Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Page 8

Tölvumál - 01.03.1997, Page 8
TÖLVUMÁL Stjórn Skýrslutæknifélags íslands kjörin á aðalfundi félagsins 31. janúar s.l. Frá vinstri: Heimir Sigurðsson, meðstjórnandi, Laufey Erla Jóhannesdóttir, gjaldkeri, Oskar B. Hauksson, meðstjórnandi, Svanhildur Jóhannesdóttir, framkvœmdastjóri, Haukur Oddsson, formaður, Hulda Guðmundsdóttir, ritari, Gunnar Sigurðsson, varamaður, Douglas Brotchie, varaformaður og Eggert Ólafsson, varamaður. Plássleysi Nýjar félagssamþykktir, sem samþykktar voru á aðalfundi Skýrslutæknifélagsins í janúar, munu birtast í næsta blaði. Meira efni frá aðalfundi bíður birtingar. X 70 Sjötugfaldar útflutningstekjur Útflutningstekjur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja hafa nærfellt sjötugfaldast frá árinu 1990 að því er fram kemur í nýjasta hefti af hagtölum mánaðarins. Þær voru um 12 milljónir árið 1990 en um átta hundruð og fjórtán milljónir á síðasta ári og er þá í báðum tilfellum miðað við verðlag ársins 1996. Tekjur stórra fyrirtækja eins og Marels sem flytur út tölvuvogir og Kögunar, sem leigir út vinnu starfsmanna sem vinna að gerð hugbúnaðar erlendis, eru ekki taldar með. Tekið er fram í greininni um hagtölur mánaðarins að erfitt sé að afla nákvæmra talna á þessu sviði og því verði að líta á þær tölur sem birtar eru sem vísbendingu um þróunina sem átt hefur sér stað á undan- förnum árum. Fre'tt í Ríkisútvarpinu Punktar... Hljóð og mynd á Netinu Oft er sagt Internetið verði allsherjar miðill fyrir hvað eina. Fyrir utan hefðbundanar heimasíður með texta og kyrr- myndum er hægt að hlusta á hundruð útvarpsstöðva um Real Audio hugbúnaðinn. í gegnum hraðar fastar línur og um Samnetið eru hljóðgæðin alveg prýðileg þó hljóðflutn- ingur geti verið slitróttur á álagstímum. Tenglar eru www.realaudio.com og www.audionet.com og dágóður listi er á síðunni www.tv.is/asgeir (og http:// mac.tv.is/asgeir/ utvsjonv.html). En það er ekki nóg með það heldur er hægt að skoða video í rauntíma um Netið. Það sama gildir og um hljóðið að sam- bönd þurfa að vera greið svo vel gangi en engu að síður er þetta vísbending um það sem koma skal. Tenglar eru www.precept.com og www.vivo.com og þar má nálgast skoðara fyrir Win- dows. Bandbreidd? Aukið álag? Hvað er nú það...? Síðan eru til talandi heima- síður. Þá er óþarfi að leggja alla bandbreidd undir flutn- inginn á talinu þvi tölvan les sjálf textann. Þetta er gert í Makkanum með kerfisvið- bótinni Plaintalk og Plug-in sem heitir Talker. Tengill fyrir þetta er www.mvpsolutions.com/ PluglnSite/Talker.html. 8 - MARS 1997

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.