Tölvumál - 01.03.1997, Side 7
TOLVUMAL
meðaltali færri þátttakendum - þó
eins og áður sagði hafi heildar-
fjöldi gesta verið meiri en nokkur
sinni. 1 öðru lagi var afkoma
Tölvumála mun lakari en ráð var
fyrir gert. Kostnaður jókst en aug-
lýsingatekjur drógust saman.
Af ofansögðu má ráða að
standa þarf stöðugan vörð um
reksturinn og halda kostnaði í lág-
marki og kvika hvergi frá þeim
ásetningi að bæta stöðu félagsins
ár frá ári. Það hefur verið vilji
stjórnar að gæta aðhaldssemi í
fjármálum og taka ekki stóra
áhættu. Ég á von á að svo verði
enn um sinn.
Skrifstofan
Það hefur verið á stefnuskrá
undanfarinna tveggja ára að gera
skrifstofu félagsins að meiri mið-
punkti í starfsemi þess. Nokkur
árangur hefur náðst en að þessu
marki verður að vinna áfram og
hana verður að gera sýnilegri.
Skrifstofan er nú tengd Intemetinu
og sett hefur verið upp heimasíða.
Heimasíða félagsins er langt frá
því að vera eins og best gerist. Það
er félagi sem kennir sig við upp-
lýsingatækni ekki til sóma að svo
sé. Líta verður á hana eins og
hverja aðra útgáfustarfsemi og
vanda til hennar eins og kostur er.
Stefnumörkun
Á haustdögum 1995 var skipuð
nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar
um stefnumörkun á sviði upplýs-
ingatækni. Yfirskrift starfsins var
„Island og upplýsingasamfélagið“
og afurðin, sem leit dagsins ljós nú
á haustdögum, fékk nafnið „Fram-
tíðarsýn ríkisstjórnar Islands um
upplýsingasamfélagið“. Ég tók
þátt í þessu starfi fyrir hönd félags-
ins. Ég verð að lýsa ánægju minni
með bæði hvernig staðið var að
málum og með niðurstöðu vinn-
unnar. Hér var að mínu mati stigið
mjög stórt skref í að færa upplýs-
ingatækni inn í umræðuna og skipa
henni þann sess sem hún þarf. Að
sjálfsögðu er það þannig að stefna
og markmiðið er eitt, en fram-
kvæmdin annar handleggur. En án
markmiðs og stefnu er ekki von á
miklu.
Samþykktir
í samræmi við markmið var
skipuð nefnd um endurskoðun
samþykkta félagsins. Gömlu sam-
þykktirnar þóttu komnar nokkuð
til ára sinna og ekki í takt við það
sem almennt gerist. I nefndinni
sátu auk mín þau Ágúst Úlfar
Sigurðsson, Kjartan Olafsson og
Hulda Guðmundsdóttir. Þetta starf
gekk með ágætum og lauk hóp-
urinn störfum í lok október og
skilaði tillögum til stjórnar fyrir
mánaðarmótin október - nóvember
eins og frestur í gömlu samþykkt-
unum gerði ráð fyrir.
Lokaorð
Eins og sagði í upphafi var
mikið staifað á liðnu ári og af nógu
að taka. Ég ætla ekki að hafa fleiri
orð um starfsemi síðasta árs og
vfsa í viðauka við skýrslu mína.
Ég hef verið formaður félagsins
í 2 ár og það verður að segjast eins
og er að starfið er stundum ansi
tímafrekt - en það hefur verið afar
gefandi og skemmtilegt. Eins og
þið sjáið ætla ég að gefa kost á
mér aftur í sæti formanns.
Á liðnu ári hefur setið með mér
í stjóm úrvalsfólk. Að venju hverfa
nokkrir úr stjórn. Að þessu sinni
eru það þau:
Þórður Kristjánsson, sem gegnt
hefur starfi ritara, og Sæmundur
Sæmundsson, sem gegndi starfi
varamanns, sem hverfa á braut.
Þeim, sem og öðrum stjórnar-
mönnum, vil ég fyrir hönd félags-
ins þakka framlagið og fyrir mína
hönd þakka ég samstarfið.
Einnig vil ég fyrir mína hönd
og stjórnar þakka framkvæmda-
stjóra félagsins fyrir góð störf og
gott samstarf. Álag á skrifstofu
félagsins hefur aukist með auknu
starfi og þar með kröfur til fram-
kvæmdastjórans.
Að lokum vil ég þakka öllum
þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd
á plóginn fyrir þeirra framlag.
Haukur Oddsson erforstöðu-
maður tölvu- og upplýsinga-
deildar Islandsbanka.
Punktar...
DVDístað VHS og
CD-ROM
Núna er verið að gera því
skóna að þegar DVD - Digital
Video Disc - nær fótfestu á
markaðnum muni VHS verða
úrelt og fara að lokum sömu
leið og Betan sáluga. DVD
diskar hafa sama snið og
geislaplötur en eru tvíhliða og
geta geymt kvikmynd í fullri
lengd eða 17 gígabæti af
gögnum, en það er sjöfalt
meira en CD-ROM sem eru í
einmenningstölvum nútímans.
Því er spáð að DVD muni
útrýma CD-ROM í einmenn-
ingstölvum á næstu tveimur
árum en spilarar muni geta
lesið bæði DVD og CD-ROM.
Því er einnig spáð að DVD
muni þurrka út VHS á næstu
fimm árum en reyndar gæti
þetta verið fullmikil bjartsýni
því engar fréttir hafa borist af
því hvort til verði DVD drif
sem geti skrifað á slíka diska
á sama hátt og hægt er að taka
upp á VHS spólur.
MARS 1997 - 7