Vísir - 21.09.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 21.09.1962, Blaðsíða 5
Föstudagur 21. september 19C2, VISIR T~" Danir byggja skipasafn Danska Þjóðminjasafnið hefur nú f undirbúningi að byggja hús yfir víkingaskipin sem fundust í Hróarskeldufirðinum í sumar. Verður hús þetta 25 sinnum 40 metrar að stærð og er gert ráð fyrir að það rúmi þau sex víkinga- skip sem þegar hafa verið tekin upp. Þegar rannsókn þessi hófst var ekki vitað um nema eitt flak, og var það rannsakað af froskmönn- um. Fundust þá fimm í viðbót og hafa síðan verið uppgötvuð mörg önnur. Næstu rannsóknir á þessu sviði verða framkvæmdar í Kögeflóan- um. Þar eru hundruð skipsflaka, frá ýmsum tímum. Mörg þeirra eru frá orrustunum 1677 og 1710, en auk þess eru þarna víkingaskip og skip frá miðöldum. Ekki er enn ákveðið hvar byggt verður yfir víkingaskipin. Er ætl- unin að hafa mikið land í kring um húsið, svo að hægt sé að ætla þar rúm þeim skipsflökum, sem kunna að finnast á næstunni. Talið er að safnið verði byggt annað hvort í Hróarskeldu eða Frederik- sund og fyrrnefndi bærinn talinn líklegri, þar sem hann er stærri. Þjóðminjasafnið telur að þús- undir skipsflaka séu í sjónum um- hverfis Danmörku og mun það á næstunni reyna að kanna sem flest þeirra. Fullrútiráð Framhald af bls. 10. og kosnir fulltrúar í kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða- kjördæmi. Þá talaði á fundinum hinn ný- kjörni formaður Baldur Bjarnason og ræddi um hlutverk fulltrúaráðs- ins og þýðingu þess fyrir flokks- starfið í sýslunni. Enn fremur tók til máls Guðmundur B. Jónsson og ræddi ýmis viðhorf í flokksstarf- seminni í Vestfjarðakjördæmi. Að iokum flutti Sigurður Bjarna- son, ritstjóri, ræðu, þar sem hann vék að hagsmunamálum byggðar- lagsins og flokksstarfseminni og hvatti fundarmenn til öflugrar bar- áttu um leið og hann árnaði hinu nýstofnaða fulitrúaráði heilla. Flugvél brennur iýi og gamli úfanríkisráðherra Svía Mynd þessi var, tekin í Stokkhólmi í fyrradag fyrir ut- an ríkisráðsbygginguna, þegar tveir utanríkisráðherrar, sá nú- verandi og fyrrverandi, gengu út af fundi, eftir að ráðherra- skipti höfðu farið fram. Vinstra megin er sá sem við tekur, Torsten Nilsson, hægra megin en Östén Undén sem lét af störfum eftir að hafa verið ut- anríkisráðherra í samfleytt 17 ár. Á fundinum var Östén hyllt- ur og þakkað hið langa og góða ) starf. Meðal þeirra sem töluðu var eftirmaður hans sem fór miklum viðurkenningarorðum um það, hvemig Undén hefði mótað utanrikisstefnuna. Sagði hann að almennt riki mikil á- nægja og eining um þessa stefnu og kvaðst hann ákveð- inn í að fylgja henni áfram. 1 ræðu sinni lagði Torsten Niisson áherzlu á norrænt sam- starf og taldi hann að meðan vilji er til að viðhalda norrænni samvinnu ætti hann að geta birzt I verki. Sá atburður átti sér stað á flug- vellinum í Gjögri, að eldur varð laus í flugvél með þeim afleiðing- um, að hún gjöreyðilagðist. Flugmaðurinn, sem var í vélinni, þegar eldurinn kom upp, slapp klakklaust frá. Elugsýn var nýbúin að kaupa vélina og er því 'slys þetta mikill skaði fyrir flugfélagið. Blaðið náði' tali af flugmannin- um .Jóhannesi Víði Haraldssyni í morgun og sagðist honum svo frá, að mikil og snörp vindhviða hefði feykt