Tölvumál - 01.12.1992, Side 35
Desember 1992
Hvað er þetta MÖDD?
Félag áhugamanna um MUD
The Village Church. You are in
the village church... There are
three obvious exits: north, south
and down
Hvað er að gerast? Þú ert staddur
i miðjum þeim heimi er gengið
hefur undir nafninu MUD (Multi
User Dungeon), sem þýða mætti
sem fjölnotendadýflissa.
Margir kannast við textaævintýri
þar sem hægt er að ferðast um og
nota skipanir svo sem ‘north’,
’look’o.s.frv. Þessi heimurerein
öflugasta útfærslan á slíkum leikj-
um. Helsti munurinn á MUD og
fyrrnefndum ævintýrum er sá að
þarna er unt að ræða leik sem
spilaður er yfir Internet og geta
því allir þeir er aðgang hafa að
því neti spilað hann og þá rnargir
í einu. Þegar byrjað er að spila
MUD er markmiðið það að
safna reynslustigum (experience
points) og vinna sig á þann hátt
upp metorðastigann á svipaðan
hátt og í AD&D hlutverkaspilum.
Það er, þú gengur urn, leysir hinar
ýmsu þrautir og ævintýri, drepur
ýmis konar furðuverur og hlýtur
reynslustig fyrir. Smám saman
nærð þú þér í fjármuni, vopn og
varnir af ýmsurn toga og alls konar
hluti er aðstoða þig í ævintýrum
þínum. Aðrir eru að spila leikinn
með þér og eru yfirleitt 10-30
manns að spila á sama tíma. Þú
getur myndað hóp með öðrum
og saman getið þið barist í þess-
um draumaheimi og umgengist
hvert annað. Hægt er að tala við
aðra, bæði þá sem eru á sama
stað og þú og eins þá sem eru
staddir annarsstaðar í leiknum.
Þú getur faðmað vini þína og
ky sst og sýnt allar hugsanlegar og
óhugsanlegar mannlegar tilfinn-
ingar. Allt þetta gerist í rauntíma
og afleiðingar gerða þinna eru
því strax ljósar.
Með tímanum verður þú sterkari,
fimari, gáfaðri og þolmeiri og
þegar þú ert búinn að ná tiltekn-
um tjölda reynslupunkta og leysa
visst magn þrauta ‘vinnur’ þú
leikinn. Þá umbreytist þú íöldung,
líkt og lirfa í fiðrildi og öðlast
ódauðleika og aukna möguleika
á öllum sviðum. Þú getur þá fært
sjálfan þig á milli staða með
töfrum og rnyndað ný vopn, varn-
ir, herbergi og heilu svæðin og
kastalana ásamt ýmisskonar ver-
urn sem aðrir geta drepið og átt
frh. á nœstu síðu
Farskóli frh.
er í eðli sínu varkár stofnun, eins
og miðstofnun á menningarsvið-
inu ber að vera. Mistök á því
sviði í okkar agnarsmáa kerfi geta
orðið afdrifarík.
Reynslan sýnir að það tekur tíma
og þolinmæði að sannfæra kenn-
ara og aðra starfsmenn mennta-
kerfisins um notagildi tölvutækn-
innar í skólastarfi og venja þá við
hið nýja umhverfi og mögu-
leikana sem þar liggja. Einmitt
þess vegna er mikilvægt að þreifa
á tölvuheiminum í kennara-
menntuninni sjálfri.
Tölvunetalestin er lögð af stað.
Þar virðast við fyrstu sýn ýmsir
spennandi áfangastaðir. Mennta-
kerfið hoppar hins vegar ekki
upp á vagnana fyrr en sýnt er að
hin nýja tækni bæti (ekki bara
breyti) nám og kennslu. Mennta-
kerfið tekur sér far með þessari
lest, þegar leiðin liggur þangað
sem það vill fara.
Á hinni nýju námsbraut sem hér
var lauslega kynnt mun Kennara-
háskólinn reyna kosti tölvunet-
anna. Það er ljóst að við náum
til nýrra nemenda (þ.e. fólks sem
ella hefði átt erfitt með að stunda
námið) og getum veitt þeirn öðru-
vísi kennslu. Við munum opna
þeim ný svið og viðfangsefni og
fyrir bragðið hafa áhrif á viðhorf
þeirra til kennslu og náms. Hvort
þetta færir okkur betri eða verri
kennara verður tíminn að leiða í
ljós. (Okkur hefur t.d. verið bent
á að mikilvægir þættir starfs-
menntunar kennara geti flækst í
netunum). Reyndar er næsta víst
að menn verða seint sáttir um
hvað einkenni góðan kennara.
Hitt er ljóst að ný tækni og víðnet
opna ný svið þar sem nauð-
synlegt er að háskólastofnanir
skyggnist um. Ég trúi að notkun
víðneta verði eðlilegur þáttur í
starfi KHI, ekki síst í námi og
kennslu á hinum ýmsu náms-
brautum stofnunarinnar.
35 - Tölvumál