Vísir - 21.09.1962, Qupperneq 13
Föstudagur 21. septeraber 1962.
13
'HSIR
U Thant
— og heimsókn hans
til Moskvu
U. Thant, aðalritari
SÞ var á miklu ferðalagi
áður en allsherjarþingið
hófst og kom m. a. til
Moskvu. — Þaðan hélt
hann áfram til hinna
A-Evrópulandanna og
hafði tal af ráðamönn-
um þar. En í Moskvu tal-
aði hann við Krúsév og
þar voru rædd mörg og
mikil vandamál, m. a.
Berlín, - og það sem
skiptir U Tant mest,
hans eigin framtíð hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Eru möguleikar fyrir því á
næsta þingi að eining skapist
um kosningu aðalritarans fyrir
komandi kjörtímabil? Þeir fara
fyrst og fremst eftir afstöðu
Rússa og þess vegna er U
Thant að leita hófanna í
Moskvu. Þannig geta móttök-
urnar sem hann fær þar leyst
ofangreinda spurningu.
Auga fyrir auga.
Það er vitað að Rússarnir
gera áldrei neitt nema fá eitt-
hvað í staðinn, og því er það,
að ef UThant fer fram á eitt-
hvað í Moskvu, verður hann að
greiða eitthvað í sömu mynt.
En meira máli skiptir, hvaða
dóm Rússarnir leggja á U Thant
eftir viðræður hans við þá.
Hann sjálfur mun hins vegar
fá nokkuð ljósa grein hvaða af-
stöðu Rússarnir munu taka og
hvað þeir munu hengja hatt
sinn á.
Síðustu árin hafa Sovétríkin
fylgt reglu Lenins, „tvö skref
áfram, eitt til baka“. Fyrir
dauða Hammerskjölds og út-
nefningu U Thant kröfðust
Rússarnir þriggja aðalritara,
einn frá hverjum aðila, sem
hefði náttúrulega þýtt dauða
Sameinuðu þjóðanna. Þegar
þessar tillögur þeirra fengu
engan hljómgrunn hjá hinum
nýju meðlimaríkjum féllu Sov-
étríkin frá kröfum sínum og
samþykktu það fyrirkomulag að
U Thant hefði. átta ráðgjafa,
sem hefðu með hin ýmsu mál
að gera. Á þetta er litið sem
spor til baka af hálfu Rúss-
anna.
I
Þriðji aðalritarinn.
U Thant hefur ekki tekið
mikið tillit til ráðgjafa sinna,
en hefur náið samband við þrjá
þeirra: rússneska geimsérfræð-
inginn Kisselev, afvopnunarsér-
fræðinginn frá hinu hlutlausa
arabíska sambandi, Loutfri og
hinn hlutlausa Indverja Nara-
simhan.
Útnefning UThant er, út frá
rússneskum sjónarhóli, að
mörgu leyti spor í rétta átt.
Fyrsti aðalritarinn var Tryggve
Lie, s á næsti Dag Hammer-
skjöld, báðir frá vestrænum
löndum. U Thant er hins vegar
viðurkenndur sem hlutlaus full-
trúi. Spurningin er hvort þetta
sé nóg fyrir Moskvumenn, eða
hvort þeir krefjist austræns að-
alritara, jafnvel á kostnað þess
að SÞ splundrist.
Tryggve Lie var hundsaður
af kommúnistum og sagði að
lokum af sér, Hammerskjöld
var sömuleiðis hundsaður, en
barðist áfram og Iézt í starfi
sínu. UThant er Buddhatrúar,
hlutlaus og er raunsæismaður.
Hann hefur enn þá tækifæri til
að sfna dug sinn — hefur enn
þá tækifæri til að lifa þetta af.
En það verður einnig spursmál
um hvort Sameinuðu þjóðirnar
lifi það af.
Ýmisleg áhrif
— og stuðningur.
Undir hans stjórn hafa SÞ
skipt um andlit. Undir áhrifum
frá ráðgjafa sínum Kisselev lét
U Thant í ljós í skýrslu sinni
til afvopnunarráðstefnunnar.
austurþýzkt sjónarmið, sem
vakti mikla gremju. Afstaða
hans varð veigameiri við um-
ræðurnar um Vestur Nýju
Guineu. Hann mótraælti skoð-
unum Hollendinga og lagði
blessun sína yfir þann samning
sem segir að landið tilheyri
Indónesíu og gefur íbúum þess
frelsi. Á þetta var litið sem sig-
ur fyrir U-Thant — en það get-
ur orðið Pyrrhusar sigur fyrir
SÞ. Og það er hann, sem hefur
sett fram skilyrði SÞ gagnvart
Katanga — til að viðhalda orð-
stír SÞ án tillits til stjórnmála-
legra eða almennra afleiðinga.
