Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 17

Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 17
TÖLVUMÁL Utflutningur hugbúnaðar Effir Vilhiáinn Þorsfeinsson CODA á íslandi í nóvember síðastliðnum var gengið frá samningum milli eig- enda íslenskrar forritaþróunar hf. og breska hugbúnaðaifyrirtækisins CODA Group plc um kaup þess síðarnefnda á Windows-hugbún- aði ÍF. í kjölfarið var sett upp sjálf- stætt fyrirtæki hér á landi í eigu CODA, CODA d íslandi elif. Þetta fyrirtæki hefur á að skipa 10 manna starfsliði. Það mun vinna að áframhaldandi þróun hugbún- aðarins, sem hefur fengið nafnið CODA-Enterprise. Framkvæmdastjóri hins nýja fyrirtækis er Örn Karlsson, en starfsheiti undirritaðs er Principal Technical Specialist. Hálfdan Karlsson, sem var framkvæmda- stjóri Islenskrar forritaþróunar hf., fer til starfa hjá CODA Inc. í Bandaríkjunum sem aðstoðar- forstjóri (Vice President). CODA Group plc CODA Group plc er almenn- ingshlutafélag og mikilsvirt á sviði bókhalds- og viðskiptahugbúnaðai' fyrir stærri fyrirtæki. Hjá því starfa um 480 starfsmenn í 25 skrifstofum í 14 löndum. Stærstu markaðir þess eru á Bretlands- eyjum, í Bandaríkjunum, í Benelúx-löndunum og í Frakk- landi. Þá er mikill vöxtur á Asíu- markaði, þar sem fyrirtækið er með skrifstofur í Singapore, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og nýja skrifstofu í Malasíu. Meðal þekktra viðskiptavina fyrirtækisins eru Caterpillar, Newsweek, United Distillers, Nedlloyd, P&O, Avon Products, Swiss Bank Corpora- tion og SBC Warburg. CODA hefur einkum lagt áherslu á fjárhags-, viðskipta- manna- og lánardrottnabókhald (Financials). Biðlara/miðlarakerfi CODA vinnur á IJNIX eða NT þjónum og Windows útstöðvum. Öll samskipti eru eftir TCP/IP staðli. CODA vinnur með öllum helstu gagnagrunnum, þar á meðal Microsoft SQL Server, Oracle og Sybase. CODA hafði, eins og flest önnur bókhalds- og viðskiptahug- búnaðarfyrirtæki á Bretlands- markaði, talsverð samskipti við hinn þekkta ráðgjafa Dennis Keel- ing. Við hjá IF höfðum kynnst Keeling árið 1990 á evrópskri ráðstefnu um viðskiptahugbúnað. Einnig hlýddum við á stórgóðan fyrirlestur hans á sýningunni Soft- World in Accounting í Birming- ham árið 1995. Þegar við vorum að leggja á ráðin urn markaðssókn ÓpusAllt hugbúnaðar í Skotlandi þótti okkur tilvalið að leita ráða hjá Keeling. Við ákváðum að bjóða honum að koma til íslands og skoða hugbúnaðinn okkar. Það gerði hann í apríl á síðasta ári og leist vel á það sem við höfðum fram að færa, einkum Windows- hugbúnaðinn, sem hann taldi um margt eftirtektarverðan. Hann sagðist eiga kunningja í bransan- um í Bretlandi sem myndu hafa áhuga á að heyra um okkur og okk- ar vörur, og að hann myndi hafa samband við þá þegar hann kæmi heim til sín. Við það stóð hann og var Robert Brown forstjóri CODA Group fyrsti maðurinn sem hann hringdi í. Fyrirtæki stofnað Eftir nokkra fundi með full- trúum CODA var ljóst að vörur fyrirtækjanna áttu afar vel saman og að áhugi á samstarfi var fyrir hendi af beggjahálfu. Smiðshögg- ið var svo rekið á samkomulag aðila á stuttum fundi með Robert Brown hér á landi í júlí, en hann kom hér við á leið sinni yfir Atlantshafið. Þar var sett saman Heads of Agreement, eða plagg með helstu atriðum samkomulags, sem báðir aðilar skrifuðu undir. Að þessu loknu tóku lögfræðingar við málinu og vörðu allnokkru púðri í að semja stóran og ítarlegan samning. Jónas Aðalsteinsson hrl. var lögfræðingur okkar ÍF-manna og skilaði sínu hlutverki með miklum sóma. Eins og áður sagði var skrifað undir endanlegan samning í nóventber og kom hann til framkvæmda um leið og stjóm hlutabréfamarkaðarins í London (London Stock Exchange) hafði lagt blessun sína yfir hann, en það er lagaskylda fyrir almennings- hlutafélög að fá slíka blessun á yfirtöku og samruna fyrirtækja. CODA á íslandi ehf. er hreint „þróunaifyrirtæki“, fjármagnað af CODA Group plc. Öll starfsemi þess er útflutningur á íslenskri vinnu og þjónustu. CODA Group sér um markaðssetningu og sölu vörunnar, með þátttöku lykil- manna frá íslandi, þó sérstaklega MARS 1997 - 17

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.