Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 21
Desember 1992
þeirri stefnumörkun var ákveðið
að beina uppbygginu töl vumála í
farveg "opinna kerfa", þ.e. að
fara eftir opinberum stöðlum eftir
því sem mögulegt væri. Eftir
þessari stefnu hefur verið farið í
rnegin dráttum þótt hún hafi verið
endurskoðuð eftir því sem
forsendur breyttust.
Meginþættir tæknistefnu spari-
sjóðanna eru:
* Sparisjóðirnir byggi tölvu-
kerfi sín á nettengdum ein-
menningstölvum.
* Stefnt verði að dreifðri
gagnavinnslu og lausnum sem
byggjast á biðlara og miðlara.
* Samskiptanet sparisjóðanna
verði sjálfstætt og noti TCP/
IP samskiptahátt þar til OSI
verður raunhæft.
* Gagnamiðlarar verði vensl-
aðir með SQL aðgangi.
* Biðlarar og önnur notenda-
forrit noti Windows notenda-
skil.
* Tekið verði í notkun 4. kyn-
slóðarmál við forritun en C/
C++ haft við höndina.
* Lögð verði áherslaáaðfylgja
formlegum aðferðunt íkerfis-
gerð, vandaðri verkefna-
stjórnun og gæðaeftirliti.
Vinnuumhverfi
I því flókna og krefjandi vinnu-
umhverfi sem ég lýsti hér að
framan verður starfsfólk að hafa
aðgang að upplýsingum og geta
nýtt sér reynslu og þekkingu
annarra. Kröfur verða gerðar
unt náið samstarf og miðlun
upplýsinga, þekkingarkerfi munu
verða ein mikilvægasta fjár-
festing hverrar stofnunar þar sem
reynt verður að halda til haga
reynslu og þekkingu reyndra
starfsmanna og stytta aðlögunar-
tíma nýrra starfsmanna.
Hvernig sjáum við þá fyrir okkur
vinnustöð starfsmanna?
* Afgreiðslukerfi fyrir alla
formlega afgreiðslu.
* Ráðgjafakerfi fyrir við-
skiptavini munu líklegaverða
eitt þýðingarmesta sam-
keppnistækið. Ráðgjöf og
þjónusta ýmiss konar verða
stór þáttur í tekjuöflun
bankastofnana.
* Upplýsingar urn viðskipti
viðkomandi viðskiptavinartil
að meta mikilvægi hans og
möguleg víðtækari viðskipti.
* Yfirlit yfir afkomu spari-
sjóðsins og leitni, þannig að
grípa megi til viðeigandi
ráðstafana í tíma.
* Ymis upplýsingasöfn sem
komið hefur verið upp innan
sparisjóðsins eða sem sótteru
annað, t.d. til Seðlabankans,
Hagstofunnar eða Reuters
* Aðgangur að tölvukerfum
Reiknistofu bankanna, annað
hvort með biðlara forriti eða
skjáhermun.
* Dagbækur með tímasamræm-
ingu.
* Verk- og tímaáætlanir.
* Tölvupóstur innan spari-
sjóðanna og út á við t.d. með
X.400
* Verkefnalistar, ásamt tíma-
áætlunum, til að samræma
verkefni, tryggja að þau verði
unnin og koma í veg fyrir að
þau gleymist.
* Ráðstefnukerfi til að draga úr
ótölulegum, gagnslitlum og
tímafrekum fundum.
* Handbækur til að allir skilji á
sama hátt hvað á að gera og
hvernig.
* Ritvinnsla til almennra bréfa-
skrifta en auk þess samtengd
við önnur kerfi.
* Töflureiknar og önnur sam-
bærileg kerfi til að greina
tölulegar upplýsingar og setja
fram á skilmerkilegan hátt.
* Hugmyndabankartilaðvirkja
hugmyndaflugognýtareynslu
þeirra sem standa í eldlínunni.
Samtenging
Þau kerfi sem ég hef hér að framan
nefnt byggja meira eða minna á
sameiginlegum gögnunt eða sam-
skiptum við samstarfsfólk eða
viðskiptavini. Hraði og öryggi,
þjónusta og þekking, verða
lykilorð íþjónustustofnunum eins
og sparisjóðunum. Sparisjóð-
irnir eru hver um sig smáir þótt
knáir séu. Þeirn er hins vegar
alveg ljóst að þeir verða að vinna
mjög náið saman til að standast
samkeppni við bankana. Víð-
tengt tölvunet sparisjóðanna
verður því ekki einungis aflvaki
framfara heldur nauðsynleg
forsenda fyrir tilvist þeirra.
Ég hef þegar skýrt frá því að
víðneti sparisjóðanna verður
ekki stýrt frá Reiknistofu bank-
anna. Reiknistofan verður sann-
anlega mjög þýðingarmikill
hlekkur í upplýsinganeti þeirra
en hvorki hjarta þess né heili.
Háhraðanet Pósts og síma hefur
þegar verið tekið í notkun og
lofar út af fyrir sig mjög góðu
fyrir háhraða samskipti í dreifðri
vinnslu. Það er þó ekki fullnæg-
jandi lausn fyrir allar tengingar
rnilli sparisjóðanna, það er of
dýrt fyrir flesta þeirra og óþarflega
afkastamikið. Minni afgreiðslu-
staðir munu annað hvort nota
leigulínur með 9600 eða 19200
baud hraða og enn aðrir munu
nýta sér Gagnanet Pósts og síma
með föstum línum eða jafnvel
upphringingu.
Eru kannski aðrar leiðir hag-
kvæmari eða eðlilegri fyrir víð-
net sparisjóðanna. Er það víst
að viðskiptaupplýsingar spari-
21 - Tölvumál