetta samt fyllilega þess virði, því að þarna gafst mér færi á að vinna með færum atvinnu- mönnum, bæði leikurunum og kvikmyndatökumönnunum. Þeir eru líka mjög ánægðir, því að þeim hefur aldrei gengið svona vel með kvikmynd. Ein af á- stæðunum fyrir þessari vel- gengni er sú, að þeir hafa notið fyllstu samvinnu 180 þúsund íslendinga. — Getur þú gefið mér nokkra skýringa á því hvers vegna þú hefur áhuga fyrir að leika? — Ég held að I hjarta sínu langi flesta til að vera leikarar. því fylgir frægð, auk þess sem menn verða svolítið illræmdir. í laumi langar flesta til að vera svOlítið illræmdir. Samt er það svo, að ef minnst er á að leika hrista flestir höfuðið og segja: „Þetta gæti ég aldrei gert. Ég myndi aldrei fara að slangra um gólfið í Glaumbæ og þykj- ast vera fullur“. Fólk er svo ákaflega sómakært á yfirborð- inu. Það er alltaf að hugsa um hvað aðrir muni segja um það.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.