Tölvumál - 01.06.1994, Side 18

Tölvumál - 01.06.1994, Side 18
Júní1994 ingu gagna, stillingum og próf- unum á afkastagetu einstakra verkþátta og svo loks verðlagn- ingu þeirra. Mikil áhersla var lögð á að þýða kerfið yfir á ísl- ensku en það hefur þann ókost í för með sér að lengri tíma tekur að koma nýjum útgáfum í gagnið. Oddi keypti kóðann af kerfinu af Programmed Solutions Inc. til að hafa alla möguleika á að gera þær breytingar sem þarf til að aðlaga það íslenskum aðstæðum og hafa ýmsar viðbætur verið gerðar. Þærviðamestuerutenging á birgðahreyfingum og reikninga- gerð við fjárhags- og lager- bókhald. Kerfið samanstendur annars í grófum dráttum af eftirfarandi einingum: - Tilboðskerfi - Vinnuseðlakerfi - Kostnaðarbókhaldi (verk- kostnaður) - Reikningagerð - Birgðabókhaldi - Aætlanagerð Tilboðs- og vinnuseðlakerfi og kostnaðarbókhald Tilboð og vinnuseðlar eru í raun nákvæmlega eins unnin og er hægt að afrita tilboð yfir á vinnuseðil og öfugt. Inn á vinnu- seðla eru settir þeir verkþættir sem vinnaáviðhvertverk. Kerfið heldur síðan utan um bæði tíma- og efnisskráningar á hvert einasta verk. Við reikningagerð er síðan borinn saman sá tími sem áætlaður var í verkið í tilboði og á vinnu- seðil annars vegar og raunveru- legur tími hins vegar. Til að einfalda tímaskráningar eru notaðar nokkurs konar stimpil- klukkur sem eru tuttugu og þrjár út um allt hús. Allir vinnuseðlar eru strikamerktir og er hægt að lesa verknúmer beint af þeim inn í stimpilstöðvarnar með lespenna. Áætlanakerfi Verið er að taka áætlanakerfið í notkun og eru nú gerðar fram- leiðsluáætlanir fyrir stærri verk. Við áætlanagerð eru notuð gögn af vinnuseðlum um áætlaðan vinnslutíma. Afkastagetahverrar einingar (prentvélar, bókbands- vélar, skeyting o.s.frv) er sett inn í kerfið og þannig reynt að jafna álag frá degi til dags. Aætlunar- kerfið er músardrifið, myndrænt kerfi þar sem verk eða verkhlutar eru færðir til með myndrænum hætti. Umfang kerfisins Að jafnaði eru um 20 - 25 notendur inni í kerfinu, auk þeirra semtímaskrááútstöðvum. IOdda eru gerð um 7.000 tilboð á ári og um 14.000 verk fara í gegnum vinnsluna. Ikerfinueruum 2.500 verkþættir og um 2.000 efnis- númer. Kerfiðtekurídagum650 Mb diskpláss (forrit og gagna- grunnur). Tölvustýringará vélum Auk þeirra véla sem við í daglegu tali köllum tölvur eru í raun fullt af tölvum sem stýra ákveðnum vélum eða ferlum í vélum. Sumar þessara tölva sjást í raun ekki því þeim er stjórnað með aðgerðalyklum og skilaboðin frá þeim koma fram t.d. sem ljósmerki, en aðrar eru raunveru- legar tölvur með skjá og oft hefð- bundnu lyklaborði sem búið er að forrita sem aðgerðalykla. Hér á eftir fara nokkur dæmi: Misomex: Þetta er vél sem tekur við einni filmu og lýsir hana á prentplötu mörgum sinnum með forrituðu millibili. Með þessu tæki sparast vinna sem fór í að margfalda filmur og líma upp í stóran form, auk þess sem gæðin verða meiri en ef um afritaðar filmur er að ræða. Pappírshnífar: Hnífarnir eru forritanlegir til skera stærðir í ákveðinni röð og breyta sér sjálfvirkt eftir hvern skurð. Þetta eykur afköst til muna og minnkar líkur á dýrum mistökum við skurð á prentuðu efni. Hnífarnir geta geymt fjöldan allan af forritum í minni sem er mjög hagkvæmt þar sem oft er verið að vinna svipuð eða samskonar verk. Prentvélar: Vatns- og prent- litagjöf er tölvustýrt á öllum nýrri prentvélum og er hægt að stjóma gjöfinni tommu fyrir tommu þvert yfir allan prentforminn. Sumar vélamar eru einnig með skynjara og stjórnbúnað þar sem tölva sér um að stýra pappírnum rétt í gegnum alla vélinaþannig að allir prentlitir og skurður passi saman. Xerox5090: Þettaereinskonar ljósritunarvél sem ljósritar með allt að prentgæðum, raðar upp og bindur inn á gífurlegum hraða. Þessari vél er stýrt af tölvu sem gefnar eru skipanir af snertiskjá. Auk þessara véla með svo til beinni töl vustýringu er vel flestum vélum stýrt með einhverskonar stýriliðum og/eða tímarofum. Niðurlag Síðan Hamis setningarkerfið var tekið í notkun hefur orðið mikil þróun og margt breyst. Við erum enn í dag að nota sérhæfðar, og sérsmíðaðar, vinnustöðvarvið framleiðsluna en sífellt eykst notkun á stöðluðum hug- og vélbúnaði eftirþví sem þróuninni fleygir fram. Eins og gefur að skilja, þá er staðlaður búnaður mun ódýrari en sérhæfð kerfi. En því miður þá er það ekki allt, því um leið þá er erfiðara að fá búnaðinn lagaðann að aðstæðum fyrirtækisins og/eða leiðréttingu á villum í hugbúnaðinum. Ekki 18 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.