Tölvumál - 01.12.1992, Page 33
Desember 1992
S íðustu ár hefur tjarkennsla aukist
á ýmsum námsbrautum Kennara-
háskólans. Slíkurn kennsluháttum
hefur verið beitt í mismiklum
mæli í ýmiss konar viðbótar- og
framhaldsnámi kennara og skóla-
stjórnenda, endurmenntun og
kennaranámi fyrir leiðbeinendur
í grunnskólum, s.k. réttindanámi.
Fjarkennslan hefur aðallega
verið útfærð sem bréfaskóli í
bland við hefðbundin námskeið
og starf í e.k. útibúum stofnunar-
innar víðsvegar um landið. A
síðasta áratug hefur þetta bland-
aða kennsluform verið þróað
nokkuð og fest í sessi. Samtímis
hefur dýrmæt reynsla safnast
rneðal starfsmanna skólans um
fjarkennslu og fjarnám. Sú til-
högun sem þróasl hefur er í góðu
samræmi við íslenskan veruleika
og tekur mið af þörfum og að-
stæðum kennara og kennaraefna
ekki síður en tæknilegum og fjár-
hagslegum möguleikum Kenn-
araháskólans.
Skipan almenns
kennaranáms í
farskólanum
Nú er í undirbúningi stærsta
verkefni á þessu sviði til þessa;
almennt kennaranámi til B.Ed.
gráðu sem boðið verður í tjar-
kennslu. Við undirbúning hefur
verið haft náið samráð við
kennarasamtök og fræðslustjóra.
Námið var kynnt ítarlega víðs-
vegar um landið í maímánuði
(1992). Umsóknarfrestur rann út
15. september s.l. 194 umsóknir
bárust (170 konur, 24 karlar). 60
umsækjendur allstaðar að af
landinu hafa nú verið valdir til
að hefja námið.
Eins og áður sagði hefst námið
í ársbyrjun 1993 og mun ljúka
með brautskráningu haustið
1996. Námið verður skipulagt
sem blanda af stuttum námskeið-
um og bréfaskóla, þar sem tölvu-
samskipti urn Islenskamenntanet-
ið verða nýtt í námi og kennslu.
Inntökuskilyrði í hið almenna
kennaranám í farskólanum eru þau
sömu og gilt hafa, þ.e. stúdents-
próf eða önnur sambærileg
menntun við lok framhalds-
skólastigs.
Námsbraut farskólans byggir á
námskrá fyrir almennt kennara-
nám við KHI. Auðvitað hefði
verið freistandi að nýta þetta lag
til að breyta ýmsum áherslum í
hefðbundnu kennaranámi, en til
að tryggja að þessi fjarkennslu-
braut verði álitin jafngild þeirri
staðbundnu sem fyrir er var
ákveðið að hvika sem minnst
frá þeirri kennsluskrá sem í gildi
er fyrir staðbundið nám í KHÍ.
Kennd verða sömu námskeið og
í staðbundna náminu en þeirn
snúið í fjarkennsluform. Náms-
kröfur verða þær sömu og gilda í
staðbundna náminu og námsmat
verður með sama hætti. Gert er
ráð fyrir að kennaraefnin ljúki
að jafnaði 24 einingum á ári,
sem skiptast á þrjár 8 eininga
lotur (vor-sumar-haust).
Eins og áður sagði verður beitt
blönduðum kennsluháttum á
þessari nýju námsbraut. Hluti
kennslunnar fer fram á stuttum
viðverunámskeiðum tvisvar á ári
í Reykjavík eða í útibúum annars
staðar, en stærstur hluti verður
skipulagður í fjarkennslu, þar sem
námið byggist á sjálfstæðri
námsvinnu kennaraefna undir
leiðsögn. Kennt verður á stuttum
námskeiðum með hefðbundnum
hætti, notaðir kostir bréfanáms
og símtala og nýttir möguleikar í
upplýsingatækni, s.s. samskipti
um tölvunet, t.d milli kennara og
nema eða innan námshóps.
Kennaraháskólinn mun eftir því
sem kostur er tryggja nemum
aðgang að Islenska menntanet-
inu, m.a útstöðvum í skólum
landsins, og sjá þeinr fyrir leið-
sögn við notkun þess. Mun þá
fyrir alvöru reyna á aðgengi al-
mennings hérlendis að víðnetum.
Auk þessa gefur farskólinn tilefni
til að huga að notagildi fleiri
miðla í kennslu og námi, s.s.
myndbanda og skólaútvarps.
Myndsendingar um víðnet virð-
ast einnig spennandi kostur í
framhaldi af því sem nú er á
döfinni í skólunum; að ekki sé
minnst á kosti sem margmiðlun
(multimedia) skapar.
Námskeið farskólans verða hald-
in í 1-2 vikur í byrjun janúar ár
hvert og 3-6 vikur utan reglulegs
skólaárs í 4 sumur. Þar verður
lögð áhersla á að ljúka námsþátt-
um sem krefjast viðveru nerna og
kennara, en einnig verður lagt
inn námsefni til frekari úrvinnslu
í fjamámi. Sumir námsþættir,
einkunr þeir sem lúla að hagnýt-
um verkefnum á vettvangi skóla-
starfs, geta verið að öllu leyti
með fjarkennslusniði. Sérstök
áhersla verður lögð á að styðja
kennaraefnin í sjálfsnámi sínu.
Til þess og einnig lil að leggja
inn nýtt efni verður, eftir því sem
henta þykir, notast við sínra og
bréfapóst og tölvusamskipti.
Fjarkennsluhættir
Fjarkennslan á þessari námsbraut
byggir að stofni til á aðferðum
bréfaskóla. Auk bréfasamskipta
verður gert ráð fyrir leiðsögn í
símaog í tölvupósti. Einnig munu
kennarar heimsækja kennaraefni
eftir því sem tilefni gefast og
aðstæður leyfa.
Kjarni kennslunnar mun birtast í
bréfum. Slík bréf geta verið af
33 - Tölvumál