Tölvumál - 01.06.1995, Blaðsíða 27

Tölvumál - 01.06.1995, Blaðsíða 27
Júní1995 ÍST 32 frá sjónarhóli SÍH Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á hádegisfiundi SI 6. apríl 1995 Eftir Eggert Claessen Undirritaður er fulltrúi Sam- taka íslenskra Hugbúnaðarfram- leiðanda (SIH) í tækninefnd sem hefur unnið að endurgerð ÍST 32. Til þess að útskýra örstutt hvað SÍH er, þá er það hagsmunasamtök fyrirtækja sem hafa hugbúnaðar- gerð að megin starfsemi sinni. Hagsmunamál SIH eru nær óteljandi en engu að síður eru mörg stór mál og brýn sem samtökin hafa beitt sér fyrir. Sjálfsagður hlutur eins og að viðurkenna hug- búnaðargerð sem iðnað og jafn- ræði í skattlagningu, aðgang að tjárfestinga- og rannsóknarsjóðum er eitthvað sem ekki varð að veruleika fyrr en á síðasta ári sem segir meira en margt annað um það mikla starf sem SIH er að vinna. Annað stórt hagsmunamál er það samkeppnisumhverfi sem fyrirtækjunum er skapað. Það skiptir auðvitað miklu máli í hvaða leik sem er að reglumar sem spilað er eftir séu þekktar og ekki síður að farið sé eftir þeim. Varðandi þessar leikreglur þá hefur stjórn SÍH horft mikið til staðla í þessu efni. í öllu alþjóðlegu samstarfi eru staðlar notaðir til þess að koma reglu á hlutina. Hver kannast ekki við staðla eins og GSM, ISDN o.s.frv. SÍH hefur þess vegna tekið virkan þátt í staðlastarfi og eins og öðru starfi þar sem verið er að móta reglur um samskipti aðila á tölvumarkaðinum. SIH hefur áður átt fulltrúa í tækninefnd sem var RUT nefndin til ráðgjafar og sú nefnd skilaði af sér innkaupa- handbók ríkisins í UT sem hefur haft mikil áhrif á kaup ríkisins á UT. Markmið SIH með þessari þátttöku er að koma á framfæri sjónarmiðum hugbúnaðarfram- leiðenda. Einnig að leggja eitthvað af mörkum til þess að leikreglur markaðarins verði skýrar og réttlátar. Það verður líka að koma fram að útboð á hugbúnaðar- sviðinu hafa verið afar fá, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og því nauðsynlegra en ella að festa reglur um slík útboð svo aðilar mark- aðarins kynoki sér ekki við að beita útboðsaðferðinni. I þessari stuttu greinagerð ætla ég hvorki að rekja efni staðalsins, né tala um það sem ekki er í staðlinum, heldur minnast á nokkrar áherslur sem ég tel mjög mikilvægar í þessari nýju útgáfu staðalsins frá sjónarhóli SÍH. Forsenda fyrirvali Það er nýmæli í ÍST 32, að tekið sé fram að sá sem er að bjóða út verk þarf að segja skýrt fyrir- fram hvaða reglum á að beita við val á verktaka. Eða eins og og segir í staðlinum, „Tilgreina skal allar forsendur sem kaupandi byggir valið á, í réttri röð eftir mikilvægi efþví verður við komið. Hér koma til greina atriði svo sem verð, afhendingartími, rekstarhag- kvæmni, gæði, tæknilegir kostir, útlit og notagildi, viðhaldsþjónusta og tæknihjálp. Ef lægsta verð einvörðungu ræður vali samn- ingsaðila skal þess getið. Einnig skal það koma fram ef verkkaupi áskilur sér rétt til þess að velja tvo eða fleiri bjóðendur til samn- ingagerðar.“ Þetta ákvæði er í fullu samræmi við þann grunntón sem er að finna í útboðsreglum Evrópubandalagsins sem við íslendingar þurfúm að hlíta. Einnig er þetta mikilvægt í ljósi reynsl- unnar því deilur vegna niðurstöðu útboða hafa risið vegna þess að verkkaupinn hafði ekki nægilega mótaða hugmynd um hvað hann vildi. Tilboði hafnað Það hefúr borið á því að verk- kaupi skili ekki gögnum eftir að útboði er lokið og búið er að velja bjóðanda til samningsgerðar. I staðlinum segir: „Ef tilboði er hafnað, ber verkkaupa að skila bjóðanda öllum tilboðsgögnum öðru en tilboðsyfirliti, nema um annað sé samið. Eigi má verkkaupi hagnýt sér gögn eða nýja hönn- unarlausnir er fylgdu tilboði sem hafnað hefur verið“. Það er mjög mikilvægt að verkkaupinn sýni bjóðendum lágmarks kurteisi og virði rétt þeirra. Höfundarréttur Hér er komið alþekkt þrætuepli í hugbúnaðargeiranum. í forstaðl- inum IST 32 var ekki neitt tekið á Tölvumál - 27

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.