Vísir - 21.09.1962, Side 4

Vísir - 21.09.1962, Side 4
 / '"SIR Föstudagur 21. september 1962. KSMB LOM í ár eru liðin 75 ár síðan hið alm. danska garð- yrkjufélag var síofnað, og í sumar hefjr þessa verði minnzt með ýmsu móti víðs vegar í Dan- mörku. Hámark hátíða- haldanna er garðyrkju- sýning ein mikil í Fórum í Kaupmannahöfn, sem opnuð verður hinn 28. september n. k. Öllum Norðurlöndunum hef- ir verið boðin þátttaka í sýn- ingunni og er þegar unnið að miklum sýningardeildum frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Af íslands hálfu taka tveir garð yrkjubændur þátt í sýningu þessari, af hálfu Garðyrkju- bændafélags Árnessýslu, þeir Paul V. Michelsen og Lauritz Christiansen í Hveragerði. Fréttamaður blaðsins átti tal við Paul Michelsen í-^pessu til- efni, spurði hann um sýninguna og væntanlega þátttöku þeirra félaga í henni. Paul var að vísu önnum kaf- inn ásamt frú sinni, Sigríði, gð afgreiða viðskiptavini, er komn- ir voru til að sækja sumarauka f gróðurhús hans, er frétta- mann bar þar að, svo viðtalið varð ærið slitrótt. Konumar völdu sér blómin, en úr mörg hundruð tegundum og afbrigð- um pottablóma er að veljg í stöð Pauls, og börnin þurftu einkum að skvaldra við apann Jobba og páfagaukinn Láru auk fjölda japahskra hrisgrjóna fugla og dvergpáfagauka, sem dveljast þarna í gróðurhúsinu meðal blóma. Eiginmennirnir standa svo álengdar, albúnir að borga brúsann, þ. e. a .s. sum araukann í líki nokkurra blómsturpotta frá Paul og gera sér. þá kannski til dundurs að virða fyrir'sér bananatréð, sem bráðlega ber fullþroska ávöxt. — Verður þetta mikil þátt- taka hjá ykkur, Paul?, — Ég víl taka það strax fram, segir Paul, að þess var sérstaklega vænzt af Dana hálfu, að héðan yrði almenn þátttaka í sýningunni og mér finnst persónulega mjög leitt, aÖ við skulum aðeins vera tveir, sem sjáum okkúr fært að taka þátt í sýningunni héðan frá Islandi. íslenzkir garðyrkju- menn hafa áður tekið þátt í sýn ingum bæði f Danmörku og Finnlandi en ég þori að fullyrða að það er meira magn af blóm- um sem við förum með að þessu sinni en áður hefir farið héðan á Nórðurlandasýningar. — Hvernig flytjið þið blóm- in? — Við hjónin förum með Gullfossi á laugardaginn og tökum þá með okkur einar 20 — 30 tegundir af pottablómum meðal annars. Lauritz Christ- iansen flýgur út rétt fyrir opn- un sýningarinnar og þá koma afskornu blómin, sem einkum verða nellikur úr garðyrkjustöð hans, en Christiansen er einn fremsti nellikuræktarmaður hér á landi. Vidfal við Michelsen, gnrðyrkju- snann í Hveragerði — Og þetta verður mikil sýning? — Ég held, að það sé óhætt að vænta þess, að hér verði um eina stærstu og merkustu garð- yrkjusýningu að ræða, sem haldin hefir verið fram á þenn- an dag í Danmörku og á Norð- urlöndunum. Drottning Dana mun verða verndari sýningar- innar, og hún mun opna hana hinn 28. og gert er ráð fyrir, að sýningin standi í átta daga. — Um hlutdeild okkar í sýn- ingunni, segir Paul, er það að segja, að þrátt fyrir mikinn kostnað og erfiðleika munum við reyna að gera okkar bezta. Ég vil geta þess í þessu sam- bandi, að aðalritari sýningar- innar er islandávinurinn J. N. Sennels, ritstjóri danska garð- yrkjuritsins. ^Hefur hann heitið því að greiða fyrir okkur á all- an hátt á sýningunni og vænt- Paul V. Michelsen í gróður- húsi sfnu. Paul V. Michelsen. um við hins bezta af samstarf- inu við hann. — Hvernig verður svo ykkar deild komið fyrir? — Nú, það er nú kannski varla hæfet að vænta þess, að okkar deild — éins og þú nefnir þetta svo hátíðlega — setji mikinn svip á þessa miklu sýningu. Við fáum 20 fermetra gólfflöt til yfirráða á sýningar- svæðinu. Við höfum fengið til aðstoðar danskan sérfræðing, sem við væntum mikils af við- víkjandi fyrirkomulagi og upp- setningu. Við höfum hugsað i ókkur þarna öðrum þræði ís- lenzka landslagsstælingu, hraun, gjósandi hver og þess háttar, en annars er ekki rétt að fara nánar út í þetta að svo komnu máli. Við höfum þegar sent út heilmikið af hraungrýti og ég mun m. a. taka með mér mosa í þessu skyni. Þar með er Paul "horfinn til viðskiptavinanna.farinn aðselja kvenfólkinu sumarauka f stærri og minni blómapökkum og frúrnar þurfa að fræðast af honum, hvernig á að með- höndla hverja tegund. Paul er hið mesta lipurmenni og svarar jafnvel hinum furðulegustu spurningum af næmum skiln- ingi. En þegar krakkarnir kalla til hans og spyrja, hvort þau megi gefa apanum Jobba meiri brjóstsykur, þá er það þvert nei, bæði hjá Paul og frú Sig- rfði. Paul Michelsen nýtur mikilla vinsælda, stéttarbræðra sinna og viðskiptavina, sem dugandi garðyrkjumaður. Hann hefur átt þátt í þeim garðyrkjusýning- um, sem hér hefir verið stofnað til á undanförnum árum og kynnt sér það bezta sem fram- leitt er í gróðrarstöðvum ná- grannalandanna, einkum í Dan- mörku og Hollandi. Sér þess glögg merki f- garðyrkjustöð hans, og í gróðurhúsum hans kennir margra grasa. Við rek- um augun í þroskamiklar og lit- fagrar Krotonplöntur, sem lík- lega mundu sóma sér vel á hvaða garðyrkjusýningu sem • er og ef til vill eiga þær líka eftir að gera garðinn þeirra Christiansen frægan í Forum á næstunni. Maður hlýtur að staldra við og virða fyrir sér breiðu af ævintýralegum Monsterum, með hvanngrænum og drifhvftum blöðum, en hér er um að ræða eina af nýjung- unum hjá Páli. 'Þá eru þarna alblómstrandi Bucaenvillaplönt- ur, en þær blómstra víst 'lengst og mest allra potta- 'blóma. Þessar sér bókstaflega ekki f fyrir blómskrúði, og svo sannarlega gæti manni dottið í hug að eitthvað af þeim ætti samleið með Paul til Hafnar með Gullfossi á morgun. Að þessu sinni eru ekki tök á því að frétta nánar um þetta hjá Paul, gróðurhúsið og bók- staflega orðið fullt af viðskipta vinum og það má segja að „sumaraukinn", það er að segja pottablómin hans fljúgi út og það kemur sér vel að af nógu er að taka. Enda mætti segja mér, að Paul yrði ekki síður blaðamatur heimkominn af hinni miklu garðyrkjusýningu dönsku garðyrkjumannanna í Forum sem hennar hágöfgi Ingiríður drottning mun opna og vernda. St. Þ. I á stærstu garðyrkjusýningu Dana •CT.ee*

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.