Tölvumál - 01.12.1995, Qupperneq 28
Desember 1995
Grein þessi birtist áður í 2.tbl. sem helgað var upplýsingatækni í sjávarútvegi. Vegna mistaka féll
niður kafli úr greininni og er hún því birt hér aftur. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur
Eftir Steingrím Gunnarsson
Inngangur
Hugrún hf. er fyrirtæki sem
hefur sérhæft sig í þróun og
smíði á búnaði fyrir umhverfis-
rannsóknir. Arið 1993 hófst sam-
starf milli Hafnamálastofnunar
og Hugrúnar hf. um þróun á
mæli- og samskiptabúnaði sem
yrði grunnur að upplýsingakerfi
fyrir sjófarendur.
Kerfið byggir á tölvubúnaði í
höfnum sem safnar
saman upplýsingum frá
veðurstöðvum og öldu-
duflum. Fyrstu hafnar-
stöðvarnar voru settar
upp í byrjun árs 1994 og
síðan hafa verið settar
upp stöðvar í nokkrum
höfnum og í vitum á
annesjum. Má þar
nefna Hornbjargsvita,
Straumnesvita, Bjarg-
tanga og Font á Langa-
nesi.
Tilgangurinn með
verkefninu er:
• Að sjófarendur og
hafnsögumenn fái
sem gleggsta mynd
af veðri og sjólagi á
hverjum stað.
• Að þróa og setja
upp búnað vegna
undirstöðurann-
sókna sem Hafna-
málastofnun stund-
ar í þeim tilgangi að tækni-
legar forsendur mannvirkja-
gerðar verði sem bestar. í því
sambandi eru gerðar mæling-
ar á sjólagi, veðri, afstöðu
láðs og lagar svo og líkanatil-
raunir.
Að fjölga veðurathugunar-
stöðum fyrir Veðurstofu.
Að upplýsingar verði að-
gengilegar öðrum notendum
og nýtist þeim sem best.
Hafnarstöðvar
Grunneiningar í upplýsinga-
kerfinu eru hafnarstöðvar sem
samanstanda af veðurstöðvum,
safntölvu og aukabúnaði, eins og
ölduduflsmóttakara og sjálfvirk-
um símsvara eða talvél.
Safntölvur eru oftast staðsett-
ar hjá hafnsögumönnum og eru
tengdar við eina eða fleiri mæli-
stöðvar og birta upplýsingar jafn-
óðum á grafísku formi á
skjá.
Mælibúnaður
Uppsetning á mæli-
búnaði er nokkuð mis-
munandi eftir aðstæðum
á hverjum stað. Mæli-
stöðvamar eru t.d. festar
á ljósamastur á bryggju,
eða komið fyrir inni í
vita. Mæli-og söfnunar-
tækið og samskiptabún-
aður eru í vatnsþéttum
skápi. Stöðvarnar hafa
vararafgeymi þannig að
þær geta mælt og safnað
gögnum þó að það verði
rafmagnslaust. Þar sem
rafmagns nýtur ekki við,
t.d. á annesjum, eru not-
aðar sólarsellur og litlar
vindrafstöðvar.
Mælistöð varnar
mæla á sek. fresti, en 10
mín. meðaltöl eru skráð
28 - Tölvumál