Tölvumál - 01.12.1992, Side 18
Desember 1992
að takmarka umfangið á harð-
diski og var því ekki um annað
að ræða en að afþjappa gögnun-
iim jafn óðum og birting stendur
yfir og þjappa þeim jafnharðan
aftur þannig að stærðin aukist
ekki á meðan á sýningu stendur.
Þetta þarf svo að gerast nægilega
hratt til að myndin verði eðlileg
á skjá, um 15 rammar á sekúndu.
QuickTime 1.5 geturreyndarsýnt
allt að 30 ramma á sekúndu á
Quadra tölvu. Sérfræðingar
Apple hafa hannað þrjú mismun-
andi forrit til gagnaþjöppunar, eitt
fyrir ljósmyndir (Photo Compres-
sor) sem þjappar gögnum í allt að
25:1, annað fyrir teiknimyndir
(Animation Compressor) og hið
þriðja fyrir hreyfimyndir (Video
Compressor). Hreyfimynda-
þjappan var verulegur áfangi fyrir
tæknimenn Apple því hún gerði
kleift að birta hreyfimyndir á skjá
í rauntíma (real-time) af CD-diski
eða harðdiski án nokkurs auka-
búnaðar. Þjöppunin getur verið
á milli 5:1 og 25:1 sem þýðir að
30 sekúndna löng mynd tekur um
1 Mb á diski. Aðrir helstu hlutar
QuickTimeeru "MovieToolbox",
áhöldin sem nauðsynleg eru fyrir
framleiðendur hugbúnaðar,
"Image Compression Manager”
sem sér um samskiptin á milli
þjöppunar, forritara og kerfis og
"Component Manager" sem sér
um samskipti við ýmsa aukahluti,
svo sem "video grabber", mynd-
bandstæki o.fl. QuickTime fæst
nú einnig fyrir Windows og er
það von Apple að QuickTime
verði ráðandi staðall í fram-
tíðinni.
QuickTime og
margmiðlun
QuickTime er hægt að nota eitt
og sér með því að nota "Movie
Player” forritið eða það er hægt
að nota afrita og líma til að færa
QuickTime gögn í önnur forrit.
Það er til dæmis hægt að líma
hreyfimynd inn í Word skjal eða
senda yfir net með MS Mail. Þá
birtist notendaásjóna QuickTime
og hann getur horft á myndina
með því að smella á "Play".
Þannig geta fyrirtæki dreift
upplýsingum eins og t.d. sjón-
varpsauglýsingum eðaþessháttar
án fyrirhafnar.
Þeir sem vinna að kennslu eða
kynningarstarfsemi hafa ef til vill
mestan hag af QuickTime og
margmiðlun. QuickTime
nýtist mjög vel með hugbún-
aði eins og Aldus Persuasion.
Hefðbundin notkun Persu-
asion er þannig að búnar eru
til glærur sem hægt er að
sýna á skjá eða með skjá-
varpa uppá tjald. Með Quick-
Time má svo auðga mjög
framsetningu efnis með því
að bæta við hreyfimyndum
og hljóðum. Geisladiskareru
vegna mikils geymslurýmis
mjög heppilegir fyrir fram-
setningu efnis með marg-
miðlun enda hafa þegar kom-
ið á markað margir diskar
sem nota margmiðlun og
Framtíðin
Af framtíðaráformum Apple er
það að segja að fyrirtækið
hyggst framleiða skjái með inn-
byggðum hátölurum og hljóð-
nema og jafnvel myndavél. Hug-
búnaðarsérfræðingar Apple
vinna að Caspar sem bæði talar
og hlustar og skilur mælt mál. Þá
er Newton á næstu grösum en
það er lófatölva þar sem not-
andinn skrifar á skjáinn með þar
t il gerðum penna og brey tist letrið
þá jafnóðum í tölvutækt letur.
Auk þessa hefur Apple í samvinnu
við önnur fyrirtæki lagt grund-
völlinn að öðrum nýjungum t.d
má nefna Photo CD frá Kodak
sem gerir kleift að færa fjöl-
skyldumyndirnar inn á geisladisk
og þaðan í Macintosh-tölvu.
Margmiðlun er aðeins eitt skref
tölvutækninnar í átt til fram-
tíðarinnar. Með aukinni vinnslu-
getu og hraðari og stærri
geymslumiðlum er allt hægt.
Margmiðlun fjallar um það
hverning tölvan getur birt
notandanum efnið. Ef til vill mun
næsta stóra skrefið taka á því
hvernig notandinn kemur efni til
tölvunnar.
QuickTime
wUAt?
MSJ QuickTime.
m>
<i|i»i|a
18 - Tölvumál