Tölvumál - 01.03.1997, Side 10
T
• Gera áætlun um fjármögnun og
greiðsluflæði.
Að lokinni athugun á ofan-
greindum þáttum er tekin ákvörð-
un um framhaldið. Ef niðurstaðan
virðist ganga upp er útbúin fram-
kvæmdaáætlun sem reynt er að
starfa samkvæmt. Við skulum gera
okkur fulla grein fyrir því að þau
svör sem við gefum okkur í dæm-
inu hér að framan eru ekki endan-
leg vísindi og, eðli málsins sam-
kvæmt, byggjast niðurstöðurnar
að talsverðu leyti á innsæi okkar
og reynslu. Verkefnið allt felur því
í sér talsverða óvissu og áhættu.
Eftir að ákvörðun um útflutn-
ing og dreifingarmáta hefur verið
tekin, er æskilegt að gera fram-
kvæmdaáætlun. Æskilegt er að
leita ráða bæði hjá þeim sem hafa
nokkra reynslu af útflutningi og
eins hefur Utflutningsráð á að
skipa sérfræðingum sem reynst
hafa mörgum vel. I fyrra samein-
uðust nokkur íslensk fyrirtæki um
bás á alþjóða tölvusýningunni í
Hannover með aðstoð Útflutn-
ingsráðs. Þátttaka í slíkum sýn-
ingum getur verið ómetanleg, en
fyrst og fremst fyrir þau fyrirtæki
sem náð hafa nokkurri festu í
útflutningi og hafa orðið getu til
að bregðast við og vinna úr þeim
samböndum sem geta myndast á
slíkum sýningum.
Reynsla okkar
Við hjá Fakta höfum undan-
farið þróað skel ofan á stýrikerfi
IBM AS/400 sem birtist notanda
sem valmyndarkerfi en er í raun
söfnun og úrvinnsla fyrir álags og
upplýsingastjórnun. Kerfið fékk
strax góðar viðtökur á innanlands-
markaði, svo við ákváðum að þróa
það frekar til útflutnings. Til að
auðvelda aðlögun tókum við alla
texta úr forritum og settum í sjálf-
stæðar hliðarskrár, þannig að þýð-
ingar yrðu sem auðveldastar, auk
þess voru aðrar breytingar gerðar.
Ö L V U M Á
Leit að hentugum markaði tók
nokkurn tíma með fjölda bréfa-
skrifta, loks tókust samningar við
finnskt hugbúnaðarfyrirtæki sem
við höfum átt gott samstarf við.
Við erum nú nýverið komnir með
útgáfu 6.0 sem við bindum vonir
við í útflutningi.
Við tókum þá ákvörðun að selja
kerfið á mjög sanngjömu verði hér
á innanlandsmarkaði, þannig að
við fengjum góða útbreiðslu og
betri svörun frá markaðnum en
ella. Eins tókum við ákvörðun um
að prufukeyra hugbúnaðinn hér í
nokkra mánuði áður en við afhend-
um hann erlendis, þannig að tryggt
væri að ekki kæmu upp villur þar.
Það sem kom okkur mest á óvart
var hversu langan tíma allt ferlið
tekur frá því að ákvörðun um
útflutning er tekin þar til fyrstu
sölurnar fara að skila sér.
Okkar ráð er að vanda vel allan
undirbúning, velja sér takmarkað
markaðssvæði en reyna ekki að
taka markaðinn með trompi. Alls
ekki að hefja ótímabæra markaðs-
setningu sem síðan er ekki unnt að
fylgja eftir með sölu og eftirfylgni.
Ná þekktu fyrirtæki sem unnt er
að nota síðar til tilvitnanna.
Helstu annmarkar
Þó við Islendingar höfum mikla
möguleika á þessu sviði er því ekki
að leyna að við okkur blasa einnig
nokkrir erfiðleikar umfram þá sem
sumar af samkeppnisþjóðum
okkar standa frammi fyrir. Þeir
helstu eru:
• Miklar sveiflur í framboði og
eftirspurn á hæfu hugbúnaðar-
fólki
• Ferðakostnaður vegna fjar-
lægðar frá markaði
• Hár símakostnaður við útlönd
• Skortur á áhættufjármagni og
lánsfé
• Andsnúnar afskriftareglur
þegar þróunartími er langur
• ísland hefur ekki hátækni
ímynd
L
Tækifæri fyrir þig?
En jafnvel þó einhverjir erfið-
leikar séu fyrirséðir, þá tel ég að
við eigum mikla möguleika á út-
flutningi. I gangi er fjöldi efnilegra
kerfa sem eiga fullt erindi á erlend-
an markað en enginn hefur látið
sér til hugar koma að gera að
útflutningsvöru. Kannski lumar þú
á einu slíku, hvernig væri að velta
málinu fyrir sér?
Kjartan Ólafsson er fram-
kvœmdastjóri Fakta ehf
Punktar...
IBM tölvur með
fjarstýringu
Nýlega setti IBM á markað
nýjar einmenningstölvur undir
heitinu Aptiva, en það er röð
margmiðlunartölva ætlaðar
heimilum. Með nýju tölvunum
fylgir tjarstýring sem nota má
til að rápa um Intemetið og/
eða stjórna geislaspilara tölv-
unnar.
Einnig er í tilteknum gerð-
um Aptiva raddgreinibúnaður
svo tölvan geti stjórnað
heimilistækjum samkvæmt
munnlegum fyrirmælum!
(Skyldi það gilda um ryk-
sugur?). Tölvurnar eru sumar
hverjar með mjög hröðum
örgjörvum og innifalin eru
33,6 kb/s mótöld sem breyta
má til að taka við hinni 56 kb/
s tækni.
10 - MARS 1997