Tölvumál - 01.12.1992, Page 34

Tölvumál - 01.12.1992, Page 34
Desember 1992 ýmsu tagi: Inngangsbréf og kennslubréf eru venjulega send öllum nemendahópnum og leggja grunn að sjálfstæðu námi. Slíkt nám er í eðli sínu einstaklings- bundið, en eðlilegt og æskilegt er að nemar hafi samband við kennara og aðra nemendur til að ræða námsefnið og verkefnin, fá nánari skýringar og ný sjónarhorn á viðfangsefni námsins. í þessu samhengi sendakennarareinstöku nemum leiðsagnarbréf, þar sem þeir bregðast við spurningum og vandamálum sem borin eru undir þá. Loks senda kennarar áminn- ingarbréf ef einstakir nemar leysa verkefni ekki á viðunandi hátt eða virða ekki tímamörk. Þar er bent á vankanta og leitað leiða út úr vanda. Auk bréfaskrifta verður notast við ýmsa aðra miðla. Kennarar munu hafa fasta viðtalstíma með- an á námskeiðinu stendur. Þar geta nemar rætt við kennara í síma um námskeiðið, námsefnið og verkefnin og borið undir þá hugmyndir, vafaatriði o.fl. Náms- brautin mun hafa símsvara, þar sent tekið verður á móti spurn- ingum og öðrurn erindum utan fastra viðtalstíma. Leitast verður við að nýta sam- skipti um víðnet, sem virðist skapa ýmsa kosti, t.d. um boð- skipti milli nema og kennara og á milli nema innbyrðis3). Slík sam- skipti eru mun hraðvirkari en venjulegur bréfapóstur. Tölvu- samskipti hafa þann kost umfram símtöl, að "viðmælendur" þurfa ekki að sitja samtímis við tækin. Einnigmásetjaupps.k. tölvuþing um einstök námskeið eða námsþætti. Slík tölvuþing geta verið einskorðuð við tiltekinn nemendahóp eða opin öllum þátttakendum á námsbrautinni, nemum og kennurum; eðajafnvel opin öllum notendum tölvu- netsins. Kostir tölvuþinga liggja m.a. í því að þátttakendur eru ekki neyddir til að bregðast jafnharðan við umræðunni, eins og á hefðbundnum ráðstefnum, símafundum eða sjónvarps- ráðstefnum, heldur gefst þeim tóm til að velta innleggi sínu fyrir sér og íhuga það áður en þeir sleppa því lausu í umræðuna. Víðnet veitir auk þess nemum aðgang að ýmsum tölvutengdum gagnabrunnum, innanlands og erlendis. Nemar geta t.d. komist í samband við Gegni, sainskrá Landsbókasafns og Háskóla- bókasafns; Eric, bandarískan gagnabrunn um uppeldisfræði; eða hafa beint samband t.d. við starfslið bókasafns KHI um tölvunetið. Þá eru á Islenska menntanetinu stöðug eða tíma- bundin tölvuþing, innlend og erlend, um hin aðskiljanlegustu efni, sem nemarnir geta fylgst með eða tekið þátt í. Notkun víöneta í kennaranámi I Tölvumálum haustið 1990 er m.a. varpað upp spurningunni, hvort ný tækni verði aflgjafi grundvallarbreytinga í mennta- málum eða e.t.v. síðasta vígi þeirra sem verjast breytingum4). Sú spurning rímar vel við yfirskrift þessarar ráðstefnu. Ymsar hugmyndir eru sífellt á lofti um notagildi tölvunnar í skólastarfi. Þar má t.a.m. greina hugmyndir um tölvuna sem ígildi gamaldags kennara, þ.e. þess sem situr inni með alla þekkinguna. Suinir vildu jafnvel telja eftir- sóknarvert að nemendur lærðu að hugsa eins og tölva. Þar má hins vegar greina hugmyndir, sem mér eru hugstæðari, um tölvuna sem verkfæri, t.d. samskipta- miðil. Ihaldssöm öfl ríkja í menntakerf- inu og auðvelt er reyndar að skilja hvernig glannalegar yfir- lýsingar um að tölvutæknin skapi forsendur til að gjörbreyta ekki einungis starfsháttum í mennta- kerfinu, heldur einnig viðfangs- efnum náms og kennslu, skapi tortryggni gagnvart tölvunum og tækninni sem þeim fylgir. Eins er oft nauðsynlegt að minna á að tækni, eins og sú sem tölvunet hvílir á, er ekki markmið í sjálfu sér, heldur tæki til að vinna tiltekin verk. Ljóst er að KHÍ fetar varfærnis- lega inn á svið tölvuvæðingar og töl vusamskipta (of varfærnislega munu rnargir segja). Þau skref eru þó væntanlega írétta átt. KHÍ 3) Sjá t.d. 1) Anna Kristjánsdóttir: Samskipti um tölvunet, í Fjarkennsla og fjarkennsluaðferðir op.cit. 2) Kaye, A.:Computer-mediated communication and Distance Education, í R. Mason & A. Kaye (eds.): Mindweave; Communication, Computers and Distance Education (Oxford Pergamon Press, 1989). 3) Konttinen, R. & Sajavaara, K.: Compuler-mediated Communication in Higher Education. Towards an EleclronicCampus. (Fjölrit;HáskólinníJyvaskylaa, 1992). 4)Paulsen, M.F. & Rekkedal, T.:Computer Conferencing; A breakthrough in distance learning, or just another technological gadget?, í Sewart & Daniel: Developing Distance Education. ICDE. Oslo, 1988. 4) Anna Kristjánsdóttir: World Conference on Computers in Education 1990. Þarsem réttsælis varrangsælis. Tölvumál, september 1990, bls. 6. 34 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.