Vísir - 21.09.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 21.09.1962, Blaðsíða 3
Föstudagur 21. september 1962. V'lSIR 3 Neðst til hægri er Ieikstjór- inn, Gunnar Eyjólfsson, sam- vizka leikaranna. Hann skrifar hjá sér allt það, sem afiaga fer, hefur alla tauma í sinni hendi. Orð hans eru Iög, og þau lög dirfist enginn að brjóta. 1 kvöld hefst nýtt lelkár hjá Þjóðleikhúsinu með frumsýn- ingu á ameriska gamanleiknum „Hún frænka mfn“ eftir Jerome Lawrence og Robert E. Lee. Leikurinn er gerður eftir skáld- sögunni „Auntie Mame“ eftir Patrick Dennis, en hún var metsölubók í Bandarikjunum á sinum tíma. Það er ekki ætlun okkar að rekja gang Ieiksins hér, það er hvort eð er miklu betur gert á sviði Þjóðleikhúss- ins, en í stuttu máli má segja, að leikurinn sé tilraun til að segja ævisögu konu og baráttu hennar fyrir Iifshamingju sinni. Þegar Vfsir fór að sjá „frænk- una“, var hún í burðarliðnum, hvorki fóstur né fullskapað verk, þetta var fyrsta æfing i búningum og allt á tjá og tundri í leikhúsinu. En stemmn- ingin var góð og ákafi leikara mikill, jafnvel þótt leikstjóri sæti úti í sal og skrifaði vand- lega hjá sér hvert einasta víxl- frænka (Guðbjörg Þorbjamar- dóttir) og Patrick litli (Stefán Thors). Það eru þau, sem bera hita og þunga dagsins að þessu sinni. FYRSTA LEÍKRIT spor. ☆ Efsta myndin f myndsjánni í dag sýnir þá Iangþráðu stund, sem ekki rann upp fyrr en eftir tveggja klukkutíma þrotlaust strit. >Það er loksins komið kaffi hlé. Það er líka greinilegt, að leikararnir njóta kaffisins og þessarar örstuttu, dýrmætu hvíldarstundar, því þær eru ekki of margar, þegar eftir em aðeins örfáir dagar til fmm- sýningar. í upphafi leiksins, þegar frænkan fær „son“ sinn til sín í fyrsta sinn. Það stendur yfir kokkteilboð, eitt þeirra 13, sem haldin voru á 14 dögum. Og satt bezt að segja er fóstm drengsins Noru (Amdísi Bjöms- dóttur lengst til hægri) ekkert um að setja drenginn litla í þetta kynlega umhverfi. Á bekknum sitja þau Mame Neðst til vinstri er atriði frá Suðurríkjunum, þangað fer Mame frænka til að vinna sér eiginmann. Hún er nýkomin af veiðum og heldur á tófu í hend- inni. Hún hefur sigrað andstæð- ing sinn, sem einnig keppir um hylli hins eftirsóknarverða olíu- kóngs, frækilega með því með- al annars að sitja óðan hest og sitja hann yfir girðingar og all- ar torfærur, sem á leiðinni verða. Það kom þó í Ijós, að sigurinn kom ekki til af góðu, það var nefnilega ekki hesta- mennsku hennar að þakka, að hún sat hestinn svo snilldar- lega. ☆ HAUSTSINS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.