Vísir - 01.10.1962, Page 16
VISIR
Mánudagur, I. október 1962.
ikið vatnsmagn kom vi
borun
Hinir nývígðu prestar og eiginkonur þeirra á heimili biskups í
gær. Til vinstri er séra Bernharður og Rannveig Sigurbjöms-
dóttir kona hans, en til hægri séra Ingólfur og Áslaug Eiríks-
dóttir kona hans.
PrestvfgsEa í gær
Tveir nýir liðsmenn bættust í
hóp starfandi presta f gær. Prest-
vígslan fór fram í Dómkirkjunni í
Reykjavík. Biskupinn hr. Sigur-
björn Einarsson vígði tengdason
sinn, Bernharð Guðmundsson,
prest til Ögurþinga j Isafjarðar-
prófastsdæmi og Ingólf Guð-
mundsson frá Laugarvatni prest til
Húsavíkur. Séra Ingólfur Ástmars-
son biskupsritari lýsti vígslu og
vígsluvottar auk hans voru séra
Rósturvið
háskóla
I gærkvöldi kom til snarpra á-
taka við Háskóla í Mississippi í Ox
ford þegar liðsmenn úr ríkislög-
reglunni opnuðu svertingjanum
Meredith Ieið að skólanum. Mikill
mannf jöldi hafði safnazt saman við
háskólann, sumir vopnaðir hagla-
byssum. Hófu þeir skothrið til að
ryðja sér leið inn í háskólalóðina
og Iétu tveir menn lífið, lögreglu-
maður og fréttamaður. Ríkislög-
reglu og herliði hefur verið gefin
skipun um að beita valdi ef á þarf
að halda.
Jósep Jónsson, Jóhann Hannesson
p^ófessor og séra Sigurður Guð-
mundsson á Grenjaðarstað. Annar
hinna nývígðu presta, séra Ingólf-
ur Guðmundsson, prédikaði. Auk
biskupsins þjónaði séra Óskar J.
Þorláksson, dómkirkjuprestur, fyr-
ir altari.
Mikið fjölmenni var við vígslu-
athöfnina, sem var hin hátíðleg-
asta.
m
Á föstudagskvöldið gerðist það
norður í Ólafsfirði, að Norður-
landsborinn, sem þar var að verki
kom allt í einu i 277 metra dýpt
'niður á mikið heitt vatn. Þegar
þetta gerðist hafði borinn farið
niður úr harðri klöpp en kom allt
í einu í sprungu, 10-12 m á dýpt.
— Kom þetta þannig fram
að borinn féll skyndilega niður
um marga metra og næstum því
samtímis brauzt vatnið upp.
Vatnsmagnið úr holunni var um
40 sekúndulítrar og er það um
helmingi meira vatnsmagn en úr
öllum öðrum holum í Ólafsfirði, en
hiti vatnsins er aðeins 48 stig. Það
er búizt við að vatnsmagnið muni
minnka en hitinn e. 't. v. hækka
nokkuð næstu dagá.
Vlsir átti samtol við Ásgrím
Hartmannsson, bæjarstjóra 1 Ólafs-
firði, sem staddur er hér í bænum.
Hann sagði m. a.:
— Hitaveita Ólafsfjarðar er elzta
hitaveita landsins, var tengd árið
1943. Vatnsmagnið var allsæmilegt
til að byrja með, en hitinn hefur
Vorveður á
Norðurlandi
Frá fréttaritara Vísis í morgun.
Á laugardag var vorveður um
allt Norðurland, hiti, logn og hlýj-
indi, hiti víða tólf stig. í gær vgr
lítið eitt kaldara, en í morgun er
aftur vorveður og 9 stiga hiti.
Snjór, sem kóm fyrir viku síðan
er horfinn að mestu eða öllu leyti
úr fjöllunum.
verið lágur. Síðari árin eftir að
byggð í Ólafsfirði fór ao vaxa var
svo komið fyrir þrem árum, að hita
veitan var orðin ófullnægjandi.
