Vísir - 21.09.1962, Page 1
(
VISIR
52. árg. — Föstudagu-1 21. september 1962. — 216. tbl.
ÁTTA PRESTAR HAFA
ÁHU6A Á AÐ SÆKJA
Samkvæmt því, sem komið hef-
ir fram í fréttum, á að kjósa 4
nýja presta í Reykjavík nálægt
næstu áramótum. Blaðið hefir
heyrt sex væntanlega umsækjend-
ur tilnefnda. Sagt er að séra Ól-
afur Skúlason, æskulýðsfulltrúi
Þjóðkirkjunnar, ætli að sækja um
Bústaðasókn, séra Magnús Guð-
mundsson á Setbergi og séra Þór-
bergur Kristjánsson í Bolungarvík
um Laugarnesprestakall, séra Jón-
as Gíslason, séra Hjalti Guð-
mundsson og séra Ragnar Fjalar
Lárusson á Siglufirði um Nes-
prestakall og þeir séra Magnús
Runólfsson, framkvæmdastjóri
K.F.U.M., og séra Sigurður Haukur
Guðjónsson á Hálsi í Fnjóskadal
um Langholtsprestakall.
Nú stendur yfir í Reykjavík
kirkjuráðsfundur til undirbúnings
kirkjuþingi, sem á að koma saman
í næsta mánuði. Kirkjuþing kom
síðast saman fyrir tveimur árum
og var þá m. a. rætt um veitingu
prestakalla, það er að segja hvort
leggja ætti niður að kjósa presta.
Þessu máli var vísað til umsagnar
héraðsfunda í prófastsdæmunum.
Þær umsagnir munu nú liggja fyrir
og málið verða tekið fyrir til end-
anlegrar afgreiðslu á kirkjuþinginu
i í haust.
i Prestskosningum hefir verið
fundið margt til foráttu á liðnum
árum, að f þær blandaðist stjórn-
málaþras, þær vektu úlfúð innan
I safnaðanna og útkoma þeirra
I stæði oft í öfugu hlutfalli við
i hæfni umsækjenda til starfsins.
| Aðrir vilja halda í þær í lengstu
I lög og telja til sjálfsagðra lýðrétt-
. inda.
!; Adlon selt \
'I Einn þekktasti næturklúbbur'I
.;í Kaupmannahöfn, Adlon, er nú«J
" að skipta um eigendur. Svendj
■ 1 ............ — -----------------«,
■.Muchart, sem hefur átt klúbb-J.
Ijinn o" rekið hann í 39 ár vilUJ
*.nú selia os telur næriri fióraí*
Skipulagi Handíða-
skólans breytt
Kurt Zier skólastjóri Handíða-
og myndlistarskólans, boðaði frétta
menn á sinn fund í gær og skýrði
þeim frá því, að fyrirhugaðar væru
allmiklar breytingar á námstilhög-
un f Handiða- og myndlistarskólan-
um, er hann tekur til starfa nú í
haust. Helztu nýjungarnar eru 2
ára forskóli, nám f hagnýtri graf-
list, tízkuteikning og umræðu-
kvöld.
NÝJUNGAR.
Kurt Zier Iýsti þeirri skoðun
sinni fyrir fréttamönnum, að alft
myndlistarnám hér hefði verið
fálmkennt og lítt skipulagt. Hver
vildi Iæra það eitt, sem honum
þætti gaman að, en léti allt annað
lönd og leið. Menn kæmu kannski
og ætluðu sér að verða heimsfræg-
ir málarar og færu að mála þrí-
hyrninga og hringi og teldu sig
ekki h...-fa að læra neitt í teikn-
ingu eða öðrum almennum undir-
stöðuatriðum myndlistar. Þetta
væri svipað og þegar nemendur f
læknisfræði segðust ætla að verða
til dæmis augnlæknar og hefðu
þess vegna ekkert að gera með að
kryfja dauðar manneskjur.
