Vísir - 01.10.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 01.10.1962, Blaðsíða 3
3 V í S IR . Mánudagur 1. október 1962. Skipstjórar á síldveiðiskipum héldu hóf í Lido á föstudags- kvöldið, fyrir Jakob Jakobsson fiskifræðing og þá menn, á Iandi, legi og í lofti. sem unnu með honum að síldarleitinni í sumar. Þarna voru samankomnir um 100 skipstjórar, flestir með kon- ur sínar. Var fólk í mjög góðu skapi og dansaði svo mikiö að heita mátti að enginn sæti, þeg- ar dansað var. Við tókum tali ýmsa menn og bar þeim öllum saman um að þakka mætti síldarieitinni mik- ið af þeim afla, sem fékkst í sumar. „Ég álít að um 50 pró- sent aflans sé síldarleitinni að þakka,“ sagði Finnbogi Magn- ússon, skipstjóri á Helga Helga- syni frá Vestmannaeyjum, sem var fjórða hæsta skipið. ímm; mmsmm »*»• t a <• nifiiilf filillsit! IÍffS| III* iiiii liaii I i Við hittum Jakob Jakobsson að máli. Það var erfitt að fá að tala við hann, því að hann var stöðugt umkringdur skipstjór- um. „Ég er mjög þakklátur fyr- '• ir að vera boðinn hér í kvöld,“ sagði Jakob. „Ég tel að samkoni ur sem þessi geti haft mikið gildi. Hér hittum við í síldar- leitinni í fyrsta sinn marga menn, sem við höfum talað við daglega í sumar. Ég þekkti ekki nema einn fimmta í sjón, af þeim sem hér eru, fyrr en í kvöld.“ „Ég vil sérstaklega taka það fram, að það er ekki ástæða til að þakka mér einum síldarleit- ina. Ég hefði verið harla lítils megnugur án þeirra ágætu sam- starfsmanna, sem ég hef haft, bæði á síldarleitarskipunum, flugvélinni og í landi,“ sagði Jakob að lolcum. Á efstu myndinni eru talið frá vinstri: Garðar Finnsson á Höfrungi öðrum, sem var annar aflahæsti bátur, Jakob Jakobs- son og Finnbogi Magnússon á Helga Helgasyni, sem var f jórði hæsti. í miðjunni: Skipstjórarnir bregða á leik og keppa um flösku af kampavíni og ferð fram og til baka til Vestfjarða, með dýpkunarskipinu Gretti. Neðst: Ðansinn er stiginn af miklu fjöri. Hér sést hringdans. (

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.