Vísir - 12.09.1962, Blaðsíða 1
/WWWWWWVWWWNAAAAAAA^AA
AKSTURSPJALDIÐ ÖTFYLLT
52. árg. — Miðvikudagur 12. september 1962. — 208. tbl.
ÍSLANDSMCT
ISÍLDVCIDI
Enn einu sinni berast
þær fréttir af síldarmiðun-
um að Víðir II hafi fengið
afla, nú 1000 mál og tunn-
ur. Um 50 skip voru á mið
unum í gær til að freista
gæfunnar, en aðeins 6
þeirra fengu veiði — og
auðvitað var Víðir II eitt
þeirra. Hefur Eggert á Víði
með þessu kasti sett nýtt
aflamet á einni síldarver-
tíð. Ef miðað er við síð-
ustu síldarskýrslu, þá er
Víðir II kominn með 30500
mál og tunnur, en staðfest
aflamet á Eldborgin frá því
hún veiddi 30353 mál og
tunnur 1943. Samkvæmt
tölum Eggerts skipstjóra
sjálfs þá er afli skips hans
rúmlega 31000 og er senni
Frh. á 5. síðu.
UMFERÐARKÖNNUNIN
Efri myndin sýnir leigubílstjóra af BSR merkja samvizkusamlega
inn á spjald sitt eftir akstur, og á þeirri neðri sjáum við einn
,merkjarann‘, standa við Hringbrautina og hafa tölu á umferðinni.
„ÞETTA ER BÆÐILÉTT
OG FYRIRHAFNARLÍTID'
Undirtektir undir um-
ferðarkönnunina og merk-
ingarnar voru víðast hvar
góðar í morgun, þegar
könnunin hófst. Einstaka
maður sveiaði yfir fyrir-
höfninni, og hirti ekki um
þessa ágætu viðleitni um-
ferðaryfirvaldanna, en obb
inn af mönnum merkti
samvizkulega við á hverj-
um viðkomustað.
Hún er hin umfangsmesta. Ekki
er nóg með að nærri 13000 bif-
reiðaeigendum hafi verið send
Vaxundi ölvun
Akureyri í morgun.
Samkvæmt uppiýsingum frá lög-
reglunni hefur ölvun á almanna-
færi mjög ágerzt síðustu dagana,
einkum á meðan sfldveiðiskipin
lágu hér í höfn.
Ekki hefur þó komið til neinna
átaka né vandræða f sambandi við
ölvun, þannig að orð sé á gerandi.
Þá bar einnig með meira móti
á bifreiðaárekstrum á Akureyri og
nágrenni í vikunni sem leið, en
ekki stóðu þeir árekstrar samt (
sambandi við ölvun. Slys á fólki
hefur ekki orðið við þessa árekstra
spjöld, heldur telur fólk umferðina
um göturnar og farþegar taldir í
strætisvögnum.
Ekki síztan þáttinn í hinni al-
mennu þátttöku á útvarpsþáttur sá
sem settur var upp í gærkvöldi. j
Var hann með miklum ágætum og
sýndi mönnum fram á mikilvægi
umferðarkönnunarinnar.
Stundvfslega kl. 7 f morgun var
búið að dreifa 140 manns víðsveg-
ar um borgina á eina 70 staði. Er |
það fólk til að telja umferðina!
um þá staði. Eru tveir á hverjum j
stað, merkja við bíla sem fara f
andstæðar áttir.
Vestur á Hringbraut stóðu tvær
ungar stúlkur beggja vegna göt-
unnar og höfðu varla við að
merkja við. Spjöldin hjá þeim
voru reituð niður eftir stærð bif-
reiða og tímann sem þær óku um.
Við skildum við þær, þar sem þær
veltu vöngum yfir í hvaða reit
þær ættu að merkja traktor sein
renndi sér fram hjá í þann mund-
ínn.
Það er ekki nóg með að allir
bifreiðaeigendur þurfi að merkja
við samkvæmt sínum ferðum,
hver einasti strætisvagnafarþegi
er einnig talinn með. í þeim til
gangi afhenda vagnsstjórarnir far-
þegunum Iftinn miða, sem þeir
geyma meðan þeir dvelja í vagn
inum. Við afturdyr vagnsins er
svo annar maður sem tekur við
Framh. á bls. 5.
. ■ • 'íV
Samkomulagí 6-mannanefnd
Sölustöðvun á lundbúnað-
arvörum mun verða afstýrt
Verðlagning landbún-
aðarafurða á þessu
hausti stendur fyrir dyr-
um. Hún er mesta hags-
munamál bænda og ne\ L
enda, sem nú er á döf-
inni, og er því eðlilegt að
árangurs af starfi verð-
lagsnefndar landbúnað-
arvara sé beðið með mik
illi eftirvæntingu.
Verðlagsnefnd landbúnaðar-
afurða, sex manna nefndin
svokallaða, hefir setið á stöð-
ugum fundum síðan 20. ágúst.
Fúndur var haldinn í gær-
kvöld og stóð hann til kl. 3 í
nótt. Á þessum fundi mun hafa
náðst samkomulag í grundvall-
aratriðum milli fulltrúa laun-
þegasamtaka og fulltrúa félags-
samtaka bænda í nefndinni,
þótt ekki hafi verið gengið frá
þvf samkomulagi f smáatriðum.
Það eru því allar horfur á að
verðlagsgrundvöllurinn fari
ekki fýrir yfirnefnd að þessu
sinni.
Blaðinu er ekki kunnugt um
Framhald á bls. 5.