Tölvumál - 01.12.1992, Side 39
Desember 1992
Hugbúnaður
Kodak er um þessar mundir að
kynna 5 hugbúnaðarpakka:
* Photo CD Access: Hugbún-
aður sem gerir notendum á
DOSAVindows og Macintosh
kleift að nota Photo CD.
* Photo Edge: Forrit þar sem
hægt er að eiga við og laga
myndir.
* Browser kemur á Kodak
Catalogue disknum og er forrit
sem auðveldar notanda leit
og aðgang að þeim hluta
disksins sem hann sækist eftir.
* Shoebox: Samskonar og
Browser en mun öflugra.
Notendur geta á auðveldan
hátt farið í gegnum mikinn
fjölda mynda með einföldum
leitarorðum. Forritið er
einnig undirstaða mikils
myndabanka sem Kodak er að
setja á laggirnar.
* Renaissance hugbúnaður til
þess að notendur geti sent
myndir af Photo CD inn á
tölvu.
Notendaumhverfi í þessum hug-
búnaði er það sama, þannig
að auðvelt er að fara á milli
eftir fyrstu viðkynningu.
Frekari framþróun í vél- og
hugbúnaði mun Kodak vinna
í samvinnu við Apple Com-
puter Inc.
Photo CD spilarar eru nú
komnir á markað og geta þeir
spilað allar gerðir auk þess
er Philips með sitt kerfi
svokallað C.D.I. (Inter-
active) þar sem boðið er upp
á úrval diska auk þess að
geta spilað Photo CD með
ögn lakari myndgæðum.
í þessum þætti stafrænu bylt-
ingarinnar er filman undir-
staðan, eftir að hún hefur
verið skönnuð á bara eftir
að finna henni stað. Kodak
kynnti einnig vinnslustöð
fyrir myndir, Personal Premier,
þar sem notandinn sendir inn
stafræna mynd og vinnur hana
eftir sínu höfði. Takmörkin eru
aðeins ímyndunarafl notandans.
Þegar því ferli er lokið eru gögnin
tekin út á disk eða 8mm spólu og
notandi getur því næst farið í
prentsmiðju eða sent afraksturinn
í stærri stöð "Premier" þar sem
allir möguleikar standa opnir, t.d.
skönnun yfir á fyrrnefndar Pro
Photo CD eða yfir á gömlu góðu
filmuna (pos. eða neg.) og notand-
inn gæti þá farið í "gamaldags
myrkraverk".
Myndir í þessu formi gætu einnig
verið prentaðar út á prentarann
sem áður er nefndur (thermal
printer) en hann prentar á pappír
sem er viðlíka þeim ljósmynda-
pappír sem við þekkjum.
Annar þáttur semeinnig erkominn
til sögunnar eru stafrænar mynda-
tökur. Kodakhefurhannaðásamt
Nikon kerfi fyrir 35mm mynda-
tökur sem blaða- og frétta-
ljósmyndarar geta nýtt sér. Þar
opnast möguleikar á því að senda
myndirnar beint frá sér í vinnslu
og prentun. Framleiðendur flestra
Pro myndavéla eru einnig tilbúnir
með digitalbök fyrir sínar gerðir
og er hægt að stökkva beint í
myndvinnslu og frágang t.d. með
Photoshop. Gæði mynda teknar
með þessum hætti eru enn langt
frá upplausn filmu og upplausn
sem fæst með skönnun filmu en
við prentun blaða og tímarita er
þessi upplausn meira en nóg.
Still video er tækni sem einnig
gæti nýst við þessa vinnu. Upp-
bygging myndbandsmyndar er í
eðli sínu mjög frábrugðin staf-
rænni mynd en ef fullrar upplausn-
ar er ekki þörf er þarna mjög
áhugaverður möguleiki. Canon
kynnti áPhotokina nýja still video
vél með stórbættri upplausn og
fjölbreyttum tengimöguleikum.
Með þessari vél er nú hægðarleik-
ur að koma myndrænum gögn-
um inn í ýmis konar tölvuvinnslu.
Það ætti nú að vera ljóst af fram-
ansögðu að það hvernig við
skynjum, skoðum og reyndar
meðhöndlum myndir er gjör-
breytt. Hluti af þessari tækni hefur
nú þegar numið land og á næstu
mánuðum mun enn bætast við.
Myndvinnsluumhverfið: Myndin er lesin inn í skannann (vinstra
megin), unnin í tölvunni og prentuð á prentarann (undir borðinu)
eða geymd á geisladiski (hœgra megin). Ofan á geislaskrifaranum
er CD ROM lesari.
39 - Tölvumál