Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1992, Qupperneq 29

Tölvumál - 01.12.1992, Qupperneq 29
Desember 1992 Reynslan af háhraöa- neti Pósts og síma Á svipuðum tíma og breytt nethögun Skýrr lá fy rir stóðu fyrir dy rum breytingar á tölvuvæðingu í Arnarhváli. Framsýnir menn þar ábæ fengust til að gera tilraun á tengingu til Skýrr í gegnum háhraðanet Pósts og síma. Til- raunareksturháhraðanetsinshófst um miðjan febrúar og varð að samkomulagi við Póst og síma að Arnarhváll og Skýrr tengdust þá þegar inn. I Arnarhváli er Novell Netware netþjónn, sem þjónar bæði IBM samhæfðum og Macintosh vélum, og hjá Skýrr var sett upp Novell SAA gátt. Samskiptin milli Skýrr og Arnar- hváls yfir háhraðanetið er því bæði Novell IPX og AppleTalk. Þessi tilraunatenging stóð yfir í rúma þrjá mánuði og kom ekkert fram sem veikti tiltrú manna á þessari tækni. Niðurstaðan varð því sú að ráðamenn í Arnarhváli ákváðu að tengjast þannig til frambúðar og hefur sú tenging verið í formlegum rekstri frá 1. júní síðastliðnum (1992). I lok júní tengdust síðan fjórar sýsluskrifstofur nreð þessum hætti, Borgarnes, Selfoss, Akur- eyri og Reykjavík. Á þessum stöðum er Lan Manager net. Hjá Skýrr var komið upp DCA Select gátt. Samskiptin þar á milli eru TCP/IP (sem er móðurmál háhraðanetsins). Að auki tengd- ust nokkrar Macintosh vélar inn á Novell SAA gátt hjá Skýrr. Nokkrar rekstrartruflanir hafa verið á þessum netunr en þær tengjast þó á engan hátt háhraða- netinu. Rekstraröryggi háhraðanetsins hefurverið innan eðlilegramarka (hvað sem það nú þýðir). Nokkr- um sinnum hefur það komið fyrir að beinar í netmænu hafa lagst í dvala. Þannig hefur beinir á Akur- eyri líklega sofnað í tvígang og beinir í Landsímahúsi sennilega í þrígang. Ekki þekki ég ástæður þess að þetta hefur komið upp. Starfsmenn Pósts og síma hafa í öllum tilvikum brugðist skjótt við og náð að vekja beinana fljótt til lífsins aftur. Ofrágegnin mál er snúa að háhraðanetinu eru þessi: - Koma þarf upp 24 tíma þjón- ustu við netið. Skýrr bjóða upp á þjónustu 24 tíma sólar- hrings. Það er eðlileg krafa að netmænan sem viðskipta- vinir nota til að nálgast Skýrr hafi því sambærilega þjónustu. - Samræmingþjónustu-ognot- endaheita á staðarnetum, sem tengjastháhraðanetinu. Með þjónustuheitum erátt við nöfn á netþjónum. Það þarf að tryggja það að sama heitið sé ekki notað á tveimur (eða fleiri) netþjónum. Jafnvel þótt þeir tilheyri ekki sama sýndar- netinu í háhraðanetinu í dag (aðgangslistar í beinum ráða því hver sér hvað, þ.e. hverjir tilheyra sama sýndarneti). Á sama hátt þarf að samræma notendaheiti til að tryggja að tveir (eða fleiri) hafi ekki sama h e i t i ð. A ð - gangsstýringar inn á t.d. Novell eðaLanManager netþjóna ráðast afnotendaheitinu einu. Ekki er gerður greinar- munur á því hvaðan viðkorn- andi kemur, þ.e. frá hvaða svæði eða þjóni. Ekki er Ijóst hver á að vinna slíka sam- ræmingarvinnu? Póstur og sími, sem rekstraraðilar háhraðanets, eða núverandi notendur háhraðanetsins? Verði þetta ekki gert þá bitnar þetta jú fyrst og fremst á notendum netsins. Svartími í Alneti Skýrr Eitt af því sem þjónusta Skýrr snýst um er svartími. Fyrir not- anda er svartími aðeins einn tími. Nefnilega sá tími sem líður frá því slegið er á færsluhnapp og þar til skjámyndin breytist (svar berst). Frá Skýrr séð má skipta þessum tíma í tvo hluta. Annars vegar svartíma í móðurtölvu, sem er sá tími sem tölvan er að fram- kværna umbeðna aðgerð eða aðgerðir. Hins vegarsátímisem það tekur netið að flytja boðin frá sendanda og svarið til baka, en það köllum við netsvartíma. Allir viðskiptavinir Skýrr sitja við sama borð hvað móður- tölvusvartíma varðar. Netsvar- tíminn ræðst hins vegar af því hvernig tengingum til Skýrr er háttað. I töflu I má sjá meðal netsvartíma á dagtíma (8:00-17:00) í sept- ember 1992. / TAFLA 1 - Svartími í alneti Skýrr Staöarnet Skýrr 0.3 sek. Háhraðanet TCP/IP 0.7 sek. IPX, Appletalk 0.8 sek. SDLC 56 Kbita 0.7 sek. X.25 (PVC) 1.3 sek. SDLC 9600 1.5 sek. SDLC 4800 2.1 sek. 29 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.