Vísir - 12.09.1962, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 12. sept. 1962
Þak sýningarhallarinnar ekki
steypt fyrr en að vori
Mjög er nú talið vafa-
samt, að unnt verði að
Ijúka þeim áfanga sýning-
ar- og íþróttahallarinnar
við Suðurlandsbraut á
þessu hausti, sem gert
hafði verið ráð fyrir —
nefnilega að steypa hvolf-
þak byggingarinnar.
Helgi Daníelsson
atvinnumaður?
Miklar líkur eru á að ís-
lenzk knattspyrna missi
félagið Motherwell hefur
boðið Helga Danielssyni
Vísir átti tal við Gísla Halldórs-
son arkitekt, sem teiknaði bygging
una, um þetta mál. Kvað hann
vinnu við mótauppslátt hafa tafizt
vegna verkfalls trésmiða í sumar,
og hefði þessi töf verið mjög til-
finnanleg, þar sem ekki er hægt
að vinna við steypuvinnu hvenær
sem er, sízt við slíkt þak, sem
hér er um að ræða. Vegna verk-
fallsins mun mótauppslætti ekki
verða lokið fyrri en eftir tvo mán-
uði, eða þegar komið verður fram
i nóvember, en þá er kominn sá
tími árs, þegar allra veðra er von,
en nauðsynlegt er, að frostlaust
verði í viku, þegar steypuvinnan
sjálf hefst, svo að steypan þorni og
harðni eðliléga.
Sjálf mun steypuvinnan standa
i þrjá sólarhringa samfleytt
hvíldarlaust, því að það er ekk
ert smáræði af steypu, sem þarf
i þakið, hvorki meira né minna
en um 500 teningsmetrar.
Þótt svo kunni að fara, að ekki
verði talið ráðlegt að hefja steypu
vinnu, þegar mótauppslætti verður
lokið, ætti það ekki að þurfa að
tefja heildarframkvæmd verksins.
Gengið mun frá öllu, svo að
steypuvinna geti hafizt jafnskjótt
Framhald á bls. 5.
Krakkar vaidir
að íkveikju
Krakkar voru valdir að íkveikju
í vinnuskúr við Stóragerði í fyrra-
dag.
Skúrinn stóð við byggingu sem
er í smíðum við Stóragerði. Not-
uðu krakkar tækifærið á meðan
skúrinn var mannlaus og kveiktu
í honum.
Það sást fljótlega til eldsins og
kom slökkviliðið strax á vettvang.
Hafði eldurinn komizt í þakið og
urðu slökkviliðsmennirnir að rífa
þakplötur til að komast að eldin-
um, en úr því tókst fljótlega að
slökkva og varð tjón lítið.
Ben-Gurion
kemur í
kvöld
Forsætisráðherra Israels, David
Ben-Gurion, kemur til Reykjavíkur
með flugvél frá Flugfélagi Islands
klukkan 22,15 í kvöld. Á flugvell-
inum fer fram hátíðleg móttaka,
Ólafur Thors forsætisráðherra flyt
ur Ben-Gurion ávarp, þegar 'nann
stígur út úr flugvélinni, en síðan
mun forsætisráðherra Israel svara
með öðru ávarpi. Hinir erlendu
gestir munu síðan aka til ráðherra
bústaðarins, en þar dvelst Ben-
Gurion ásamt konu sinni, meðan á
heimsókn hans hér stendur. Annað
föruneyti þeirra verður að Hótel
Sögu og Hótel Borg. I fyrramálið
munu forsætisráðherrarnir ræðast
við í stjórnarráðshúsinu klukkan
9,30, en að því loknu verður hinum
erlendu gestum sýnt Þjóðminjasafn
ið. Um hádegið heldur Ólafur Thors
forsætisráðherra boð inni að Hótel
Borg, en annað kvöld verða hinir
erlendu gestir í kvöldverðarboði að
Bessastöðum.
nú aftur emn af sínum
beztu mönnum til Skot-
lands í atvinnumennskuna
þar. Skozka knattspyrnu-
Akureyrarskip að
hætta síldveiðum
Akureyri í morgun.
Nokkur Akureyrarskip eru hætt
síldveiðum að fullu f sumar og sum
byrjuð á upsaveiðum eins og Gylfi
og Garðar frá Rauðuvík.
