Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 19

Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 19
TÖLVUMÁL Kynning - Tæknival hf. Upplýsingatækni til framfara Ef Gunrar Leó Gunnctsson Til að hámarka árangur Tækni- vals í hörðum heimi upplýsinga- tækninnar höfum við markað okkur meginstefnu um vöxt fyrir- tækisins. Áhersla er lögð á lausnir, nýtingu þekkingar í upplýsinga- tækni, samstarfsaðila innanlands sem utan, starfsfólk og umhverfi þess og hagkvæmni fyrirtækisins gagnvart hluthöfum. Stækkun hugbúnaðar- og iðnstýrideildar Óskir viðskiptavina um heild- arlausnir í upplýsingatækni eru grunnurinn að fjárfestingum okkar í hugbúnaðar- og sjálfvirkniþekk- ingu. I dag starfa um 60 manns hjá Tæknivali á þessu sviði, þar sem margvísleg verkefni eru í þróun og uppsetningu hjá viðskiptavinum. Dæmi um slík verkefni og við- skiptavini eru: • Hópvinnukerfi hafa verið sett upp hjá bæjar- og sveitarstjóm- um um allt land, þar á meðal Reykjavík, Kópavogi og Akur- eyri • Concorde XAL er í mikilli sókn, þar sem stór og öflug fyrirtæki hafa bæst í hópinn • Rafmagnsveitur Ríkisins hafa nýlega gengið til samninga um endurnýjun á veitukerfum sín- um • Hafdís, ný kynslóð upplýsinga- kerfa fyrir matvælafyrirtæki sem sniðin hafa verið að sjávar- útvegi, hefur verið sett upp í 25 fyrirtækjum Nú leitum við að starfsfólki, sem hefur menntun á starfssviðum viðskiptavina okkar, eins og við- skiptafræðilega menntuðum starfs- mönnum í Concorde XAL, tækni- fræðingum í sjálfvirknilausnir, sjávarútvegsfræðingum í Hafdís- arlausnir o.s.frv. Þetta er nýlunda í þessum geira þar sem kerfis- og tölvunarfræðingar hafa verið svo til einráðir hingað til. Sterkar einingar Til að viðskiptavinir fjárfesti í heildarlausn hjá okkur þurfa að felast styrkleikar í öllum einingum lausnarinnar, hvort heldur litið er til hug- eða vélbúnaðar. Víðtækt samstarf er hafið með Compaq Computer Inc. um markaðssetn- ingu og þjónustu við tölvubúnað á Islandi. Þetta hefur styrkleika í för með sér, enda er Compaq stærsta PC-tölvufyrirtæki í heimin- um. Leiðandi staða Compaq gefur okkur kost á að bjóða það nýjasta og besta í kraftmiklum netþjónum byggða á PC högun. Stefna Compaq er um margt lík stefnu Tæknivals þar sem lausnir eru í aðalhlutverki. Náið samstarf við framleiðendur stýrikerfa frá Microsoft, Novell og SCO, gagna- grunna frá Oracle, Sybase, Micro- soft og Informix, vefþjóna frá Microsoft, Netscape og Novell. Þess vegna má segja að bæði fyrirtækin stefni að samvirkni, þannig verða heildaráhrif meiri en samanlögð áhrif hinna einstöku þátta. Samstarfsaöilar Fyrirtæki, á markaði sem hreyfist eins hratt og tölvumark- aðurinn, verður að eiga spil uppi í erminni til að tryggja sér sveigjan- leika. Mikil hætta felst í því að vera of náið tengdur einstökum vörum eða framleiðendum þegar breytingar verða. Við höfum lagt áherslu á að starfa með fyrir- tækjum í upplýsingatækni og fjár- fest í vexti og velgengni fyrirtækja eins og Teymi, Hug, Navís, Intra- neti og Kugg. Að sama skapi höf- um við tengst umboðsmönnum okkar í kringum landið með nánari hætti, eins og á Akureyri, Akranesi og Reykjanesbæ. Internetið - bylting í samskiptum Tæknival stendur styrkum fót- um í samstarfi við Cisco Systems á samskiptamarkaði. Leiðandi staða Cisco hefur leitt til yfirburða markaðsstöðu í tengingum við Internetið og í dag er um 90% af undirstöðum netsins sett saman með Cisco. Nýjar áherslur í meðhöndlun upplýsinga á Intraneti/Interneti er nýtt vaxtarsvið þar sem fyrirtæki vilja nýta sér tæknina til að dreifa upplýsingum á lifandi hátt til starfsfólks og viðskiptavina sinna. Gunnar Leó Gunnarsson, tölvunarfrœðingur og rekstrarhagfræðingur, er markaðsstjóri Tæknivals hf MARS 1997 - 19

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.