vélinni upp að aftan, með Kennslu bœkur frá Isafoidarpren tsm iöju Út eru komnar nokkrar kennslu- bækur á forlagi ísafoldarprent- smiðju — m.a. fjögur hefti af mannkynssögu. Þetta eru kennsiubækur þær í mannkynssögu — Fornöldin, Mið- aldir, Nýja öldin 1500—1789 og Nýja öldin eftir 1789 — sem þeir Knútur heitinn Arngrímsson og Ólafur Hansson menntaskólakenn- ari tóku saman á sínum tíma til notkunar i gagnfræðaskólum. Bæk- ur þessar hafa verið ófáanlegar um nokkurt skeið, og segir svo í for- mála eftir Magnús Guðmundsson og Egil J. Stardal, að það hafi orðið að samkomulagi miili þeirra og hlutaðeigandi að gefa bækurnar út á ný. Þá segir, að bækurnar hafi þótt of yfirgripsmiklar til kennslu í a.m.k. sumum bekkjum gagn- fræðaskóla eftir að kennslutilhög- un var breytt með nýjum fræðslu- lögum. Hefur heftunum því verið breytt að nokkru og eru einkum Loks er ágrip af efnafræði, fjórða útgáfa, eftir Helga Hermann Eiríksson, og hefur henni verið breytt að því leyti einkum, að bætt hefur verið í hana kafla um kjarn- orku. Ailar eru þessar bækur vand- aðar og snyrtilegar að öllum frá- gangi. þeim afleiðingum að flugvélin kastaðist fram yfir, sig. „Þegar mótorinn skall í jörð- ina, kom strax upp eldur og á örskammri stundu hafði hann iæst sig í alla vélina svo við ekkert var ráðið. Ég reyndi," sagði Víðir, „að beita slökkvi- tækjunum tveim sem í véiinni voru en án árangurs, þau tæmdust án þess að mér tækist að slökkva eldinn. Eftir svo sem 15 mínútur var öil véiin brúfmin til kaldra koia, ekkert stóð eftir nema grindin og sá vængurinn sem stóð . upp í vindinn.“ „Hefði verið hætta á mann- tjóni ef fieira fólk hefði verið í vélinni?" „Nei, ég áiít að það hafi ver- ið nægur tími til að forða öllu fólki út I tæka tíð, ef farþegar hefðu verið.“ Framhald af bls. 1 forskóla, sem allir verða að fara í, áður en lengra er haldið. Að f or-1 skólanum loknum er svo hægt að ; velja um hinar ýmsu sérdeildir. Ein þessara framhaldsdeilda er ' hagnýt graflist fyrir þá, sem telja | sér að verða auglýsingateiknarar. Þar gilda sömu reglur og annars staðar, menn verða fyrst að hafa lokið forskólanum, og bætist þá Fran.hald af bls. 1 er hægt að Icoma fyrir vélasam- stæðu i Ljósafoss-stöðinni, 'sem framleiðir 7500 kílóvött. ! Framkvæmdir í írafoss-stöðinni, byggingaframkvæmdir, sem eru þó ' ekki miklar, hefir Efrá-Fall tekið I aö sér, en það félag sá um virkjun i Efra-Falls og smíði Steingríms- ! stöðvar. ætluð til kennslu í Verzlunarskóla j vjg tveggja ára sérdeild. íslands og breytingar gerðar í sam- I i,.s „h ræmi við þær kröfur, sem þar eru gerðar. Þá eru verkefni í enska stíla handa miðskólum, sem Anna Bjarnadóttir hefur tekið saman. Er þar um 150/ verkefni að ræða, eða meira en komizt verður í gegnum á tveim vetrum, enda segir höf- undur, að hún telji rétt að hægt sé að velja úr verkefnum. Stönguisýki í kartöflum Kurt Zier kvað það skipta mestu ao menn hagnýttu sér skólann hér sem bezt. Það væri alltof algengt að menn færu til útlanda til náms án þess að hafa nokkra verulega undirbúningsmenntun, en þegar þeir kæmu erlendis væru þeir látn- ir gerá hið sama og kennt er hér heima. og væri þannig leitað langt yfir skammt. Það skipti þess vegna miklu að laga námið hér eftir er- lendum