Tölvumál - 01.06.1995, Blaðsíða 7
Júní1995
Kostir myndsímunar
Aukin samskipti fyrirtækja, sér-
staklega á milli landa.
Auðveldar ákvarðanatöku.
Tímasparnaður vegna ferðalaga
Peningasparnaður einnig vegna
ferðalaga.
NánariJjölskyldutengsl, þau verða
alltaf nánári þegar að við sjáum
hvort annað.
Vandamál vegna
myndsímunar
Vöntun á ISDN í mörgum löndum
en þetta vandamál fer sífellt
minnkandi.
Verð búnaðar, fleiri kostir
mögulegir en sérstök tæki, t.d.
búnaður í tölvu.
Gæðin á samspili hljóðs og
myndar, fer batnandi en hvað
erum við tilbúin að sætta okkur
við
Hrœðsla notenda við nýjan búnað
er alltaf til staðar. Tæknin á
eftir að verða almenn og á
tækniöld eru flestir vanir því að
sjá eða vinna með tölvu.
Símafundir - Video
conference
Vegna þess hve tækjabúnaður
var dýr þá leituðust fyrirtæki, sem
þurftu að halda símafundi, við að
leigja aðstöðu til fundanna.
Núna hafa verðin lækkað og þá
er meira um það að fyrirtæki komi
sér upp eigin búnaði til þess að
halda símafundi.
Sú þróun sem haft hefur mest
áhrif á útbreiðsluna er:
- Þróun á kóðunarbúnaði og
þjöppun sem gerir það að
verkum að hægt er að nota upp-
hringisamband inn á ISDN net
og náð fram fullnægjandi
myndgæðum.
- Alþjóðlegir staðlar varðandi
símafundi hafa komið fram.
- Vaxandi markaður fyrir einka-
tölvubúnað til samskipta á milli
tveggja aðila eða lítilla funda.
- Verðlækkun búnaðar gerir
símafundi að nærtækri lausn.
- Þróun samskiptatækni og út-
breiðsla á ISDN.
Þessi þróun hefur haft í för með
sér að símafundir eru ijárhagslega
innan seilingar hjá fyrirtækjum.
Fyrirtæki sjá meira og meira
hvernig þau geta hagnast með
notkun símafunda - lækkun kostn-
aðar vegna ferðalaga, tímasparn-
aður og auðveldari og meiri skoð-
anaskipti. Bandvíddarþörf vegna
ásættanlegra myndgæða hefur
fallið þar sem 128Kb/s ISDN
tenging er álitin fullkomlega
nægjanleg. Aukin þjöppunartækni
og aðferðir sem byggja á því að
ijarlæga upplýsingar úr myndsend-
ingunni, sem augað ekki nemur
hafa orsakað þessa minnkun á
sendihraða sem krafist er til þess
að ná fullnægjandi gæðum.
Tölvumál - 7