Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 21
TOLVUMAL
Með bættu aðgengi að gögnun-
um eiga stjórnendur að geta orðið
sjálfstæðari í upplýsingavinnslu en
áður og geta náð í mikilvægar
upplýsingar hvenær sem er á
skömmum tíma. I heimi vaxandi
samkeppni skiptir ekki öllu hvað
þú veist heldur hvenær þú vissir
það.
Vöruhús gagna hjá
Skýrr - VGS
Skýrr hefur smíðað vöruhús
gagna fyrir sýna viðskiptavini,
kallað VGS, og er það mikilvægur
hluti af stuðningi Skýrr við lands-
kerfin. VGS er m.a. ætlað að ann-
ast upplýsingagjöf sem sívinnslu-
kerfin eru ekki hönnuð til að veita
og leysa af hólmi flókin fyrirspum-
arverkfæri s.s spyril semhingað til
hafa verið notuð. Með því að setja
gögn í VGS fá viðskiptavinir Skýrr
auðveldan og einsleitan aðgang að
gögnum sem þeir geyma hjá Ským
Viðskiptavinir Skýrr eiga mikið
af gögnum sem þeir geta ekki eða
eiga erfitt með að nýta en með
VGS batnar aðgengið mikið og
þeir geta notað þægileg Windows-
verkfæri í stað flóknu fyrirspumar-
verkfæranna. Þetta gerir mun fleiri
notendum kleift að nálgast gögn
sín og vinna með þau. Með því að
nota VGS hefur tekist að vinna
skýrslur á broti þess tíma sem áður
tók að gera þær. í þessurn tilvikum
eru fyrirspurnar- og úrvinnslu-
verkfærin látin vinna það sem áður
var að mestu unnið úr listum og
handslegið inn í töflureikni. Með
þessu móti er villuhætta lágmörk-
uð og það tryggt að alltaf er verið
að vinna með nýjustu gögnin.
I mörgum landskerfum hjá
Skýrr er mikið af eldri gögnum,
sem þarf sjaldan að nota, en ekki
er hægt að henda út sökum upp-
lýsingagildis sem í þeim liggur. Sé
þessum gögnum eytt úr sívinnslu-
kerfunum og komið fyrir í vöru-
húsi þá verða vinnslur í kerfunum
léttari og gögnin verða aðgengi-
legri en áður til að svala upplýs-
ingaþörf stjórnenda.
Með því að staðsetja vöruhús
gagna hjá Skýrr þurfa notendur
ekki lengur að flytja gögn í sínar
eigin gagnageymslur til frekari
úrvinnslu heldur aðeins þann hluta
sem vinna þarf með í hvert skipti.
Þegar úrvinnslunni er lokið er
ónauðsynlegt að geyma gögnin því
með einni fyrirspurn er hægt að
sækja nýuppfærð gögn í VGS
þegar á þarf að halda. Með gögnin
í VGS hafa eigendur gagnanna
ennfremur tryggt aðgengi notenda
um allt land og þá um leið betri
nýtingu þeirra.
Vöruhús gagna hjá Skýrr er
opið fyrir fyrirspurnir allan sólar-
hringinn alla daga vikunnar og
geta notendur því valið sjálfir
hvenær þeir gera fyrirspurnir.
Fyrirspurnir sem krefjast mikillar
vinnslu er þó rétt að gera utan
álagstíma. Fyrirspurnarverkfæri,
eins og t.d. Esperant, bjóða upp á
tímastilltar fyrirspurnir og er þá
t.d. hægt að láta fyrirspurnina fara
af stað áður en mætt er til vinnu
til þess að þau gögn sem vinna á
með séu til staðar þegar vinnu-
dagur hefst.
Öryggi gagna er mikilvægt og
það er ljóst að aðgengi gagna í
vöruhúsi er opnara en í sívinnslu-
kerfi og því er mikilvægt að
öryggismálum sé vel fyrirkomið.
Skýrr hefur langa reynslu og mikla
þekkingu á öryggismálum og er
því vel í stakk búið til að takast á
við öryggiskröfur sem gerðar eru
til varðveislu gagna. Eigendur
gagnanna geta treyst því að þættir
eins og aðgangsveitingar, upp-
færslur, geymsla, afritataka, að-
gengi og öryggi gagnanna almennt
sé í traustum höndum.
Við smíði Vöruhúss gagna hjá
Skýrr hefur skapast mikil reynsla
og þekking á srníði vöruhúsa.
Þessa reynslu og þekkingu bjóðum
við öðrum í formi ráðgjafar og
fræðslu. Sem dæmi um slíkt má
nefna:
• Ráðgjöf við smíði vöruhúss.
• Verkstjóm við smíði vöruhúss.
• Ráðgjöf við val á fyrirspurnar-
verkfærum.
• Ráðgjöf og kennsla í notkun
vöruhúss.
Lokaorð
Reynsla Skýrr af VGS hefur
verið góð. Gögn úr verkskrán-
ingarkerfi Skýrr hafa m.a. verið
sett inn í VGS og hafa stjórnendur
nýtt sér þau við uppgjör og eftirlit
með framgangi verka. í VGS hafa
m.a. verið sett gögn úr kerfum
Ríkisbókhalds, Ríkisskattstjóra,
Ríkistollstjóra og Launaskrifstofu
ríkisins. Fleiri aðilar eru að skoða
málið og er því ljóst að VGS kem-
ur til með að vaxa og þróast enn
frekar.
Að lokum er rétt að benda á að
vöruhús gagna fæst ekki keypt sem
einn pakki út úr búð. Til eru mörg
verkfæri sem aðstoða við einstaka
þætti vöruhússins en að stærstum
hluta byggist vel heppnað vöruhús
gagna á góðri hönnun og smíði og
þar er mikil reynsla og þekking
lykilatriði ef vel á fara.
Björn Snœr Guðbrandsson,
Skýrr hf.
MARS 1997 - 21