námsskrám. , Blaðið hafði tal af Jóhanni Jón- assyni, forstjóra Grænmetisverzl- unarinnar, í tilefni þessarar al- mennu óánægju, seni virðist vera i með i kartöflumar. Jóhann kvað þessa óánægju að | mörgu leyti eiga rétt á sér. Útlitið j með hinar nýju kartöflur væri mjög slæmt. þar sem þær reynd- ust flestar vanbroskaðar og bað sem verra væri — stöngulsýk: gerði vart við sig í ríkum mæli. „Er sýki 'iessi", sagði Jó hann, „meiri en við höfum nokk urn tíma fyrr átt að venjast. , Við höfum gert tilraunir með I að halda nokkrum pokum i geymslu um vikutíma, og það hefur sýnt sig, að þær þola það alls ekki. Kartöflurnar voru stórlega sýktar. Þetta er mjög erfitt vanda mál fyrir okkur, þar sem sýk- illinn sjálfur heldur sig inni i kartöflunum og það þarf ekki nema einn í stóru „partíi" Hann sýkir út frá sér, svo úr verður einn grautur. Vitað er. að stöngulsvk er oft í útsæðinu, og erfitt er að jcoma fullkomlega í veg fyrir sýkina, en aldrei fyrr hefur hún verið í eins ríkum mæli og nú. Það hjálpar til, að með aukinni notkun véla við upptöku eru möguleikarnir enn meiri fyrir stöngulsýkina að þróast. Við vélanotkunina rifnar hýðið af og sýkillinr, berst fljótar á milli við það“. Jóhann taldi illmögulegt að átta =iig á hvernig sýkillinn kæmist í kartöflnrnar unnhaflegr bar heffi' iafnvel veðurfar áhrif. ,.Hitt er víst, að við munum hefja gagngerar rannsóknir nú beg ar og reyna að komast fyrir stöng- ulsýkina með öllum ráðum“. UMRÆÐUKVÖLD. Sú nýbreytni verður og upp tek- in að efna til umræðukvölda á veg- um skólans í vetur, og verður það ábyggilega vinsælt meðal nemenda skólans og annarra áhugamanna, þvi að gert er ráð fyrir, að slík umræðukvöld geti fleiri sótt. Verð- ur þá boðið sérmenntuðum mönn- um til að halda stutt erindi, en síðan verða umræður á eftir. Þetta þyrfti ekki endilega að vera tak- markað við myndlist eingöngu Slíkir umræðúfundir gætu gert mikið nTTn til bess m.a. að kenna 'ineu ÍA'ki að Tetia einhvern mæli- -’t -5 hvernin dæma beri 'ist. Ekki bara að igja, að hlut- urinn -é fallegur eða ekki fallegur, heldur geti gert sér einhverja hug- mynd um það, hvers vegna svo sé. NÝ VÉL 1 VARASTÖÐ VIÐ ELLIÐAÁR. Þá hefir Rafmagnsveita Reykja- víkur fengið heimild borgarráðs til að leita samninga við tvö svissnesk fyrirtæki um nýja gufuáflvél í vara- stöðina — topþstöðina svonefndu — við Elliðaár. Samningum er ekki lokið, en talið líklegt, að gangi sam an mjög bráðlega, svo að hægt verði að standast þá áætlun, að nýja vélin verði komin í gagnið um áramótin 1963—64. í varastöðinni við Elliðaár er nú hægt að framleiða 7500 kílóvatta raforku, en viðbótin verður mun meiri, því að nýja vélin á að fram- leiða, 11,500 kílóvött, svo að stöðin mundi þá framleiða 19,000 kílóvött á árinu 1964. Sami háttur verður á, og verið hefir, að stöðin verður varastöð hitaveitunnar, snerpir á vatninu, þegar kaldast er í veðri, því að þá nýtist vatnið mun betur en ella. NÆSTÍ ÁFANGI ÁRIÐ 1966. 1 Að endingu spurði Vísir Jakob Guðjohnsen, hvað ;ert væri ráð fyrir, að þessi viðbótaorka. þessi 27,000 kílóvött mundu endast lengi, og svaraði hann þvl, að gert væri ráð fyrir, að árið 1966 þyrfti nýtt orkuver að koma til sögunnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.