Tölvumál - 01.06.1994, Blaðsíða 9
Júní 1994
Tölvunotkun í Iðnaði:
íslenska álfélagið hf.
Eftir Björn Jónsson
Framleiðsla áls
Vinnsla áls með rafgreiningu,
eins og fram fer hjá ÍSAL, byggir
átækni sem eryfir 100 ára gömul.
Þrátt fyrir að nútíma álvinnsla
byggi á sömu grunnhugmyndum
og frumherjamir beittu fyrir einni
öld hafa að sjálfsögðu orðið um-
talsverðar framfarir á flestum
sviðum framleiðslunnar. Stórt
skref á þeirri braut er vafalítið
tilkoma tölvustýringa við rekstur
keranna.
Hjá ÍSAL eru í dag 320 ker í
tveimur skálum, 160 í hvorum
skála. Hvor skáli er í raun ein
straumlykkja, þar sem straumur-
inn sem í dag er um 115 kA,
flæðir frá forskauti hvers kers að
bakskauti og þaðan að næsta keri
og svo koll af kolli.
í hverju keri eru að jafnaði
hafðir um 18 cm af fljótandi áli á
botninum og um 25 cm af raflausn
þar ofaná. I raflausninni á raf-
greiningin sér stað þar sem súráli
er breytt í ál samkvæmt eftir-
farandi efnafræðijöfnu:
2A1,03 + 3C —> 4A1 + 3CO,
Þetta efnavarf krefst mikillar
orku, en um 15 Kwh þarf til að
framleiðaeittkgafáli. Miðaðvið
umræddan straum framleiðirhvert
ker um 800 kg af áli á dag. Hvert
ker er áltekið annan hvem dag og
þá að meðaltali 1600 kg.
Spennufall í straumleiðurum
erhverfandi en spennan yfir hvert
ker er um 4,5 V, þar af er föst
rafgreiningarspenna 1,65 V.
Viðnám í raflausninni veldur
afgangnum af spennunni. Heildar-
spennan yfir hvom skála er því
um750V. Heildarafliðsemnotað
Mynd 1 Orkunotkun í kerskálum ÍSAL
25 iiOhm
1.65 V
gy
ORKUNOTKUN I KERSKALUM ISAL
115 kA
4.6
\2001 H 2p°3 H2005 H2007 <
I iii iiiiiii«—I !•—■mrai.i í .......|
\ 20021—fÍÖÖÍ]—j 20061—{20081—
9 - Tölvumál