Tölvumál - 01.03.1997, Síða 3
Ritstjórnarpistill
EFNI
5 Skýrsla formanns fyrir árið 1996
HaukurOddsson
9 Nokkur orð um útflutning
hugbúnaðar
Kjartan Ólafsson
12 Útflutningur á Nervus kerfinu
Egill Másson
14 Baldur Jónsson heiðursfélagi í
SÍ
15 Útflutningur hjá Kerfi hf.
Björn Z. Ásgrímsson
17 Útflutningur hugbúnaðar
Vilhjálmur Þorsteinsson
19 Kynning - Tæknival hf.
Upplýsingatækni til framfara
Gunnar Leó Gunnarsson
20 Kynning - Skýrr hf.
Gögnum breytt í gull með
vöruhúsi gagna
Björn Snær Guðbrandsson
22 Frá orðanefnd
Stefán Briem
24 Kynning - EJS hf.
Microsoft hleypir Office 97 af
stokkunum
Skúli Valberg Ólafsson
25 Markaðssetning á Internetinu
Pétur Pétursson
27 íslensk uppboðsþekking seld til
Bandaríkjanna
Ingvar Örn Guðjónsson
29 Reynsla af útflutningi
afgreiðslukerfa
Pál Hjaltason
31 Tillaga til þingsályktunar
Á síðasta aðalfundi Skýrslutæknifélagsins voru
samþykktar nýjar samþykktir fyrir félagið. Samkvæmt
þeim var ritstjóri Tölvumála nú kosinn beinni
kostningu á aðalfundinum en hann var áður skipaður
af stjórn félagsins. Með þessu hefur ritstjórn blaðsins
öðlast meira sjálfstæði en áður og ætti það að vera til
bóta og er tvímælalaust tífnanna tákn þar sem nú er
almennt viðkennt að ábyrgð og völd skuli fara saman.
Þó má ekki skilja orð mín svo að til þessa hafi
ritstjórninni verið sniðinn of þröngur stakkur af stjórn
Skýrslutæknifélagsins, því svo hefur ekki verið, heldur
gerir þetta allt starf ritstjómarinnar mun sveigjanlegra
og um leið meira krefjandi. Núverandi ritstjórn
blaðsins hefur í hyggju að brydda upp á ýmsum
nýjungum í efnisvali blaðsins og hugsanlega á fleiri
sviðum og munu þær líta dagsins ljós í næstu
tölublöðum blaðsins og vonum við að lesendum þess
muni líka þær.
Ekki er að efa að Tölvumál er góður vettvangur
fyrir þá sem vilja koma á framfæri efni á sviði
upplýsingatækni sem þeir búa yfir. Við í ritstjórninni
viljum því skora á lesendur blaðsins og aðra að nýta
sér þennan vettvang og hafa samband við einhvem af
meðlimum ritstjómar blaðsins eða framkvæmdastjóra
Skýrslutæknifélagsins á skrifstofu þess vilji þeir koma
efni í blaðið sem tengist upplýsingatækni.
Nú nýlega birtust fréttir af því að útflutningur á
tölvuhugbúnaði frá landinu hafi stóraukist á síðustu
árum. Þetta em sannarlega ánægjulegar fréttir og ættu
að hvetja alla þá, sem hyggjast hasla sér völl á þessu
sviði, til dáða. Meðal efnis í þessu tölublaði Tölvumála
er umfjöllun nokkura aðilar, sem staðið hafa í
útflutningi hugbúnaðar, um reynslu sína. Er það von
okkar í ritstjóminni að sú umfjöllun geti nýst lesendum
blaðsins hyggist þeir hasla sér völl á þessu sviði.
Gísli R. Ragnarsson
TÖLVUMÁL
Tímarit Skýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Heimasíða SÍ:
http ://ww w. s ki m a. i s/sky/
Netfang: sky@skima.is
Ritstjóri og ábm.:
Gísli R. Ragnarsson
Aðrir í ritstjórn:
Agnar Björnsson
Einar H. Reynis
María Ingimundardóttir
Ólöf Þráinsdóttir
Umbrot: Svanhildur Jóhannesdóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi íslands.
Tölvumál - 3