Nú bíða 40—50 húsbyggjendur,
sem eru að byggja eða byggðu á
s.l .ári eftir þvi hvort þeir fá hita-
veitu, sagði Ásgrímur. Ég ætla að
þeirra fögnuður sé mikill því að nú
ætla ég að það sé nokkurn veginn
tryggt að þeir fá hitaveitu.
Hitaveituboranirnar í Ólafsfirði
fara fram í svonefndum Skeggja-
brekkudal, sem er um 4 km frá
bænum frammi í dal.
Bill Haley
m næs~
Um næstu helgi er von á til
landsins hljómsveit Bill Haley,
frægustu „rock“-hljómsveit
heims, sem fræg varð á sínum
tíma fyrir að vera ein fyrsta
„rock“-hljómsveitin. Mun
hljómsveitin standa hér við í
tæpa viku og halda nokkra
hljómleika hér og á Keflavíkur-
flúgvelli.
Hljómsveitin hefur að undan-
íþrnu verið á hljómleikaferð
um Evrópu og hefur hlotið
mjög góðar undirtektir.
Eins og fyrr segir varð hljóm
sveitin fræg fyrir að leika
„rock ’n roll“ og fór mikla sig-
urför um heim allan. Meðal
annars var hljómsveitin í kvik-
mynd, sem sýnd hefur verið
hvað eftir annað í Stjörnubíó
og nefnist Rock around the
clock.
Að undanförnu hefur hljóm-
sveitin leikið mikið twist. Hef-
ur lagið „Spanish twist“, sem
þeir leika, hlotið miklar vin-
sældir bæði hér og erlendis.
Hefur blaðið haft spurnir af því
að plata rrjeð þessu lagi hafi
selst upp hvað eftir annað hjá
hljórnplötuverzlunum hér í
bænum.
Héðan mun hljómsveit Hal-
eys halda vestur um haf.
t/ogangur a
Það var allt útlit fyrir í gærdag,
að sams konar óveður ætlaði að
skella á í Reykjavík og geysaði
hér um síðustu helgi. Eftir því sem
líða tók á dagirin, jókst alltaf vind-
hraðinn og var um 8 vindstig þeg-
ar mest var. Um kvöldið gerði
rigningarbyl með norðanáttinni og
Miði nr. 1025
Eigandi áskriftarmiða Vísis nr.
1025 hefur énn eigi gefið sig fram,
en hann hefur unnið í áskrifenda-
happdrætti Vísis gólfteppi frá Ax-
minster fyrir 10 þús. kr.
Á laugardaginn eftir afmælishátíð Norræna félagsins í Þjóðleikhúsinu hafði stjórn Norræna félagsins sam-
kornu í Krystalssalnum. Þar tilkynnti formaður félagsins, Gunnar Thoroddsen, að þrír menn hefðu verið
kjörnir heiðursfélagar og afhenti hann tveimur þeirra sem viöstaddir voru heiðursskjal um það. Sjást þeir
hér á myndunum, þeir próf. Sigurður Nordal og Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri.
var hið versta veður.
Engin teljandi slys urðu, en
margvísleg vandræði hlutust og
var lögreglan á þönum um allan
bæ að hjálpa og aðstoða menn.
Verst var ástandið niður á Skúla-
götu, þar sem sjórinn gekk yfir
götuna og buldi á vegfarendum.
Bifreiðir, sem áttu þarna leið um,
stöðvuðust margar hverjar vegna
bleytunnar. Mátti þar sjá fjölda
bíla í lamasessi, aðra 1 togi og
enn öðrum var ýtt af handafli af
eigendunum í næsta skjól.
Upp úr miðnætti slotaði þó mik-
ið veðrinu og þegar Reykvíking-
ar komu á fætur í morgun var hið
ágætasta veðurlag. Veðurstofan
spáir stinningskalda næsta / sólar-
hringinn.
Skyndi-
happdrætti
SpEfsfæðis-
flokksins
SKYNDIHAPPDRÆTTI SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS er í full-
um gangi. í Reykjavík eru mið-
arnir seldir í happdrættisbifreið
unum við Útvegsbankann, en
einnig í skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins vlð Austurvöll. Dreg-
ið 26. október n.k. — Kaupið
miða strax.
li