Tölvumál - 01.12.1995, Blaðsíða 7
Desember 1995
ingum hjá stjórnvöldum.
Dregið verði úr skrifræði í
samskiptum borgaranna við
stjómvöld og óþarfa laga- og
reglugerðarákvæði afnumin.
Þjónusta rfkisins verði sniðin
að nútíma tækni, t.d. með
nettengingu þjónustustofnana
og pappírslausum tollavið-
skiptum.
Þessi stefna ríkisstjómarinnar
felur í hnotskurn í sér stefnumót-
un fyrir upplýsingasamfélag
framtíðarinnar. I henni felst að
tryggja vaxandi hagsæld í land-
inu svo unnt verði að halda uppi
velferðarkerfi og menningarstigi
eins og best gerist, þ.e. að ísland
verði í fremstu röð ríkja í þróun
upplýsingasamfélagsins, bæði
sem veitandi og þiggjandi.“
Til þess að fylgja þessu eftir
samþykkti ríkisstjórn íslands 6.
október s.l. að fela iðnaðar- og
viðskiptaráðherra Finni Ingólfs-
syni að skipa nefnd til að gera til-
lögur til rrkisstjórnarinnar um
mótun stefnu fyrir íslenska upp-
lýsingaþjóðfélagið næsta áratug.
Nefndin var skipuð í byrjun
desember og í henni sitja 20 full-
trúar frá ráðuneytum og atvinnu-
lífinu. Tómas Ingi Olrich, alþing-
ismaður er formaður nefndarinn-
ar. Það er ánægjulegt að skýra frá
því að Skýrslutæknifélag íslands
á einn fulltrúa í nefndinni og mun
formaður félagsins Haukur
Oddsson starfa fyrir hönd félags-
ins.
Stefnumótunin fer þannig
fram að sérstakir starfshópar,
sent í sitja sérfræðingar, skila
áliti sínu til nefndarinnar til efn-
islegrar umfjöllunar. Sérstök
verkefnisstjórn verður sett til að
samræma vinnu starfshópanna,
en verkefnisstjórnin mun hafa
náið samráð við formann nefnd-
arinnar m.a. um skilgreiningu á
tilgangi og markmiði vinnu
starfshópanna. Starfshópamir
munu starfa á tilteknum sviðum
að eftirfarandi verkefnum:
1. Upplýsingasamfélagið, fjar-
skipti og margmiðlun.
Starfshópur á vegum sam-
gönguráðneytis.
2. Upplýsingasamfélagið, mennt-
un, vísindi og menning.
Starfshópur á vegum mennta-
málaráðneytis.
3. Upplýsingasamfélagið, þróun
atvinnu- og viðskiptalífs.
Starfshópur á vegum iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytis.
4. Upplýsingasamfélagið og
heilbrigðisþjónusta.
Starfshópur á vegum heil-
brigðisráðuneytis.
5. Upplýsingasamfélagið og fé-
lagsmálaþjónusta.
Starfshópur á vegum félags-
málaráðuneytis.
6. Upplýsingasamfélagið, sam-
göngumál og ferðaþjónusta.
Starfshópur á vegurn sam-
gönguráðuneytis.
7. Upplýsingasamfélagið og
launþegar.
Starfshópur á vegum laun-
þegasamtaka og vinnuveit-
enda.
8. Upplýsingasamfélagið og op-
inber stjómsýsla.
Starfshópur á vegum fjár-
málaráðuneytis.
Það er ljóst að mikil vinna
bíður allra þeirra sem koma að
þessu stóra verkefni hvort sem
þeir vinna í nefndinni eða starfs-
hópunum. Ahugavert verður að
fá að heyra af þessu starfi en
stefnt er að því að nefndin ljúki
störfum fyrir lok maí 1996.
Starf félagsins
Ef litið er yfir starfsemi fé-
lagsins á síðastliðnu ári má sjá að
það hefur verið blómlegt því at-
burðir á vegum félagsins hafa
verið ntjög vel sóttir. Á nýju ári
verður haldið áfram sem fyrr og
mun Skýrslutæknifélagið hafa
veg og vanda að fjölbreyttum
ráðstefnum og fundum. Ritnefnd
Tölvumála á heiður skilinn fyrir
gott starf því efni blaðsins á síð-
asta ári hefur verið mjög fróðlegt
og skemmtilegt.
Skýrslutæknifélagið sendir
öllum félögum og fjölskyldum
þeirra nýárskveðjur og þakkar
þeim sem hafa lagt hönd á plóg-
inn við að gera starfsemi félags-
ins eins öfluga og raun ber vitni.
Laufey Asa Bjarna-
dóttir, varaformaður
Skýrslutœknifélags Is-
lands er forstöðumað-
ur tölvudeildar Mjólk-
ursamsölunnar.
Punktar...
Pappírinn burt
Margir þeir sem starfa í
heilbrigðisgeiranum kann-
ast við gífurlegt pappírsflóð
sem virðist fylgja þessari
starfsemi. Nýlega var opnað
nýtt sjúkrahús í Bandaríkj-
unum sem á að reka án
nokkurs pappírs. Gert er ráð
fyrir allt að 150 000 sjúk-
lingum og á öll skráning á
upplýsingum um þá að vera
í tölvum. Búin hefur verið
til nokkurs konar spjaldskrá
sem inniheldur 1200 for-
múlur að öllum mögulegum
tegundum skýrslna. Aðeins
er gert ráð fyrir því að nota
pappír ef nauðsyn krefur
vegna samskipta við aðila
utan sjúkrahússins.
Tölvumál - 7