Tölvumál - 01.12.1995, Síða 3
Efnisyf irlit
6 Upplýsingasamfélagiö,
stefnumótun fyrir
ríkisstjórn íslands
Laufey Ása Bjarnadóttir
8 Netvædd margmiðlunar-
starfsemi
Juergen Obermann
Þýö: Jón Dalmann
Þorsteinsson
12 íslandhandbókin
Heimir Pálsson og
Tryggvi Jakobsson
16 Evrópusókn á sviöi
rannsókna og þróunar
Elísabet M. Andrésdóttir
18 LÍSA, samtök um
samræmd landfræðileg
upplýsingakerfi á íslandi
Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir
20 Netheimar
Lára Stefánsdóttir
Ritstjórnarpistill
Á einni stærstu bókasýningu sem haldin er árlega var
hlutur efnis sem gefið er út á geisladiskum og sem hægt er
að flokka með margmiðlun um 15%. Þetta er ekki stór hluti
en þó merkilega stór miðað við hvað bókaútgáfa á hefð-
bundnu formi á sér langa hefð. Gera má ráð fyrir því að á
næstu árum aukist hlutur þessarar tegundar útgáfu veru-
lega. Sérstaklega á það við útgáfu á ýmsum sérritum,
uppflettibókum og orðabókum. Nú hefur komið út íslensk
bók á geisladisk, íslandshandbókin sem er að öllu leyti
unnin hér á landi. Sérstaka athygli vekur hve vel hefur tek-
ist til við útlit og framsetningu efnisins. Um útgáfu þessar-
ar bókar er fjallað ítarlega í þessu blaði. Verður fróðlegt að
fylgjast með þróun þessarar tegundar margmiðlunar á
næstu árum og því hvaða áhrif hún mun hafa á þróun upp-
lýsingatækni og margmiðlunar hér á landi á næstu árum.
Að þessu sinni er annars nokkuð víða komið við að
venju. Gert var ráð fyrir umfjöllun þeirra stjórnmálaflokka
sem ekki voru með í síðasta blaði um stefnu sína í upplýs-
ingatækni en ekki verður af því og er það miður.
Á liðnum árum hafa komið fram mislanglíf tímarit sem
fjalla um tölvur og tölvumál. Nú ber svo við að óvenju mik-
ið er um blaðaútgáfu á þessu sviði og er allt gott um það
að segja. En þá er kannski rétt að huga að því á hvaða
formi blaðaútgáfa Skýrslutæknifélagsins á að vera í fram-
tíðinni. Er ritstjórn á réttri leið með efnisval? Á að huga að
öðru formi útgáfunnar, til dæmis á veraldarvefnum? Hafa
félagsmenn skoðun á þessu?
24 Frá orðanefnd
Stefán Briem
28 Upplýsingakerfi fyrir
sjófarendur
Steingrímur Gunnarsson
Grein þessi birtist áður í 2. tbl.
Magnús Hauksson
_________________)
TÖLVUMÁL
Tímarit Skýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn hátt
efni blaðsins að hluta eða í heild
nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6. sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf.
Auglýsingar:
Átak hf., S. 568 2768
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Netfang: sky@skima.is
Ritstjóri og ábm.:
Magnús Hauksson
Aðrir ritnefndarmenn:
Bergþór Skúlason
Gísli R. Ragnarsson
Kristrún Arnardóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi íslands.
Tölvumál - 3