Vísir - 01.10.1962, Blaðsíða 5
V í SIR . Mánudagur 1. október 1962.
5
Tónlist
Skammir
Cíðara söngkvöld Tijt Kuusik,
^ óperusöngvara frá Eist-
landi var í Gamla Bíó í
síðustu viku. Undirleikari hans
var T. Alango. Efnisskráin var
óperuaríur eftir Mozart, Boro-
din, Giordano og Rossini, á-
sarrit ellefu sönglögum eftir
ýmsa. Kuusik hefur góða rödd
og kann hann vel til beitingar
hennar. Naut hann sín yfirleitt
bezt í aríunum og látlausustu
lögunum. Mörg sönglaganna
voru fagurlega sungin, en mér
fannst mikill ljóður á túlkun
fáeinna þeirra — oftúlkun
mætti kalla slíkan flutning. I
„Die zwei Grenadiere" eftir
Schumann hvarf músikin alveg
fyrir leikaraskap, hins vegar
sneri hann fábreytileika „Fiðl-
aralags" Griegs í lítið listaverk,
svo að einhver dæmi séu nefnd.
Framlag undirleikarans var
ekki mikið og það, sem verra
var, hljóðfærið ekki nógu vel
stillt. Áheyrendur heimtuðu
þrjú aukalög, þ. á m. „Mefisto-
aríuna“ eftir Gounod, þar sem
rödd og látbragð söngvarans
vakti geysihrifningu.
Dúast mátti við að húsið
troðfylltist, en svo var því
miður ekki. í okkar fábreytta
tónlistarlífi er skömm að láta
hljómleika fara fram hjá sér.
Þó er enn meiri skömm, að
gera þá að vettvangi villimann-
legrar útrásar í stappi og
frekjuklappi.
Þorkell Sigurbjörnsson.
VW\AAAAAAAAAAAA/V\AAAAAA/WWWWWW\AAAí
Út úr bifreiðinni
á fullri ferð
Allmikið bílslys átti sér stað upp
í Mosfellssveit sl. laugardagsnótt.
Maður slasaðist og bíll valt, hvort
tveggja með alvarlegum afleiðing-
um, en þó bar slys þetta að með
furðulegum hætti.
Rétt fyrir kl. 2 umrædda nótt
var stór áætlunarbíll á Ieið upp að
. Hlégarði, þar sem dansleikur hafði
verið haldinn þá um kvöldið. Er
áætlunarbifreiðin var komin miðja
vegu, kom fólksbifreið akandi á
móti. Þegar hún nálgaðist, skipti
það engum togum, dyr opnuðust
og maður hentist út úr fólksbif-
reiðinni. Bílstjórinn í stærri bif-
reiðinni, tók þann kostinn að snar
beygja út af veginum til að lenda
ekki á manninum, og við það valt
áætlunarbifreiðin. Skemmdist hún
nokkuð, en bifreiðastjórann sakaði
ekki. Var það mikil mildi að ekki
skuli hafa verið farþegar £ bifreið-
hans. Maðurinn sem hentist út úr
bifreiðinni slasaðist hins vegar
mikið, og var fluttur á Landakots
spftalann.
Bíómiðar
hækka
Verðlagsstjóri hefur tilkynnt
nýtt, hærra verð á aðgöngumið-
um kvikmyndahúsanna.
Verðið hækkar um tvær krónur
á hvern fullorðinsmiða, svo að
þeir miðar, sem kostað hafa, 19
kr. kosta framvegis 21 krónu og
svo framvegis. Þá er kvikmynda-
húsunum einnig heimilt að hækka
verð mjða um 50%, ef myndir
eru svo langar, að fækka verður
sýningum af þeim sökum ,eða ekki
er hægt að sýna þær nema með
sérstökum, fullkomnum tækjum.
Vnlt í Vaðlaheiði
Frá fréttaritara Vísis í morgun.
Á laugardagsmorgun kom bif-
reiðin R-12103 austur yfir Vaðla-
heiði til Akureyrar. Þegar hún kom
í efstu beygjuna rann hún til, með
þeim afleiðingum að hún hentist
út af veginum og valt einn hring,
en kom niður á hjólin aftur. Tveir
menn voru í bifreiðinni, bílstjór-
inn, að sunnan, og farþegi frá
Vopnafirði. Sakaði hvorugan, en
bíllinn stórskemmdist og var óöku
fær. Þetta var Moskwitsh-bifreið.
Drengur slasast
Frá fréttaritara Vísis í morgun.
