Tölvumál - 01.12.1992, Qupperneq 10
Desember 1992
Gagnanetið 1986 - 1991
1400
86 87 88 89 90 91
Árslok
Mynd 1.
vinnslu hjá tölvu- eða
reiknimiðstöð. Þegar
staðarnetin eru á þennan
hátt farin að ná yfir
stærra svæði er farið að
tala um víðnet (WAN).
Upphaflega var um að
ræðasamtengingu innan
borgarogþess vegnavar
einnig notað heitið
borgarsvæðisnet (Met-
ropoiitan area network).
Margar hugmyndir eru
uppi um samtengingu
staðarneta. Ein leið er
að nota leigulínu milli
tveggja staðarneta, sem
hentar sérstaklega vel, ef
langt er á milli þeirra. I
Bandaríkjunum eru ein-
hver dæmi um að not-
aðar hafi verið 45 Mb/s
leigulínur í þessum
tilgangi,en koslnaðurer
ofmikill fyrirallan þorra
fyrirtækja, sem verða að
láta sér nægja 1,5 eða 2
Mb/s línur. Hér á landi
hefur ekkert fyrirtæki
leigulínu á hærri hraða
en 64 Kb/s. Kostnaður
við leigulínurnarverður
að sjálfsögðu meiri eftir
því sem tengja á fleiri
staðarnet saman og eftir
því sem fjarlægðir milli
neta aukast. Við leigulínurnar
eru tengdar LAN-brýr, Internet
beinar eða fjölrásabúnaður.
Þegar haft er í huga, hversu miklir
álagstoppar eru í tölvu-
samskiptum, verður Ijóst að
nýting bandbreiddar á línunum
hlýtur að vera léleg.
Notkun víðneta í stað leigulína
getur stundum leitt til lægri
kostnaðar sérstaklega, þegar
tengja á mörg staðarnet saman.
Kröfurnar, sem gerðar eru lil
víðneta, eru eftirfarandi:
Þau verða að ráða við mjög
breytilegt sendiálag.
Það á að vera hægt að tengja
marga notendur án möguleika
þess að þeir hleri viðskipti
hvors annars.
Netin verða helst að geta
spannað meira en 50 km
Helst á að vera hægt að nota
þær línur, sem til eru í fjar-
skiptakerfinu
Þau eiga að samræmast breið-
bandssamneti, B-ISDN, fram-
tíðarinnar
Gagnaflutningur meö
Ijósleiðara
Þegar FDDI var sett á markaðinn
og fyrirheit voru gefin um 100
Mb/s bitahraða, vaknaði strax
áhugi á því að nota þessa tækni í
víðnetum. í FDDI er hægt flytja
samfasa eða ósamfasa bitastraum.
I samfasa notkun fær h ver notandi
einhverja ámarks bandbreidd til
umráða og það eru sett efstu
mörk á seinkun í netinu. I
ósamfasa notkun er um að ræða
10 - Tölvumál