Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 22
TOLVUMAL
Frá orðanefnd
Ef Stefán Briem
Inna, framkvæma eða
keyra
Sögnin að inna hefur verið
notuð í íslensku máli allt frá
upphafi Islands byggðar. I
íslenskri orðabók telst hún hafa
þrjár merkingar: 1 vinna, gera,
framkvæma. 2 greiða, gjalda,
launa. 3 skýra frá, láta í ljós. A
síðustu áratugum hefur sögnin að
inna helst verið notuð í orða-
samböndunum: inna e-ð af hendi
(merking 1 og 2) og inna e-n eftir
e-u (merking 3). Fyrr á öldum var
þessi sögn meira notuð og með
fjölbreyttari hætti, eins og mörg
dæmi eru um í fornritunum.
I fyrstu útgáfu Tölvuorðasajhs
(1983) var sögnin að framkvæma
látin samsvara ensku sögninni
execute og nafnorði ðframkvœmd
notað um verknaðinn (e. exe-
cution). Þessi orð eru annars tals-
vert mikið notuð í íslensku máli og
orðanefnd fannst þau helst til
þunglamaleg. Því var ákveðið
þremur árum síðar, fyrir aðra
útgáfu Tölvuorðasafns (1986), að
hrista rykið af lítið notaðri sögn,
inna, sem hafði nokkurn veginn
sömu merkingu og setja hana í stað
sagnarinnarframkvœma. Um leið
var skipt um samsvarandi verkn-
aðarheiti, inning sett í stað fram-
kvœmdar. Þegar um forrit er að
ræða nota margir sögnina að keyra
í svipaðri eða sömu merkingu,
segj ast ætla að kevra forrit eða tala
um kevrslu forritsins. Til saman-
burðar má geta þess að ensku-
mælandi menn segja ýmist run a
program eða execute a program.
Sögnin að inna fer vel með
ýmsum liðum. Menn getamní að-
gerðir, skipanir, setningar, forrit og
jafnvel heil verk. Einnig má tala
um að keyra forrit eðaframkvæma
forrit. Skipanir máframkvœma en
hins vegar fer illa á að keyra skip-
anir. Þó að orðin framkvœma og
keyra séu góð og gild í vissu sam-
hengi þá er eins og orðið inna sé
oft þjálla í notkun. Við val á hæfi-
legri sögn þarf líka að hafa í huga
hver gerandinn er. Hvort er það
tölvan eða tölvunotandinn sem
framkvæmir skipunina eða forrit-
ið? Keyrir notandinn forritið í
tölvunni eða lætur hann tölvuna
keyra forritið?
Haldi menn sig nákvæmlega
við skýringar íslenskrar orða-
bókar er hægt að hugsa sér að
maður inni tölvuna eftir tiltekinni
þjónustu, að tölvan bregðist við
með því að inna af hendi við-
eigandi verk eða að forrit sé innt
eftir niðurstöðu. Orðanefnd telur
að merkingunni sé lítið hnikað til
þegar notað er til dæmis orðalagið
að notandi innir forrit. Þá er litið
á notandann sem geranda. Hann
notar tölvu sem nauðsynlegt verk-
færi við inningu forritsins og að-
hefst ef til vill ekki annað sjálfur
en að gefa tölvu sinni skipun um
að hefja framkvæmd forritsins. En
inningu forritsins telst ekki lokið
fyrr en tölvan hættir að fram-
kvæma setningar þess. Einnig
virðist vera í lagi að segja að tölva
innir forrit. Tölvan er þá gerand-
inn. Tilfinning manna fyrir málinu
verður að sjálfsögðu að ráða því
hvaða orð þeir nota hverju sinni
en þegar vafi leikur á hvað það er
sem á að framkvœma, keyra eða
inna (aðgerð, skipun, forrit
o.s.frv.) þá virðist öruggast að
segja inna.
Enda þótt heill áratugur sé
liðinn frá því að orðin inna og
inning voru kynnt í Tölvuorða-
safninu til notkunar í upplýsinga-
tækni hefur notkun þeirra ekki náð
þeirri útbreiðslu sem vænst var.
Tölvuorðanefnd ræddi um þetta á
fundi sínum fyrir skömmu og
komst að þeirri niðurstöðu að
áratugur væri reyndar ekki langur
tími í sögu orða og að þessi orð
væru eins og sniðin fyrir merkingu
sína í upplýsingatækni en nokkuð
skorti á að menn hefðu komið auga
á það. Þessi pistill er því ritaður
meðal annars til þess að minna
menn á að nota þessi frábæru orð.
Að lokum eru nefnd hér nokkur
hugtök úr gögnum orðanefndar
sem verða sennilega með í þriðju
útgáfu Tölvuorðasafns og lúta að
inningu eða skyldri athöfn. Islensk
heiti þeirra hafa reyndar ekki enn
verið afgreidd endanlega í orða-
nefndinni.
control flow inningarleið, fram-
kvæmdarleið
executable innanlegur, keyran-
legur
execution error, run-time error
inningarskekkja, inningarvilla
execution monitor inningargætir
execution sequence inningaröð,
framkvæmdaröð
execution time1, run time1
inningarskeið, keyrsluskeið
execution time2, run time2
inningartími, keyrslutími
job run verkvinnsla
program run keyrsla forrits
run-time system inningarkerfi
run-time library inningarsafn
Vitvera og gengill
Nýlega barst orðanefnd fyrir-
spurn um íslensk heiti á tveimur
fyrirbærum í sýndarveruleika sem
á ensku bera heitin intelligent
22 - MARS 1997