Tölvumál - 01.12.1992, Side 27

Tölvumál - 01.12.1992, Side 27
Desember 1992 útgáfubreytingar að ræða í SNA frá þessum tíma, þá hefur ýmsum nýjungum veriðbætt við. Eftirlit með SNA neti var komið á 1979, með ýmsum sértækum hug- búnaði (NPDA, LPDA og NLDM), þó fyrsta brumið í neteftirliti hafi ef til vill sést 1977. Öflugum stoðum var síðan skotið undir neteftirlit árið 1983 með tilkomu NMVT í SNA (Network Management Vector Transport). Opnað var fyrir forritasamskipti með APPC (Advanced Program to Program Communication) árið 1983 (LU6.2 og T2.1 node komu til sögunnar). Árið 1984 var síðan opnað fyrir samskipti milli SNA neta, með SNI (Systems Network Interconnection), sem notað er t.d. í dag milli Skýrr og Reikni- stofu Bankanna. Árið 1986 var tókhringur felldur inn í SNA nethögunina og neteftirlitið var komið í endanlega útfærslu með tilkomu NetView (eldri sértæk verkfæri runnu saman). Mynd 1 sýnir einingar í SNA víðneti Skýrr. I SNA neti er talað um raunlægar (Physical Unit eða PU) og röklægar (Logical Unit eða LU) einingar af nokkrum gerðum. Þannig kallast móður- tölva PU5, framtölva PU4 og skjá- stýritæki PU2. Prentarar, skjáir og forrit eru röklægar einingar. Prentarar eru LU1 og LU3, skjáir LU2 og forrit eru LU6.2. Myndin sýnir fjölda slíkra fyrirbæra hjá Skýrr. I umræðu um tölvumál og töl vuvæðingu er stór- tölvuumhverfi gjarnan líkt við risaeðlur nútím- ans. Þessi samlíking er að ýmsu leyti góð. Stórtölvuumhverfið er jú stórt í sniðurn og svifaseint þegar kemur að nýjungum. Grunn- urinn í hönnun SNA byggir á gamalli tækni, sem er sex eða sjö árum eldri en IBM einmenn- ingstölvan og 10 árum eldri en staðarnetið (SNA er aftan úr grárri tækniforneskju!). í þessari samlíkingu við risaeðlur er þó mikil- vægt að hafa í huga að risaeðlur fortíðarinnar hurfu ekki af yfirborði jarðaráeinni nóttu. Eins verður það með risa- eðlur nútímans, þær munu ekki hverfa af sjónarsviðinu á næstu árum. Hlutverk þeirra munhins vegarbreytast, en þaðeralltönnursaga. Mynd1. 27 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.