Tölvumál - 01.12.1995, Blaðsíða 25
Desember 1995
Frá orðanefnd
Eftir Stefán Briem
Á undanförnum vikum og
mánuðum hefur orðanefnd SÍ
einkum fjallað um hugtök er
varða gluggaumhverfi. Margrét
Guðjónsdóttir frá EJS hefur verið
orðanefndinni til trausts og halds
varðandi skilning á þessum hug-
tökum og val á íslenskum heitum
fyrir þau. Auk þess hafa borist
orðalistar og ábendingar frá öðr-
um aðilum. Ljóst er að á sumum
hugtakanna eru mörg heiti í um-
ferð og sýnist sitt hverjum um
ágæti þeirra. Hér eru nú birtar til-
lögur orðanefndar um heiti á
hugtökum sem komið hafa upp á
borð hennar og hún hefur verið
að fást við að undanförnu. Þessi
hugtök eru ekki einskorðuð við
gluggaumhverfi. Ekki er um end-
anlegar niðurstöður orðanefndar
að ræða en hún óskar eftir að fá
viðbrögð og kynnast áliti þeirra
sem nota þessi hugtök.
í þeim gluggum sem birtast á
skjánum koma fyrir ýmis atriði
sem þarf að hafa heiti á. Þctta á
við t.d. um glugga fyrir WORD-
ritvinnslukerfi og EXCEL-töflu-
reikni. í þessum gluggum eru lín-
ur og reitir af ýmsu tagi og fara
hér á eftir tillögur um íslenskar
þýðingar á enskum heitum þeirra.
Ensk heiti á línunum enda flest á
bar. Um þýðingu þeirra voru
uppi tvö sjónarmið, annars vegar
að nota samsett heiti með síðari
liðnum rein, og hins vegar að
nota mismunandi síðari lið eftir
hlutverki línanna. Þegar fleiri en
ein tillaga eru settar fram um þýð-
ingu, eru þær að jafnaði ritaðar í
virðingarröð orðanefndar.
Línur í glugga
bar rein, braut, lína, rönd, stika
command line skipanalína, skip-
anarein
drive bar drifarein, drifaborð
formula bar skriflína, skrifrein
menu bar, action bar valmynda-
lína, valrönd, valrein
ruler stika
scroll bar skrunbraut, skrun-
stika, skrunrein
split bar rúðuskil
status bar, status line stöðulína,
stöðurein
task bar verksjá, verkrein
title bar titillína, titilrein
tool bar tólaborð, tólarein
docking tool bar færanlegt tóla-
borð
Takið eftir að tool er þýtt með
tól til aðgreiningar frá device
sem er þýtt með tœki.
Reitir í glugga
control-menu box stýrival-
myndarreitur; grunnvalmynd-
arreitur
maximize button stækkunar-
hnappur
minimize button smækkunar-
hnappur
restore button endurhorfs-
hnappur
scroll arrow skrunör
scroll box skrunhnappur
split box skiptir, skiptimerki
X-button lokahnappur
Ýmis heiti
background baksvið, bakgrunn-
ur
background color grunnlitur,
baksviðslitur
beep flaut
cache skyndiminni, llýtiminni
cached skyndivistaður, flýtivi-
staður
check mark gátmerki (Sem gát-
merki er oft notað hak en
stundum kross.)
clipboard klemmuspjald,
minniskompa, kornpa
compatibility 1 jafngildi
compatibility 2 samhæfi, kv.
compatible samhæfur, t.d. PC-
samhæf tölva (en ekki sam-
hæfð)
cross reference millivísun
dialog box svargluggi
directory 1, folder mappa
directory 2, efnisskrá
drag and drop draga og sleppa
EOL línulok
fill color þekjulitur, fyllingarlitur
fill style þekjugerð, fyllingargerð
fixed disk fastadiskur
foreground color forsviðslitur
graph myndrit [yfirheiti yfir:
línurit, súlurit, skífurit o.fl.]
graphical myndrænn
gray shading grámun
hard disk harðdiskur
hidden code falinn sniðstafur
keyboard layout hnappaskipan
Num Lock talnalás
option valkostur, kostur
pop-up menu skyndivalmynd
pop-up window skyndigluggi
refresh nýglæða, so.
refresh nýglæðing, no.
Tölvumál - 25