Tölvumál - 01.12.1992, Page 14
Desember 1992
Myndsímar
Magnús Hauksson
"Halló þetta er Jón" er algengt
upphaf símtals. En með tilkomu
nýrrar tækni má búast við
breytingum. Ef sá sem talað er
við í símann sést um leið, þá
getur kynning verið óþörf. Og nú
hillir loksins undir það að
myndsími verði að veruleika.
Hingað til hafa samskipti í
gegnum síma ekki aðeins byggst
á tali heldur einnig hvernig er
talað, hvernig áherslum erháttað
og fleiru. En það hefur vantað þá
vídd sem mál líkamans er. Ef
maður vill segja einhverjum
eitthvað mjög mikilvægt þá vill
maðurgeraþað augliti tilauglitis.
Nýlegar kannanir hafa sýnt að
allt að 80% af þeim áhrifum sem
við höfum á viðmælandann eru
tilkomin með máli líkamans.
13% er hvernig við segjum það
og aðeins 7% hvaða orð eru
notuð.
verið til myndsímar. Ókosturinn
við þá er að þeir eru ekki sam-
hæfðir. Þannig hafa sumir fram-
leiðendur einkasímstöðva boð-
ið sínum viðskiptavinum upp á
myndsíma sem þó virkar aðeins
ef samskonar sími er í hinn
endann. Þeirhafa jafnframt verið
óheyrilegadýrir. í Bandaríkjunum
hefur AT&T byrjað að bjóða
upp á myndsíma (sjá mynd). En
þeir eru ekki samkvæmt neinum
staðli sem aftur þýðir að það
þarf að vera samskonar sími í
hinnendann.Þeirrasímarþarfnast
ekki sérstakrar símalínu né annars.
Aðeins þarf að stinga honum í
samband og þá virkar hann. Hann
vinnur á venjulegum hliðrænum
(analog) línum. Og hann kostar
ekki mjög mikið eða um $ 1500.
Þar að auki vonast þeir lil að
Þetta skýrir væntanlega allan þann
tíma sem við eyðum í það að
fara á milli funda.
Flest viljum við sjá þann sem
við tölum við og þykkar bækur
hafa verið skrifaðar um túlkun
líkamshreyfinga. Með tilkomu
myndsímans verður hægt að
skoða vöru í búðum án þess að
fara í búðina, hönnuðir geta
skipst á myndum um leið og þeir
tala saman. Læknar geta skoðað
sjúkling án þess að koma í heim-
sókn. Svo
Mynd /. Tölva og myndsími í einu tœki
nokkurt skeið
mætti lengi
telja. Síminn
verðurjafnvel
innbyggður í
tölvur og þá
birtist í einu
horni skjásins
mynd af þeim
sem er að
hringja (sjá
mynd 1).
14 - Tölvumál