Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Síða 13

Tölvumál - 01.03.1997, Síða 13
TÖLVUMÁL láni að fagna að geta kynnt hugbúnað sinn á heimamarkaði áður en útflutningur hófst. Öll þróun fer fram í nánu samstarfi við lykilviðskiptavini, en þeir eru sem sagt staðsettir erlendis. Þetta er vissulega fjötur um fót þó bylting r samskiptatækni hafi breytt miklu þar um. Fyrstu árin eftir að sala hófst var þjónustu og sölu sinnt frá íslandi. Eftir því sem viðskipta- vinum fjölgaði óx þörfin fyrir þjónustu við viðskiptavini. Slík þjónusta er vandveitt nema tækni- menn séu sendir á viðkomandi stað. Þar sem ferðalög frá íslandi eru dýr, en fyrst og fremst tíma- frek, var ákveðið að stofna dóttur- fyrirtæki á Bretlandi og flytja þjónustu-, markaðs- og sölu- starfsemi þangað. Þetta hefur gefið góða raun. Markaðir Taugagreiningar hafa verið um tugur landa í Norður- og Vestur-Evrópu. Fyrir- tækið hefur náð mjög góðum árangri á þessu markaðssvæði og í dag er heilariti fyrirtækisins í notkun á yfir 100 sjúkrahúsum í þessum löndum. Næstu skref í markaðssókn eru önnur lönd í Evrópu, Norður- og Suður-Amer- íka og Asía. Slík markaðssókn verður fjárfrek. Af þessum sökum var ákveðið að ganga til samninga við eitt stærsta fyrirtækið á þessum markaði, Medelec Ltd., sem er hluti af hinni bresku Vickers samsteypu. Medelec mun leggja Punktar... XXX-myndir, XXL- símareikningar Hundruð Internet notenda í Bandaríkjunum sem voru að leita að klánrmyndum fengu annað og meira að auki, sem voru gríðarháir símareikn- niður eigin þróun á heilariti og hefja markaðsfærslu, sölu og þjónustu á Nervus kerfinu í stað eigin kerfis. Þetta þýðir að í einni svipan hefst sala á kerfinu um víða veröld. Það er nokkur árangur fyrir lítið fyrirtæki í útjaðri Evrópu. Útflutningur hátæknivöru Hvað aðgreinir útflutning há- tæknivöru frá annarri vöru? Það fer algerlega eftir því hvemig vara á í hlut. Afurðir Taugagreiningar eru lækningatæki sem eru seld á litlum markaði. Stærð markaðar- ins gerir að verkum að nauðsynlegt er að ná nokkurri útbreiðslu land- fræðilega. Að auki gerir stærð Is- lands það að verkum að heima- markaður er nánast ekki fyrir hendi. Þetta hefur í för með sér að hefja verður markaðssókn beint til útlanda; afurðir fá ekki að slíta barnsskónum á heimamarkaði. Önnur afleiðing er að samskipti við viðskiptavini verða erfiðari en ella. Það hefur hins vegar einnig nokkra kosti að vera á lækninga- tækjamarkaði, t.d. er notkun lækn- ingatækja frekar einsleit landa á milli. Þama koma staðlar að miklu gagni. En hví skyldu menn þá fram- leiða hátæknivörur hérlendis? Þar kemur til hlutfallslega lágur launa- kostnaður og mikið framboð af vel ingar. Þetta gerðist þannig að á tilteknum miðlurum var not- endum tjáð að til að konrast í klámmyndirnar yrði fyrst að sækja sérstakan hugbúnað. Þeir sem það gerðu urðu ekki varir við það að aðfengna for- ritið breytti stillingunum á mótaldinu. Eftir það sleit mót- aldið línuna og hringdi þess í stað í símanúmer í Moldavíu, sem er austan við Rúnrenru. Mínútugjaldið þangað frá Bandaríkjunum er allt að 210 menntuðu fólki. Einnig virðist hugbúnaðargerð falla vel að skap- gerð Islendinga, eins og prófessor Oddur Benediktsson hefur bent á. Stjórnvöld Ekki verður komist hjá því að nefna að lokum tvennt sem stjórn- völd geta gert til að greiða veg hug- búnaðargerðar í landinu. Það er fátt nýtt undir sólinni í þeim efnum. Stjórnvöld eiga og verða að tryggja eðlilega uppbyggingu „infra-strúktúrs“ og þá er fyrst og fremst átt við samkipti innanlands og við útlönd. Lítið og landfræði- lega einangrað land á ekki að vera aftarlega á merinni r þessum efnum og ekki heldur í meðallagi gott. ísland á að vera í fremstu fylkingu, ef ekki í fararbroddi. Stjórnvöld eiga, og verða, að tryggja að framboð á vel menntuðu starfsfólki sé nægilegt. Allir vita að menntun er mikilvægasta fjár- festingin, þótt stundum virðist langur vegur á milli ásetnings og framkvæmdar í þeim efnum. Efl- ing menntakerfis og hvatning ungs fólks til náms eiga að vera for- gangsmál okkar íslendinga. Egill Másson erframkvœmda- stjóri Taugagreiningar hf. kr. og þar senr sumir tölvunot- endur slökkva aldrei á tölvum sínum, stóðu sum sínrtölin yfir í rnarga sólarhringa. Sérstök eftirlitsstofnun í Bandaríkjun- um hefur lokað fyrir þessa starfsemi og kært þrjá menn fyrir vil landi auglýsingar. Þeir sem fengu reikningana risa- vöxnu verða að greiða þá og eiga ekki von á neinunr bótum. MARS 1997 - 13

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.