Nú væri þess vegna þörf á þvl
að reyna að skipuleggja allt nám
í skólanum betur og fá meiri festu
I starfið. Það er því grundvallar-
brpyting á námstilhögun í skólan-
um að setja á stofn tveggja ára
Framhald á bls 5
300 metra löng jorðgöng
Eins og skýrt var frá i Vísi í
gær miðar vel áfram rannsókn-
um á orkusvæði Þjórsár við
Búrfeli. Einn liðurinn í rann-
I
sóknum þessum er að grafa
um 800 m. löng göng og eru
göngin þeg orðin 200 m. á
lengd. Þau eru 2ja metra breið
og 2,20 á hæð. Miklar líkur eru
á að nýta megi göng þessi sem
aðkeyrslugöng fyrir stöðvarhús-
ið, sem staðsett verður í kvos-
inni tr.illi Búrfells og Sámstað-
armúla með því að breikka þau
og hækka. — Ljósmyndina
hér tók Ingimundur Magnússon
f hinum miklu jarðgöngum, er
fréttamenn Vísis heimsóttu
staðinn í gær. Er verið að moka
nýsprengdu grjótinu á vagn sem
síðan er dreginn út með eimreið.
.'ara, en er þekktastur sem næt-
•urklúbbur, þar sem menn þurfal"
Jekki að óttast að svindlað séN
•á þeim. ■;
I Adlon náði mestri frægð, semN
Jsamkomustaður ffna fólksins í"I
■Kaupmannahöfn á árunum milli.;
Istríðanna. Á seinni árum hefurj.
Jhann hins vegar verið mikið*J
■ sóttur sem dansstaður, sér íl*
Jlagi af ungu fólki. |.
■ Kaupandi klúbbsins er hluta-.J
Ifélag sem nefnist Scan-Public.;»
JVerður gengið frá kaupunum*!
■strax og félagið hefur fengið.;
Inauðsynleg leyfi til veitinga-J.
•hússreksturs. ■!
Fannst íáklæddi ölvunardái
Lögreglan í Reykjavík fann í
fyrrakvöld fák! edda stúlku í ölv-
unardái í bifreið varnarliðsmanna
fyrir utan Vetrargarðinn.
Var farið með stúlkuna í slysa-
varðstofuna þar sem hún jafnaði
sig að nokkurri stundu liðinni.
Jafnframt fór fram á henni læknis-
skoðun, en engin merki sáust þess
að hún hafi verið ofbeldi beitt eða
iagðar á hana hendur.
Við yfirheyrslu hjá rannsóknar-
Ný rafvél vii Irahssstöiina / vetur
og í toppstöðino við Elliðnór 1963-64
í vetur mun verða bætt
nýrri vélasamstæðu í íra-
foss-stöðina við Sog og
næsta vetur verður vænt-
anlega bætt við nýrri gufu-
aflsstöð við Elliðaár — sam
tais 27,000 kílóvatta orku.
Vísir hefir aflað sér upplýsinga
um þessi mál hjá Jakob Guðjohn-
sen rafmagnsstjóra, sem sagði m.
a., að í desembermánuði næstkom-
andi mundu koma til landsins
fyrstu vélahlutarnir f nýju vélasam
stæðu Irafossstöðvarinna., og er
gert ráð fyrir, að verkinu verði
lokið um eða upp úr áramótum.
Þarna er um að ræða v(élasam-
stæðu, sem gefur 15,500 kílóvatta
orku, en fyrir eru í stöðinni vélar,
sem framleiða 31,000 kílóvött. —
Þarna er því um 50% aukningu að
ræða.
Með þessari viðbót verður vatn
það, sem írafoss-stöðin hefir til
umráða, nýtt til fullnustu, og fer
þá að nálgast ,að Sogið verði full-
nýtt til raforkuframleiðslu, en þó
Framhald á bls. 5.
lögreglunni bar stúlkan við algeru
minnisleysi, mundi síðast eftir því
að hún var stödd inni í Vetrar-
garðinum, en eftir það kvaðst hún
ekkert vita af sér fyrr en hún
komst til meðvitundar í slysavarð-
stofunni.
Mál þetta var sent til framhalds-
rannsóknar til lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli, þar eð allir að-
ilar, sem hlut áttu að máli, voru
þaðan eða úr nágrenni.
Rannsóknarlögreglunni barst í
gær kæra um það, að maður hafi
ráðizt inn í braggaíbúð til konu
nokkurrar í fyrrakvöld og hafði
hann farið inn um glugga. Maður-
inn mun þó hafa farið fljótlega út
aftur og rannsóknarlögreglan
kvaðst, eftir kærunni að dæma,
ekki geta séð að þar hafi verið um
líkamsárás að ræða, en skýrsla
hafði þá enn ekki verið tekin í
málinu.