Vísir - 12.10.1962, Qupperneq 8
8
VÍSÍR Föstudagur 12. október 1962.
Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskrifstargjald ei 55 krónur á mánuði.
1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Skeytið sem aldrei var sent
Forseti Alþýðusambandsins, Hannibal Valdemars-
son, reynir í gær að afsaka þann hálfs mánaðar drátt,
sem orðið hefur á því að A. S. í. aflaði sér samnings-
umboðs í síldveiðideilunni. Forsetinn hengir hatt sinn
á það, að Vísir sagði að með því að draga að „skipa“
nefndina hefði A. S. í. hindrað lausn síldveiðideil-
unnar.
Hvort orðið, „skipa“ eða „mynda‘‘, er notað í þessu
sambandi, skiptir engu máli. Kjarni málsins er sá, að
A. S. í. átti að hafa forgöngu um að samninganefnd
sjómanna væri skipuð og gæti tekið til starfa. Með
öðrum orðum: það eina, sem A. S. í. þurfti að gera,
var að hafa samband við sjómannafélögin og fá samn-
ingsumboð þeirra.
Þetta verkefni leysir A. S. í. síðan á þann snilldar-
lega hátt, að forseti þess sezt við skrifborð og ritar
félögunum víðs vegar um land bréf um málið. Og bíð-
ur síðan eftir bréfi frá hinum mörgu félögum!
Maður skyldi halda að Hannibal Valdemarsson
hefði aldrei heyrt getið um tækninýjung eina, sem
heitir ritsími.
Skyldi forseta A. S. I. ekki heldur hafa verið það
ljóst, að hver og einn einasti dagur, sem líður án þess
að lausn deilunnar náist, þýðir 5—10 millj. króna tap
fyrir þjóðarbúið?
Hver trúir því að jafn gáfaður maður og Hannibal
hafi ekki munað eftir því, þegar hann tók sér pennann
í hönd?
Hér talar maðurinn, sem hótaði Reykvíkingum því
á Lækjartorgi 1955, að taka rafmagnið af sjúkrahús-
unum og frystihúsum landsins.
Ábyrgðin á hálfs mánaðar samningsdrætti hvílir
hvorki á sjómönnum né útgerðarmönnum.
Hún hvílir á manninum, sem vanrækti að senda
skeytið.
Skattablekking
Stundum verður manni hugsað til þess að of mörg
dagblöð séu gefin út á íslandi.
í gær gafst tilefni til slíkra hugleiðinga. Þá sneri
Þjóðviljinn hlutunum gersamlega við og braut svo
rækilega lögmál heiðarlegrar blaðamennsku, að við lá
að hann bætti eigið met í óheiðarlegum fréttaflutningi.
Á forsíðunni er frá því skýrt, að skattar og tollar
hækki um nær 350 milljónir króna.
Nú er það hins vegar staðreynd, að hvorki skattar
né tollar eru hækkaðir. Þeirri staðreynd hagga ekki
fullyrðingar Þjóðviljans. Einungis er gert ráð fyrir
hærri ríkistekjum sökum aukins innflutnings. Um
enga skatta eða tollahækkun á almenningi er þar að
ræða.
Þreytast Þjóðviljamenn aldrei á því að rita gegn
betri vitund?
©
gUMIR kalla Húna-
vatnssýslu Texas.
Hún státar ekki síður
í af hestum og bardaga-
fólki en Skagafjarðar-
sýsla. Hún er líka sögu-
leg fvrir fleira, gott sem
illt. Þetta blendna, sem
1® hefur loðað við staðblæ-
inn þar um slóðir, hefur
grunnhyggið fólk af öðr
um landshlutum annað
hvort misskilið eða ótt-
azt nema hvort tveggja
sé. Espólín ver löngum
kafla í frásagnir af óöld
í Húnavatnssýslu á 18.
og 19. öld, þegar morð
og rán voru algeng eins
og á vígaöld.
Húnvetnsk einstaklingshyggja
gat og getur komið illa fram á
sýslu
Það þykir voðalegt, að fátæk-
ur stoltur húnvetnskur einyrki
hafi á 19. öld hnuplað sauði frá
sér ríkari nágrannabónda til að
bjarga börnura sínum frá hung-
urdauða, en á tuttugustu öld í
dag virðist almenningur sljór fyr-
ir því eða álítur það ekki ýkja ó-
siðnæmt, þótt heilir milljóna-
sjóðir hverfi ofan í vasa á ein-
hverjum Bör Börssyni hjá nú-
tímafyrirtæki. Það er ekki álitinn
þjófnaður, heldur kannski leið-
inlegt eða klaufalegt eða jafnvel
bara óheppni, að það skuli
nokkru sinni hafa komizt upp.
í lok veizl
„Við erum veraldarmenn hér i
Húnavatnssýslu“.
*
Þeir riðu hægt eins og herfor-
ingjaráð úr riddaraliði.
pappírnum. 1 hallæri gerðu bú-
endur uppreisn gegn lífskjörum
sinum og áttu til að grípa til ó-
heillavænlegra ráða til að bjarga
sér og sínum. Þessar sögur eru
alltaf að gerast aftur, hvar sem
er, nú á tímum, aðeins í breyttri
mynd, og svo er kominn tízku-
bundinn yfirdrepsskapur til að-
stoðar, svo að hægt sé að breiða
yfir óhæfuna.
©
TjJÓÐVEGURINN norður yfir
heiðar er orðinn spilltur af
veðrum haustsins.
Það er fyrsti október, og stóð-
réttardagur í ískyggilegu sýsl-
unni fyrir norðan.
Við Lækjamót sjást ríðandi
menn á ferð fram undan. Klukk-
an er orðin margt. Kúplingsarm-
1