Styrkur U Thant er að hann,
bæði varðandi vandamál í
Vestur Nýju Guineu og Kat-
anga — er studdur af alefli af
Bandaríkjunum og auðvitað
einnig Sovétríkjunum.
Margir halda einnig að U
Thant starfi samkvæmt þeim
hugsjónum, sem upprunalega
mynduðu SÞ, og því hafa þeir
velþóknun á honum.
Þrjú mál eru veigamest fyrir
UThant í Moskvu. Hans eigin
aðstaða — undansláttur Sovét-
BERU bifreiðakerti
50 ARA
Mi
w
1912 — 196:
"XFFrrr
fyrirliggjandi i flestar gerðii bif-
reiða og benzinvéla. BERU kertin
eru „Original“ hluti: i vinsælustu
bifreiðum Vestur-Þýzkalands —
50 ára reynsla tryggir gæðin —
SMYRILL
Laugavegi 170 — Sími 1 22 60
ríkjanna við að greiða gjald sitt
til SÞ og ás'tandið í Berlln og
Gaza. Það fyrst talda verður
ráðið af útkomu hinna tveggja.
U-Thant kemur til Moskvu
vopnaður úrskurði alþjóðadóm-
stólsins 1 Haag, þess efnis að
aðildarríkin séu skyldug til að
greiða, einnig til þeirra að-
gerða, sem þau séu mótfallin.
Vandamálið í Berlín fellur ekki
f verkahring SÞ.en samkvæmt
grein 107 f lögum þeirra, þá
geta þær látið málið til sfn taka
ef „það ógnar heimsfriðnum"
Hvað getur hann?
Hvað getur UThant boðið
Krúsév og hvers mun Krúsév
krefjast?
Óskar hann sterkari komm-
úniskra áhrifa í stjórn Sam-
einuðu þjóðanna? Krefst hann
þess að SÞ láti Berlínarmálið
til sfn taka? Og hversu Iangt
gengur UThant sjálfur f kröf-
um sfnum?
Hann hefur, þetta ár, sem
hann hefur setið sem aðalritari
gert mikið til þess að auka og
styrkja stöðu þriðja aflsins,
hlutlausu rfkjanna innan SÞ, —
og þar með sína eigin aðstöðu.
Getur hann þannig gert hinar
nýju þjóðir svo sterkar að hann
geti staðið á eigin fótum eða
verður hann að vera upp á
Rússana kominn?
Nýkomnir amerískir
vatteraðir
Nylon-
sloppar
Verð kr. 495,00
Einnig úrval af
hollenzkum greiðslu-
sloppum, sérstaklega
vönduðum.
Marteinn
Fata- & gardínudeild
Einarsson & Co.
Laugavegi 31 - Sími 12816
SLÁTURSALA
Við viljum vekja athygli viðskiptamanna okkar á, að slátursala vor
hefur, af óviðráðanlegum ástæðutn, verið flutt úr sláturhúsi okkar
við Skúlagötu 20.
Öll slátrursala til einstaklinga, fer nú fram í Kjötbúð
Vesturbæjar, Bræðraborgarstíg 43 alla virka daga
frá 8-6, nema föstudaga og laugardaga.
Ennfremur viljum við vekja athhygli á, að sala dilkakjöts á haust
tnarkaðsverði, til einstaklinga, fer fram í öllum verzlunum félagsins,
sem eru:
Matardeildin, Hafnarstr. 5
Kjötbúð Vesturbæjar, Bræðraborgarst. 43
Matarbúðin, Laugavegi 42
Kjötbúðin, Skólavörðust. 22
Kjötbúðin, Grettisgöu 64
Kjötbúðin, Brekkulæk 1
Kjötbúðin, Réttarholtsveg 1
Kjörbúðin, Álfheimum 4
Matarbúðin, Akranesi. i
Sláturfélag Suðurlands
SKÚLAGÖTU 20.