Á föstudagskvöld viidi það slys
til fyrir framan húsið Hafnarstr.
53 á Akureyri, að 2ja ára drengur
hljóp fyrir bíl. Drengurinn lær-
brotnaði.
Auglýsing
eykur
viðskiptin
Gjaldeyrisstaðan—
Framhald af bls. 1.
bindingarnar hafa komið til frá-
dráttar á gjaldeyrisinnstæðum og
hafa því skuldir þessar og endur-
greiðsla þeirra ekki haft nein áhrif
á heildargjaldeyrisstöðuna.
í desember 1961 voru 2 millj.
dollara endurgreiddar af skuldinni
við Evrópusjóðinn. 1 janúar 1962
voru 2,5 millj. dollara greiddar Ev-
rópusjóðnum og eftirstöðvarnar 2,5
millj. dollara voru'greiddar £ febr.
1962.
Hinn 18. júní 1962 endurgreiddi
Seðlabankinn 2 millj. dollara af
yfirdráttarláninu hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum, og jafnhá upphæð
var endurgreidd 8. september s.l.
Eftirstöðvar af yfirdráttunum eru
nú 2,8 millj. dollara, en sú upp-
hæð samsvarar gullinnstæðu Is-
lands hjá sjóðnum. Hafa þvi öll
raunveruleg bráðabirgðalán hjá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópu-
sjóðnum nú verið endurgreidd.
Endurgreiðsla þessara lána hefur
reynzt möguleg án þess að þrengt
yrði að greiðslugetu bankanna er-
lendis vegna þeirrar aukningar,
sem orðið hefur á gjaldeyriseign-
inni. f lok febrúarmánaðar 1960
var gjaldeyrisstaðan óhagstæð um
216 millj. kr. í árslok 1960 var i
þess stað komin 127 millj. kr. nettó
innstæða. í árslok 1961 var svo
nettógjaldeyriseignin orðin 527
millj. kr. og f ágústlok s.l. 879
millj. kr. Hefur staðan því batnað
frá febrúarlokum 1960 til ágúst-
loka 1962 um' 1.095 millj. kr. Á
móti þessari breytirigu gjaldeyris-
stöðunnar siðan í febrúar 1960 er
áætlað að stutt vörukaupalán hafi I
aukizt um 300 millj. kr. og á sama j
tímabili hafa verið notaðar af óaft-
urkræfu framlr frá Bandaríkjun- '
um 191 millj. kr. Jafnframt er þess j
að geta, a" útflutningsvörubirgðir j
í lok ágústmánaðar s.l. námu alls ;
1.173 millj. kr., en það eru meiri
birgðir en verið hafa á þeim tíma
um margra ára skeið.
Allar tölur hér að framan eru ;
miðaðar við núverandi gengi. j l
Reumert —
FramhalÖ af bls. 1.
komu í krystalsal Þjóðleikhússins,
þar sem saman voru komnir lista-
menn þeir sem fram komu á há-
tíðinni og m. a. skyldfólk frú
Önnu Borg hér á landi.
I þessari samkomu tilkynnti
Gunnar Thoroddsen, að Norræna
félagið hefði kpsið þrjá heiðurs-
félaga, þá próf. Sigurð Nordal,
Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhús-
stjóra og Stefán Jóhann Stefáns-
son sendiherra. Þeir tveir fyrr-
nefndu voru viðstaddir til að taka
á móti heiðursskjölum. Próf. Sig-
urður Nordal minntist með nokkr-
um orðum stofnfundar Norræna
félagsins og lýsti gleði sinni yfir
því, hve félagið hefði vaxið og
eflzt. Guðlaugur Rósinkranz sagði
að sér þætti sérstaklega vænt um
þennan heiður, þar sem Norræna
félagið hefði ætið verið honum
sérstaklega kært.
Afmælishátíðin var fjölbreytt
og verður eftirminnileg fyrir þá
góðu list, sem þar kom fram og
náði e. t. v. hámarki í upplestri
heiðursgestanna. Frú Anna Borg
las fyrst upp kvæðið Svanerne i
Norden eftir Seedorf Pedersen,
Poul Reumert las upp Þorgeir í
Vík eftir Ibsen. Anna Borg las
smásöguna Synirnir eftir Gunnar
Gunnarsson af mikilli tilfinningu
og snilld og loks var fluttur loka-
þátturinn úr Fjalla-Eyvindi. Önnur
skemmtiatriði voru að norski ó-
perusöngvarinn Olav Eriksen söng
sex lög eftir Grieg, sænski fiðlu-
leikarinn Gert Craford lék fjögur
lög eftir Tor Aulin með undirleik
konu sinnar Ann Mary Fröier og
Kristinn Hallsson söng fjögur
finnsk lög. Ámi Kristjánsson lék
undir með Olav Eriksen og
Kristni.
