Vísir - 04.10.1962, Síða 2
2
V í S IR . Fimmtudagur 4. október 1962.
Nýjear áhugomannaresilur:
„Helmingur baudariska
OL-liðsius atviuuumenn
i segir Avary Srundage, forsefi
Alþjóðaolympíunefndarinnar
„Væri nýju skilgreining-
unni á hugtakinu áhuga-
maður framfylgt mundi a.
m. k. helmingur banda-
Erlnndat'
fréitir
• Ingemar Johannsson fær ekki
að snúa frá Bandaríkjunum og
stendur nú í miklu stappi við
stjórnarvöld Bandaríkjanna út af
j>essu. Ástæðan: Ingemar er talinn
skulda skattayfirvöldum Banda-
ríkjanna um eina milljón dollara
eftir 3 keppnir við Patterson.
• Argentínumaðurinn Aléjandro
Lavorant^ Jiggur enn meðvitundar-,
laus í sjúkrahúsi eftir áverka sem
hann hlaut í hnefaleik fyrir rúmri
viku.
ríska OL-liðsins frá Róm-
arleikunum verða dæmt
sem atvinnumenn“, sagði
Avery Brundage nýlega,
en hann er forseti Alþjóða-
olympíunefndarinnar og
járnharður andstæðingur
atvinnumennsku í íþrótt-
um svo sem kunnugt er.
Alþjóðaolympíunefndin setti
nýjar reglur varðandi þetta mikil-
væga atriði nýlega á ráðstefnu
sinni í Lausanne í Sviss. Eru regl-
urnar einkum strangar gagnvart
þeim íþróttamönnum, sem haldið
er uppi af ríkisfyrirtækjum, herj-
um, og þeim sem fengið hafa
skólastyrki vegna afreka sinna á
íþróttasviðinu.
Tveir fulltrúar Bandaríkjanna
hafa mótmælt þessum ummælum
og telja, ,að sárafáir bandarísku
fulltrúanna geti ekki komið hreint
til dyra 1 þessu máli. T. d. komist
enginn ná.msmaðpr lengur í banda-
//
rískan háskóla nema hafa lokið
tilskildum prófum og þar gilti einu
hvort nemandinn væri góður
Iþróttamaður eða ekki.
Æft fyrir .BIKARINN
í gærkvöldi Iögðum við leið
okkar 1 Valshúsið til að sjá
hvemig undirbúningi Framara
undir Ieik sinn í Evrópubikar-
keppninni er háttað.
„Við höfum verið óheppnir að
undanfömu,“ sagði Sveinn Ragn-
arsson okkur, „þrfr af beztu
mönnum okkar hafa meiðzt og
koma þau meiðsli allverulega
niður á þjálfun þeirra.“
Þeir sem eru á sjúkralista eru
Ingólfur Óskarsson, sem er togn-
aður í Iæri, Ágúst Oddgeirsson
á við slæmt fingurmein að stríða,
og loks er hinn góðkunni fyrir-
Iiði Fram, Hilmar Ólafsson, van-
heill í hné og í æfingaleik við
KR í fyrrakvöld rifnaði saumur
á sári hans upp og mun það taka
hann a.m.k. 3 vikur að ná sér til
fullnustu.
Framarar hafa undanfarið æft
frá 3—5 sinnum í viku hverri,
oftast með 5 æfingar og leiki, en
leikirnir hafa gengið mjög vel og
allir unnizt með stórri tölu.
Æfingarnar eru greinilega erf-
iðar og enginn dregur af sér,
þótt það e.t.v. sé frcistandi. Ekki
er líklegt að Reykjavíkurfélögin
verði Fram erfiðir andsteeðingar,
en mótið hefst innan skamms.
HREYFILL vaan knatt-
spymu bifreiðastöðvanna
\
Knattspyrnukeppni er háð milli
ýmissa fyrirtækja á malarvell-
inum fyrir neðan Háskólann.
Er fylgzt -með þessum kapp-
leikjum af miklum áhuga í fyr-
irtækjunum og oft er haldin
fagnaðarhátíð að keppni lok-
inni, þar sem sigurvegararnir
eru hylltir.
I fyrradag lauk knattspyrnu-
keppni bifreiðastöðvanna í bæn
um og var þessi mynd tekin í
fyrradag, er bílstjórar á Hreyfli
og Bæjarleiðum mættust til
keppni. Standa kapparnir úti á
miðjum vellinum, takast I hend-
ur og horfast í augu.
Leiknum I fyrradag lauk með
sigri Hreyfils 4 mörk gegn 3.
Var hann að sumu leyti líkur
kappleiknum milli KR og Ak-
urnesinga á dögunum, þannig
að Bæjarleiðir náðu forskoti og
skoruðu eina mark fyrra hálf-
leiks, en síðan söxuðu Hreyfils-
menn á forskot þeirra og náðu
sigri áður en lauk. Var leikur-
inn spennandi og harður.
Með sigri sínum-vann Hreyf-
ill keppni bifreiðastöðvanna
með 4 stigum, en Bæjarleiðir
hlaut 2 stig og Borgarbílstöðin
ekkert.
Fyrirliðar Hreyfils og Bæjarleiða takast í hendur fyrir ieikinn.
Frakkar — Bretar 1:1
Frakkar og Bretar skildu jafnir
í leik sinum í Sheffield í gær-
kvöldi, en Icikur þessi er í Evrópu-
bikarkeppni Iandsliða. — Frakkar
skoruðu 1:0 eftir 8 mínútna leik.
Miðherjinn Kopa sendi fasta og
ákveðna sendingu til vinstri inn-
herjans Goujon, sem skaut af 15
metra færi og skoraði.
í seinni hálfleik skoruðu Bretar
1:1 úr vítaspyrnu, en fleiri urðu
mörkin ekki.
Frakkarnir höfðu nokkra yfir-
burði og áttu mun fleiri marktæki-
færi án þess að geta notfært þau.
Bretar áttu færri tilraunir, en bezti
maður þeirra var innherjinn Hella-
weil.