Tölvumál - 01.03.1997, Side 16
TOLVUMAL
lýsingakerfum. Ein helsta skýr-
ingin á þessu er líklega sú að fær-
ustu hugbúnaðarmenn í þessum
löndum hafa fremur einbeitt sér að
arðbærari viðskiptamönnum eins
og fjármálastofnunum, efna- og
bílaiðnaði. Því eru umtalsverðir
útflutningsmöguleikar í að byggja
upp upplýsingakerfi matvæla-
fyrirtækja frá gögnum til upp-
lýsinga (Data Warehousing). Vax-
andi þrýstingur er á öll matvæla-
fyrirtæki hvar sem er í heiminum
um sffellt meiri gögn um fram-
leiðsluferli afurðanna, svo sem um
gæðaskýrslur og rekjanleika. Þetta
mun kalla fram aukinn „upplýs-
ingaþorsta“ og vaxandi möguleika
hugbúnaðarfyrirtækja ef rétt er
haldið á málum.
Það verður einnig að gera sér
grein fyrir því að útflutningstarf
er langtíma vinna og þar þarf að
sýna þolinmæði og þrautseigju
bæði meðal starfsmanna og hlut-
hafa. Stjórnendur fyrirtækja verða
að vinna umtalsverða heimavinnu
áður en „farið er í víking“.
Eftirfarandi þarf að skoða vel:
• Langtíma markmið
• Sterkar og veikar hliðar
• Ognanir - tækifæri
• Fjármögnun
• Samtarfsaðilar
• Væntanlegur árangur
Það eru rétt um tvö ár síðan að
stjórnendur Kerfis hf. ákváðu að
kanna til hlítar hvaða möguleikar
væru á útflutningi. Fyrsta árið
(1995) var engin sala, en árið var
vel nýtt í ýmiskonar heimavinnu
og endurskipulagningu fyrirtækis-
ins til að gera það betur í stakk
búið fyrir þróttmikið útflutnings-
starf.
Akveðið var á síðasta ári að
taka þátt í verkefni Utflutningráðs
sem nefnist útflutningsaukning og
hagvöxtur og hefur sú vinna verið
mjög uppbyggjandi og jákvæð.
Seinni hluta síðasta árs fór árangur
að koma í ljós og var 8% af veltu
fyrirtækisins til útflutnings. Útlit
er fyrir verulega aukningu út-
flutnings á þessu ári. Samninga-
viðræður standa nú yfir varðandi
ákveðin verkefni sem væntanlega
leiðir til tvöföldunar útflutnings-
tekna fyrirtækisins, þannig að
hlutfall þeirra af veltu ársins 1997
gæti orðið 15-20%.
Kerfi hf. hefur ákveðið að taka
þátt í European Sefood Exhibition
sem haldið verður í Brussel 15
apríl nk. Það verður fyrsta þátttaka
fyrirtækisins á sýningu erlendis
sem mun tvímælalaust verða mjög
öflug kynning fyrir vel skilgreind-
an markhóp þess. Kerfi hf. verður
þar þátttakandi á íslenskum þjóð-
arbás sem skipulagður er af Út-
flutningsráði. Á því svæði verða
helstu útflutningsfyrirtæki landsins
og er það tvímælalaust styrkur
fyrir öll fyrirtækin, hversu langt
sem þau eru komin á útflutnings-
brautinni, að standa saman að
sýningum á erlendri grund. í þeirri
miklu útrás sem nú á sér stað
meðal íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja og fyrirtækja tengdum
honum er enn hægt að auka sam-
starfið þeirra á milli, sem leitt gæti
til markvissari árangurs af út-
flutningsstarfi margra fyrirtækja.
Björn Z. Asgrímsson erfram-
kvæmdastjóri lijá Kerfi hf.
16 - MARS 1997