Önnur Akureyrarskip, sem hætt
eru síldveiðum eru m.a. Hrefna og
Hannes Hafstein, en það síðar-
nefnda er gert út frá Akureyri og
Dalvík sameiginlega. Þau Akureyr-
arskip, sem halda síldveiði áfram
eru Snæfell, Sigurður Bjarnason,
Súlan, Akraborg og Ólafur Magn-
ússon. Mörg síldveiðiskip leituðu
hafnar á Akureyri í norðangarran-
um í vikunni sem leið, en þau eru
nú fárin.
landsliðsmarkverði után
með það fyrir augum að
gera honum tilboð ef
grundvöllur skapast.
„Því er ekki að neita, að ég hef
áhuga á þessu og mundi gjaman
vilja spreyta mig í atvinnumennsk
unni í 1-2 ár. Ég er nú að verða i
þrítugur og bráðum kemur að þvf I
að mnður verður að leggja skóna
á hilluna. Það væri því gaman að
reyna sig á nýjum slóðum svona í
Iokin“.
Það er fyrir milligöngu séra Ro-
berts Jack, sem Motherwell hefur
haft samband við mig. Þeir bjóða ;
mér allt frítt, vilja fá mig f hálfan ]
mánuð til reynslu og bjóða mér ;
svo að skrifa undir ef þeim lízt á j
gripinn“, sagði Helgi og hló við. !
] þegar við náðum tali af honum i ;
í morgun.
„Málið er á byrjunarstigi og ég ,
j veit ekki enn hvenær ég fer út, !
það verður væntanlega ákveðið um :
næstu helgi“.
Framhald á bls. 5.
Kjósa fulltrúa á
ASÍ-þingið
Á laugardaginn kemur hefjast lega í KR-húsinu, seinni hluta nóv-
kosningar til Alþýðusambands- embermánaðar.
þings um land allt. Um 150 félög
í sambandinu kjósa samtals 340—
350 fulltrúa á þe^su hausti, kosið
verður um fjórar helgar og lýkur
þessu fiulltrúakjöri 7, október. Þing
ið verður haldið í Reykjavík, senni-
Um næstu helgi verður kosið í
ýmsum félögum í Reykjavík. Meðal
þeirra eru Múrarafélag Reykjavík-
ur, Félag járniðnaðarmanna, Starfs
stúlknafélagið Sókn og ASB, félag
afgreiðslustúlkna í Brauða- ög
mjólkurbúðum.
Gerður og Jean Leduc sýna í Bogasalnum
Þau hjónin frú Gerður Helga-
dóttir myndhöggvari og Jean
Leduc listmálari opna sameigin-
lega listsýningu í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins kl. 20 f kvöld. Á
sýningunni eru 11 höggmyndir’ úr
bronzi eftir frú Gerði, og eru þær
allar unnar með logsuðutækjum
og mjög ólíkar því, sem áður hef-
ur sézt eftir hana. Allar þessar
höggmyndir eru unnar f Frakk-
landi á siðustu tveimur árum.
Gerður hefur eins og kunnugt er
gert gluggaskreytingar fyrir
Kópavogskirkju, og hún vinnur
einnig að gluggaskreytingum í
kirkju í Köln í Þýzkalandi. Frú
Gerðu/ sýndi seinast á Islandi ár-
ið 1956, þá einnig í Bogasalnum.
Jean ,educ, eiginmaður frú
Gerðar, sýnir 21 málverk, allt
abstraktmyndir, og eru sex þeirra
málaðar á Islandi. Leduc hefur
aldrei sýnt hér áður og segist vera
mjög spenntur að vita, hvernig við
tökurnar verða. Hann segir, að
sér finnist íslendingar sýna listum
miklu meiri lifandi áhuga en hann
hafi átt að venjast erlendis og
slíkt hljóti að verka örvandi á
alla skapandi listamenn. Hann
hefur mikla löngun til að kynnast
íslenzku listalífi sem bezt. Á mynd
inn'i sjást þau hjónin vinna að því
að hengja upp myndir, en þetta
er f fyrsta skipti, sem þau halda
sameiginlega sýningum á verkum
sínum. Sýningin verður opin kl.
14 — 22 daglega til 23. þ. m.