Hrapaði —
Framhald af bls. 1.
getað fests í skoru og snúist um
leið og hann féll fram fyrir sig.
— Hafði Jón aldrei farið þarna
áður?
— Jú, hann var alvanur og
þekkti allt þarna, léttur á sér, svo
að þetta var allt þeim mun óskilj-
anlcgra. Hann hafði oft farið þarna
upp í Klifið til að smala. Við vor-
um á leiðinni niður í skorninginn
til að styggja kindunum upp.
Samkvæmt upplýsingum Einars
Vals Bjarnasonar læknis, sem fór
á slysstaðinn var dánarorsökin
höfuðkúpubrot.
Sendill óskast
Vinnutimi 9.30 til 12 f. h.
Uppl. i prentsmiðjunni.
Dagblaðið VÍSIR.
Sjötugur í dag:
Egill Guttormsson
stórkuupmaður
Egill Guttormsson, stórkaupmað-
ur, er sjötugur i dag. Hann er
fæddur að Ósi í Hörgárdal, sonur
hjónanna Elínar Gunnlaugsdóttur
og Guttorms Einarssonar alþm. í
Nesi. Ásmundssonar. Fjórtán ára
að aldri, árið 1907, fluttist Egill
til Reykjavíkur og réðst til verzl-
unarstarfa hjá föðurbróður sinum,
Gunnari Einarssyni, er þá hafði
með höndum umfangsmikinn
verzlunarrekstur. Hann stundaði
síðan verzlunarstörf hér í bæ og
stofnaði 1929 umboðs- og heild-
verzlun þá, er hann hefur rekið
síðan, einkum með ritföng og skrif-
stofutæki og er verzlun hans
Iöngu landskunn fyrir ódýrar- og
vandaðar vörur.
Egill hefur haft mikil og farsæl
afskipti af félagsmálum. Á unga
aldri átti hann sæti í stjórnum
U.M.F.Í. og U.M.F.R. og ýmissa
íþróttafélaga Síðar beindist á-
hugi hans að félagsmálum stéttar
sinnar, verzlunarstéttinni. Hann
var m. a. um langt árabil einn
helzti forvígismaður Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur og átti
lengi sæti i stjórn þess og var for-
maður í nokkur ár. Form. Félags
ísl. stórkaupmanna var hann einnig
£ nokkur ár og í stjórp Verzlunar-
ráðsins. í skólanefnd Verzlunar-
skólans átti hann sæti meira en
tvo áratugi. Hann var kjörinn full-
trúi stórkaupmanna í stjórn Verzl-
unarsparisjóðsins og varð fyrsti
formaður hans. Síðar var hann
kjörinn fyrsti formaður Verzlunar-
banka íslands h.f. Af framanrituðu
sést hvers trausts Egill hefur átt
að fagna hjá stétt sinni, enda hef-
ur hann ávallt verið ötull liðsmað-
ur í öllúm þeim málum, sem hann
hefur látið til sín taka.
Egill hefur verið gæfumaður í
lífi sínu og getur horft glaður yfir
farinn veg. Vísir færir honum
beztu hamingjuóskir á þessum
merkisdegi.
Frá Vélskólanum
Ákveðið er að breyta námsskrá 1. bekkjar
rafmagnsdeildar Vélskólans í samræmi við
inntökuskilyrði í danska og norska tækni-
fræðiskóla.
Inntöku í bekkinn geta fengið:
a) sveinar allra iðngreina
b) aðrir, sem að dómi skólastjórnar
hafa hlotið nægilega verklega þjálfun.
— Inntökubeiðnir þurfa að berast sem allra
fyrst, enda gert ráð fyrir að kennsla hefjist
fyrir 10. október.
Vélskólinn verður settur miðvikudaginn 3.
október kl. 14.
Gunnar Bjarnason, skólastjóri.
Skrifstofumaður
Skrifstofumaður, vanur bókhaldi og öðrum
skrifstofustörfum, óskast nú þegar eða sem
fyrst.
PÁLL ÞORGEIRS SON, Laugavegi 22.
Röskur sendisveinn
óskast nú þegar allan daginn.
I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN.