Tölvumál - 01.12.1992, Síða 28
Desember 1992
Tilkoma staðarneta
Með tilkomu einmenningstölv-
unnar og síðar staðarneta (sem
rekja rná til ársins 1984 þegar
MS-LAN kom fram) breyttust
verulega forsendur fyrir allri
tölvuvæðingu. Menn voru ekki
lengur alfarið háðir skynlausum
skjám sem tengdust móður-
tölvum. Vandamáliðfyriráhuga-
sama notendur var þó það að
SNA gat ekki á nokkurn hátt nýtt
sér slíkar nýjungar. SNA og
staðarnet eru tveir ólíkir heimar,
sem tala sitthvort málið. Þessir
tveir heimar voru felldir sarnan
með því að ET og staðarnetum
var kennt að tala mál SNA heims-
ins. Þeir sem vildu nýta sér kosti
ET tengdu þær við SNA
skjástýritæki og skjáhermihug-
búnaður sá til þess að ET litu út
eins og skynlausir skjáir. Þeir
sem nýttu sér staðarnet tengdu
þær við SNA heiminn með þar
til gerðum gáttum, sem herma
eftir SNA skjástýritækjum. Frá
SNA umhverfinu séð er ekki
munur á raunverulegu stýritæki
og staðarneti með gátt. Hins
vegar er munur á þessu tvennu
hvað eftirlit varðarþarsem stað-
ametin eru (flest) ósýnileg frá
NetView. Slíkt skiptir að sjálf-
sögðu máli þegarkemur að þjón-
ustu við aðila sem tengjast SNA
neti. Sáveggursemermilli SNA
og staðarneta kemur í veg fyrir
samfellt eftirlit og þar með þjón-
ustu alla leið að tæki notandans.
Hér á landi varð þróunin í sam-
ræmi við það sem á undan greinir.
Fjölmargir viðskiptavinir Skýrr
nýttu sér einmenningstölvur í
stað skynlausra skjáa í tengingum
við skjástýritæki og staðarnetum
hefur fjölgað jafnt og þétt hin
síðari ár.
Þessi þróun hefur valdið því að
ósamfella í eftirliti og þjónustu
hefur orðið gagnvart æ fleiri
viðskiptavinum Skýrr. Með
NetView hefur Skýrr verið mögu-
legt að hafa eftirlit og greina
vandamál að gáttunr þeirra við-
skiptavina sem komið hafa upp
staðarnetum hjá sér. Vandamála-
greining á staðarnetunum sjálfum
hefur hins vegar verið í höndum
eiganda eða þjónustuaðila. Slík
ósamfella getur og hefur valdið
töfum í vandamálagreiningu og
þar með óþarfa óþægindum fyrir
alla aðila.
Önnur afleiðing þessarar þróunar
er að viðskiptavinir Skýrr hafa
þurft að fjárfesta í gáttarbúnaði.
Slíkur búnaður fæst í ýmsum
stærðum, t.d. 8, 16, 32, 64, 128
eða 254 setur. Því er oft unr nokkra
yfirfjárfestingu að ræða, þar sem
nýtingin getur verið allt niður í
rúm 50% (t.d. þarf aðili sem notar
129 setur að kaupa gátt með 254
setum).
Pörf á breytingum
Segja má að þrjár megin ástæður
hafi verið lagðar til grundvallar
þegar tekin var sú ákvörðun að
breyta nethögun Skýrr.
í fyrsta lagi var tal ið nauðsy nlegt
að komast fyrir þá ósamfellu sem
er í eftirliti og þjónustu milli SNA
umhverfis og staðarneta. Fyrir
Skýrrermikilvægt að getaþjónað
viðskiptavinum sínum alla leið.
1 öðru lagi var lagt til grundvallar
að með því að bjóða gáttar-
þjónustu innan veggja Skýrr,
mætti samnýta gáttarbúnað og
þar með ná fram hagkvæmari
gáttun.
Og í þriðja lagi var fyrirhuguð
þróun í biðlara/miðlara vinnslu
milli MVS og annara stýrikerfa
lögð til grundvallar. Slík vinnsla
mun fara fram með SNA LU6.2
og TCP/IP samskiptum.
Þegar þessi umræða var í gangi
hjá Skýrr (lok árs 1991) kynnti
Póstur og sími hugmyndir sínar
um að koma upp fjölsamskipta-
máta háhraðaneti. Það var ná-
kvæmlega sú lausn sem Skýrr
voru að leita eftir, opin fjölsam-
skiptamáta netmæna með næga
bandbreidd. Hér skal það haft í
huga að fjarskiptalögin hindra
að aðrir en Póstur og sími geti
komið upp slíku neti hér á landi.
Alnet Skýrr
Niðurstaðan var því eins og sést
á mynd 2. I þessar nethögun
renna saman SNA víðnet og fjar-
tengd staðarnet í eina heild, sem
hægt er að þjóna og hafa eftirlit
með fráeinum stað. Þettakjósum
við að kalla alnet. Alnetið er
opið net í þeim skilningi að hægt
er að flytja nánast hvað sam-
skiptahætti sem er yfir það.
MikilvægurhlutiínethögunSkýrr
er neteftirlit. í SNA hlutanum er
NetView undir MVS til staðar,
sem er mjög öflugt og þróað eftir-
litskerfi. Gengið var út frá því í
upphafi að sambærilegt kerfi yrði
til staðar fyrirþann hluta alnetsins
sem NetView sér ekki. Slík kerfi
byggja á SNMP uppsprettum
(Simple Network
Management Protocol), en SNMP
er fylgifiskur TCP/IP. í framtíð-
inni munu slík kerfi nota CMIP
(Common Management Infor-
mation Protocol), sem er ISO
afkvæmi. Eftirlitið í alnetinu
verður því tvíhöfða í upphafi.
NetView undir MVS mun vaka
yfirSNAhlutanum og OpenView
frá HP, sem keyrir á HP9000/720
vél, mun vakta hinn hlutann
(réttara sagl þau tæki sem hafa
SNMP uppsprettur).
28 - Tölvumál