Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Síða 12

Tölvumál - 01.03.1997, Síða 12
\ TÖLVUMÁL Útflutningur á Nervus kerfinu Effir Eail Másson Hlutafélagið Taugagreining var stofnað 1987. Frumkvöðull að fyrirtækinu var Emir K. Snorra- son, læknir og taugasálfræðingur, en fyrirtækið hefur notið dyggs stuðnings Rannsóknarráðs fslands í gegnum árin. Fyrirtækið þróar hug- og vélbúnað fyrir tauga- lífeðlisfræði. í dag starfa hjá fyrir- tækinu fjórtán manns, ellefu á íslandi og þrír hjá dótturfyrirtæki í Englandi. Þróun fer fram hér- lendis, en þjónustu og markaðs- starfsemi er sinnt frá Englandi. Hugmyndin að baki afurðum fyrirtækisins var og er notkun staðlaðra einmenningsvéla (PC) og hugbúnaðarumhverfis (Microsoft Windows) sem lækningatækja fyrir taugalífeðlisfræði. Afurðir Fyrsta afurð fyrirtækisins var forritið „Brainstat“ sem var afar fullkomið verkfæri til greiningar á heila- og hrifriti, en hvorutveggja byggir á skráningu mælinga á spennumismun milli rafskauta sem límd eru á höfuðleður. Brainstat- pakkinn var seldur beint til við- skiptavina í upphafi, en seinna var gerður dreifingarsamningur við bandarískt fyrirtæki. Markaðurinn fyrir Brainstat var afar lítill, og í kringum 1990 var ákveðið að ráðast í þróun á hugbúnaði, sem nefndur er Nervus, til upptöku og úrlesturs heilarita. Markaðurinn fyrir slíka heilarita er mun stærri en fyrir úrvinnsluforrit eins og Brainstat, en þó er um frekar lítinn markað að ræða. Þannig eru að- eins um tveir til þrír heilaritar á íslandi öllu. Nervus hugbúnaður- inn hefur þá sérstöðu að styðja stafræna myndbandsupptöku af sjúklingnum samhliða heilarits- upptöku. Við úrlestur er myndin spiluð samhliða heilaritinu. Slíkar upptökur geta varað í þrjá til fjóra sólahringa og verður gagnamagnið þá verulegt. Stefnumörkun Segja má að í upphafi hafi stefnan verið tekin á sjálfbæran vöxt fyrirtækisins. Fordæmi úr hugbúnaðariðnaði hafa sýnt að oft næst öruggur og skjótur vöxtur á þennan hátt ef menn á annað borð eru með rétta afurð á réttum tímapunkti. Nervus kerfið hefur tæknilega yfirburði umfram kerfi samkeppnisaðila, og miklu skiptir að forritin keyra í Microsoft Win- dows umhverfi sem hefur náð gífurlegri útbreiðslu eins og menn vita. Það sýndi sig þó hinn sjálfbæri vöxtur var erfiður. Þar skipti mestu að afurðir Taugagreiningar eru lœkningatœki sem byggja á sér- smíðuðum hugbúnaði og vél- búnaði. Það er afar mikill munur á sölu hugbúnaðar, svo sem rit- vinnslu- eða bókhaldsforrits ann- ars vegar og lækningatækja hins vegar. Gífurlegar kröfur eru gerðar til áreiðanleika lækningatækja, um þau gilda strangir gæðastaðlar, sem framleiðandi verður lögum samkvæmt að uppfylla. Að auki er dreifingarliður mjög sérhæfður og kostnaðarsamur. Það hefur því reynst nauðsynlegt að leggja aukið hlutafé í fyrirtækið til að fjár- magna frekari landvinninga í þróun og markaðssetningu. Markaðssetning Nervus kerfisins Nervus kerfið var fyrst tekið í notkun árið 1993 á stóru sjúkra- húsi í Björgvin í Noregi og frum- útgáfan þróuð í nánu samstarfi við starfsfólk þar. Skömmu seinna var farið á markað í Finnlandi, Belgíu, Frakklandi, Englandi og síðast í Þýskalandi, Danmörku og Sví- þjóð. Sala lækningatækja á þess- um mörkuðum byggir ávallt á um- boðsaðilum sem gjörþekkja við- skiptavini sína og heimsækja þá reglulega. Val á umboðsaðila gerir því gæfumuninn. Markaðurinn er lítill en samskipti mikil þannig að orðspor fyrirtækis berst hratt manna á milli. Það er því áríðandi að hlúa vel að viðskiptavinum og halda þeim ánægðum. Það er augljóslega mikilvægt að hafa skýra stefnu í markaðs- setningu. Taugagreining hefur valið þá leið að beina augunum ^ sérstaklega að stórum og virtum háskólasjúkrahúsum. Þetta hefur gefið góða raun þar sem starfs- menn slíkra deilda njóta oft mik- illar virðingar á sínu sérsviði, og meðmæli slíkra manna skipta miklu. Á þennan hátt fæst svo- kölluð „trickle-down“-virkni, þ.e. sala til stórra deilda leiðir seinna til sölu til minni sjúkrahúsa og sérfræðingsstofa. Taugagreining hf. átti ekki því 12 - MARS 1997

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.