Tölvumál - 01.12.1992, Síða 12
Desember 1992
bandbreiddinni í þrengri rásirfyrir
mismunandi notkun sendir ATM
jafnlangar gagnablokkir, sem eru
kallaðar sellur, hvenær sem ein-
hver þjónusta á netinu þarf að fá
bandbreidd til umráða.
Tímaraufirnar í ATM eru ólíkt
STM ekki fastar heldur breytast
þær eftir því hver bandbreiddin
er. Hver sella er 53 bæti og er
forskeyti þar af 5 bæti. I for-
skeytinu er merki, sem skilgreinir
þáþjónustu, sem sellunni erætlað
að flytja. Merkið hefur það
hlutverk að binda hverja sellu
við ákveðna sýndarrás eða
sýndarleið og gerir kleyft að
meðhöndla margar sýndarrásir í
einu.
Vandamálið með breytilega
bandbreidd er leyst í ATM með
því að skipta upp hverjum ramma
í sellur og safna síðan sellunum
saman í réttri röð á endastað.
Það er álit margra að ATM muni
geta verið uppistaðan í breið-
bands ISDN framtíðarinnar, en
enn er eftir að hanna ýmsa þætti
þess.
A meðan beðið er eftir ATM eru
nokkursímafyrirtæki að setja upp
annað flutningskerfi, sem nefnist
rammasending (Frame relay).
Þessi aðferð er hálfgerð blanda
annarra aðferða að því leyti að
hún byggist á HDLC (High-Ievel
data link control) ásamt á-
kveðnumeiginleikum X.25 stað-
alsins. Hversendandifærsýndar-
rás alla leiðtil viðtakanda. Frame
relay er talið vera lausn, sem
henti háhraða gagnaflutningi
með háu toppálagi eins og getur
orðið í samtengingu staðarneta
ogvíðneta. Það hefur verið sagt
að rammasendiaðferðin boði
endalokX.25 netanna, vegnaþess
að hún gefi kost á meiri bitahraða,
en franska símastjórnin ætlar t.d.
að brúa bilið yfir í ATM með
því að auka hraðann í X.25
netinu.
Enn ein aðferð til að tengja
saman staðarnet nefnist SMDS
(Switched multimegabit data
service) og er aðallega notuð í
Bandaríkjunum. SMDSerpakka-
skipt háhraðasending. Sam-
skiptareglur SMDS eru í samræmi
við IEEE-802.6 DQDB staðalinn
og veitt er sambærilega þjónusta
við staðarnet samkvæmt IEEE
802 og FDDI. SMDS hefur ekki
alla kosti DQDB t.d. ekki mögu-
leika á sendingum með fastri
seinkun í netinu né heldur sýndar-
rásum. Bitahraði í SMDS er
annað hvort 1,5 eða 45 Mb/s, en
í framtíðinni má búast við 155
Mb/s hraða.
Eftir þessa upptalningu verður
vart dregin önnur ályktun en að
tölvusamskipti séu í örri þróun og
það er greinilega enginn skortur
ámismunandilausnum. Vandinn
er auðvitað sá að engin þeirra er
alfullkomin og val einnar að-
ferðar fullnægir líklegast ekki
óskum allra þeirra, sem á tölvu-
fjarskiptum þurfa að halda. Þar
að auki breytast þarfir mark-
aðarins oft rnjög ört og lausn,
sem þykir henta vel einn daginn,
getur verið úrelt eftir stuttan tíma.
Meira um þróun máia
á íslandi
En snúum aftur til íslands og fram-
vindu gagnaflutnings á undan-
förnum árum. í lok ársins 1988
var ákveðið að auka hámarks-
hraðann í almenna gagnaflutn-
ingsnetinu upp í 64 Kb/s og um
svipað leyti voru boðnar 64 Kb/
s leigulínur innan Reykjavíkur.
Eftir 1990 varð ljóst að það
myndi bráðlega skapast þörf fyrir
nýja flutningsmöguleika með
meiri bitahraða en 64 Kb/s. Eftir
könnun á viðbrögðum notenda
var ákveðið að setja upp nýtt net
í mesta þéttbýlinu með bitahraða
64 og 128 Kb/s og 2 Mb/s. Vegna
hins aukna hraða miðað við
almenna gagnaflutningsnetið
hefur nýja netinu verið gefið
heitiðháhraðanet. Netiðsaman-
stendur af 2 Mb/s línum og
beinum, sem tengja notendur inn
á netið. Mynd 2 sýnir umfang
netsins á þessu stigi og er það nú
fullbyggt miðað við upphaflega
ákvörðun. Það var ekki ætlun
Pósts og síma að gera háhraða-
netið að landsneti svipað og X.25
netið heldur var litið á hið nýja
net sem lausn fyrir stærstu
notendur á sviði gagnaflutnings
og staðsetning stöðva í netinu
valin frá því sjónarmiði.
Gjaldskrá fyrir háhraðanetið er
jafnframt mjög frábrugðin gjald-
skráX.25 netsins. Telcineru stofn-
og afnotagjöld, en ekki um-
ferðargjöld og er því kostnaður
notandans óháður notkun. Þar
sem ekki er litið á háhraðanetið
sem landsnet er einnig mismunur
ákjörum að því leyti að notendur
verða að greiða leigu fyrir línu
til næstu miðstöðvar, en í X.25
netinu eru þessar línur innifaldar
í afnotagjöldum og kostnað þeirra
jafnað á notendur.
Það verður að teljast ókostur
við net af þessu tagi að það er
ekki byggt á alþjóðlegum stöðl-
um, en einungis á útfærslu eins
framleiðanda. Það verður þess
vegna að líkindum ekki hægt að
kaupa búnað frá fleiri fram-
leiðendum.
Póstur og sími telur að með
háhraðanetinu verði hægt að
mæta þörfum stórfyrirtækja fyrir
gagnaflutning á næstu árum.
Stofnunin stendur samt frammi
fyrir því eins og erlend síma-
fyrirtæki að velja sem fram-
12 - Tölvumál